Fréttablaðið - 13.04.2013, Side 22

Fréttablaðið - 13.04.2013, Side 22
13. apríl 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 22 Örn Elías Guðmundsson, eða Mugison, er besti núlifandi íslenski tónlistarmaðurinn sam-kvæmt skoðanakönnun Frétta-blaðsins. Hann hlaut 14,3% atkvæða í efsta sætinu en alls tóku 498 manns þátt í könnuninni. Skammt undan í öðru sætinu varð Ásgeir Trausti Einars son og í því þriðja reynsluboltinn Bubbi Morthens. „Þetta er frábær heiður,“ segir Mugison, sem gaf síðast út plötuna Haglél fyrir jólin 2011. Hún seldist í um þrjátíu þúsund eintök- um og er ein söluhæsta íslenska plata allra tíma. „Ég hélt að maður væri svo stuttlífur í poppinu. Það er gaman að fólk muni eftir manni,“ segir hann og heldur áfram: „Það er eitt og hálft ár síðan ég gerði eitthvað af viti. Ég er búinn að vera að hanga síðan.“ Björk er í fjórða sæti á listanum og er eina konan sem kemst í eitt af tíu efstu sætunum. Sú næsta á eftir, nafna hennar Hera Björk, er í sautjánda sætinu. Á eftir henni kemur svo Lay Low í 23. sæti. Karlar eru því mjög áber- andi á þessum lista. Óþægilegt að vera fyrir ofan Bubba Mugison segir svolítið óþægilegt að vera fyrir ofan Bubba í könnuninni. „Hann kom vestur um helgina. Hann var að labba inn á veitingastað sem ég var á. Ég fór á bak við hurð og ætlaði að bregða honum í góðu gríni. Svo sagði ég „babú!“ og þá var hann kominn með mig í hálstak á núll einni. Þetta voru rosaleg viðbrögð í karlinum. Ég er þakklátur fyrir að hann hafi ekki tekið hausinn af mér. Það er alltaf nett óþægi- legt að vera fyrir ofan hann í einhverju.“ Um Ásgeir Trausta hefur hann þetta að segja: „Það er frábært að fylgjast með Ásgeiri og því sem hann er að gera. En ég veit ekki hvort hann myndi ná á mér háls- taki. Ég held að ég sé aðeins stærri en hann,“ segir hann glettinn. Mugison bauð sig nýverið fram í heiðurs- sæti Bjartar framtíðar fyrir komandi alþingis kosningar. Hann kveðst ekki vita hvort þetta val sem besti tónlistarmaðurinn sé gott fyrir framboðið. „Ég tók könnun á DV um daginn til að finna út hvað maður á að kjósa og samkvæmt því á ég að kjósa Pírata. Það kom mér vel á óvart. Kannski ætti ég bara að skipta um flokk. En ég held að þetta gagnist flokknum voða lítið að hafa poppara þarna á lista.“ Stutt er síðan Mugison kom heim eftir fimm vikna tónleikaferðalag um Evrópu með Of Monsters and Men. „Þetta var æðislegt. Við vorum á „double decker“ [tveggja hæða rútu], sautján manns í kojum. Þetta eru alveg hrikalega duglegir krakkar og skemmti- legir,“ segir hann. Aðspurður segist hann hafa fengið góðar viðtökur á tónleikunum, nema hvað að lögin sem hann tók á hljóð- færið sitt Mirstrument féllu ekki eins vel í kramið og hin. „Þetta var kannski heldur of „artí“ fyrir liðið. En þegar skeggjaði karlinn fór á kassagítarinn þá lifnaði yfir fólkinu og það fóru allir í stuð.“ Hann kveðst ekki vita hvort hann ætlar að gefa út ný lög á þessu ári en vonar það. „Ég á slatta af efni. Ég held að það verði á ensku en ég veit ekki hvað gerist. Ég er með nokkur verk- efni í gangi. Ég ætlaði að gera þungarokksplötu og var búinn að redda mér átta bassaleikurum og þremur trommurum en svo fór það á ís.“ Sigling í kringum landið í sumar á bátnum Húna II er að minnsta kosti fyrirhuguð með Jónasi Sigurðssyni, Láru Rúnarsdóttur og Ómari Guðjónssyni, þar sem spilað verður á hinum ýmsu stöðum. Mikill heiður að vera í öðru sæti „Þetta er bara mikill heiður. Þetta er er svo nýfarið í gang hjá mér að maður er bara í skýjunum yfir öllu sem er að gerast,“ segir Ásgeir Trausti um annað sæti í könnun- inni. „Maður getur ekki tekið of mikið mark á einhverju svona og ef það hefði verið spurt fyrir nokkrum mánuðum veit maður ekki hvernig fólk hefði svarað. Þetta breytist allt svo fljótt en þetta er mikil heiður.“ Ásgeir Trausti hefur verið á tón- leikaferðalagi með Dananum Mads Langer að undanförnu. Í maí fer hann á aðra tónleikaferð um Bretland með Íslandsvininum John Grant. Sá bandaríski þýddi einmitt textana á Dýrð í dauðaþögn yfir á ensku. Þessi nýja útgáfa fyrir erlendan markað kemur út eftir um það bil þrjá mánuði. Mugison bestur á Íslandi Mugison er besti núlifandi íslenski tónlistarmaðurinn samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Ásgeir Trausti er skammt undan í öðru sætinu og í því þriðja er Bubbi Morthens. Fáar konur komust á blað. Úrtakið í könnuninni var 1.231 manns en hringt var þar til náðist í 800 samkvæmt lagskiptu úrtaki miðvikudaginn 3. apríl og fimmtudaginn 4. apríl. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr Þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hver er besti nú- lifandi tónlistarmaðurinn? Alls tók 62,3 prósent þátttakenda í könnuninni afstöðu til spurningarinnar. SKOÐANAKÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS Freyr Bjarnason freyr@frettabladid.is Karlar 1. Mugison 13,7% 2. Bubbi 12,2% 3. Ásgeir Trausti Einarsson 9,5% 4. Björk Guðmundsdóttir 6,1% 5. Gunnar Þórðarson 5,3% 9.-10. Magnús Eiríksson 1,9%, Kemst ekki á blað hjá konunum. Konur 1. Ásgeir Trausti Einarsson 18,2% 2. Mugison 14,8% 3. Bubbi 9,7% 4.-5. Björk Guðmundsdóttir 4,7% 4.-5. Víkingur Heiðar Ólafsson 4,7% 11.-12. Eyþór Ingi Gunnlaugsson 2,1%. Kemst ekki á blað hjá körlunum. Höfuðborg 1. Mugison 14,8% 2. Ásgeir Trausti Einarsson 13,6% 3. Bubbi 11,9% 4. Björk Guðmundsdóttir 6,3% 5. Víkingur Heiðar Ólafsson 4,5% Víkingur Heiðar er vinsæll hjá höfuðborgar- búum en rétt kemst á blað hjá landsbyggðinni. Landsbyggð 1. Ásgeir Trausti Einarsson 13,7% 2. Mugison 13 % 3. Bubbi 8,9% 4. Ragnar Bjarnason 6,2% 5.-6. Gunnar Þórðarson 4,1% 5.-6. Valdimar Guðmundsson 4,1% 8. Helgi Björnsson 4%. 18-49 ára 1. Ásgeir Trausti Einarsson 17,5% 2. Mugison 15,5% 3. Bubbi 12,7% 4. Björk Guðmundsdóttir 6,9% 5. Megas 3,4% 6.-7. Valdimar Guðmundsson 2,7% 9. Jón Jónsson 2,4% 14,3%1 10-11 8-9 8-9 5-6 5-6 7 10-11 13,7%2 5,4%4 11%3 Allir 5.-6. Gunnar Þórðarson 4% 5.-6. Ragnar Bjarnason 4% 7. Víkingur H. Ólafsson 3,2% 8.-9. Björgvin Halldórsson 3% 8.-9. Megas 3% 10.-11. KK 1,6% 10.-11. Valdimar 1,6%
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.