Fréttablaðið - 13.04.2013, Page 26

Fréttablaðið - 13.04.2013, Page 26
13. apríl 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26 Mér fannst þetta frábær hugmynd þegar ég heyrði um þetta leik-rit fyrst. Og það kom á daginn að það hitti mjög í mark hjá Dönum, sýningin var vinsæl þar í landi og vann til Reumert-verðlauna árið 2010 þegar hún var sett á svið fyrst,“ segir Charlotte Böving um leikritið Kvennafræðarann, eða Kvinde kend din krop eins og það nefnist á frummálinu dönsku. Handbókin sem leikritið byggir á er mjög þekkt í Danmörku, hún kom fyrst út á áttunda áratugnum og síðan þá hefur hver kynslóð kvenna fengið sína útgáfu af bók- inni. „Kvinde kend din krop var mjög pólitísk bók þegar hún kom fyrst út, skilaboðin að konur ættu sinn líkama sjálfar voru undir- liggjandi í þessari beinskeyttu bók sem sjokkeraði marga,“ segir Charlotte, sem sjálf fékk bók- ina að gjöf frá móður sinni. „Það er hefð að stelpur fái þessa bók kannski sextán ára gamlar. Bókin hefur svo komið út á um það bil tíu ára fresti og umfjöll- unarefnin taka mið af breyttum tíðaranda. Í nýjustu bókinni er til dæmis tekið á lýtaaðgerðum sem hafa aukist mjög mikið eins og við vitum.“ Bókin kom út á Íslandi endursamin árið 1985 undir heit- inu Nýi kvennafræðarinn, og fjöldi annarra bóka um svipað efni hafa komið út hér á landi. En þótt slíkar bækur séu yfirleitt frekar þurrar þá er leikritið mjög fyndið og safaríkt. Ekkert grín en samt fyndið „Danir hafa oft lag á að snúa hlut- unum upp í grín. Í þessu leikriti erum við að fjalla um ýmislegt sem varðar kvenlíkamann og líf konunnar. Meðfram er líka fjallað smávegis um karlinn, en samt ekki of mikið! Ýmis umfjöllunarefni leikritsins eru alvarleg, þannig að þetta er kannski ekki dæmigert gamanleikrit, þótt það sé á köflum bráðfyndið. Markmið mitt var líka að setja ást og aðeins meiri dýpt inn í leikgerðina sem ég hef aðlag- að aðeins að íslenskum aðstæðum.“ Í leiksýningunni er fjallað af ástríki og gamansemi um helstu efnisþætti bókarinnar, meðal annars um það að verða ástfang- in, um tíðahring kvenna, fæðingar- þunglyndi, fjögur stig fullnæg- ingar, breytingaskeið, unglinga, stress, lýtaaðgerðir og kynlífs- stellingar. Í sýningunni er fjallað á berorðan hátt um þessa hluti og fleiri, og hún er því kannski ekki við hæfi barna að sögn Charlotte. Tveir leikarar leika í sýning- unni, þau Maríanna Clara Lúthers- dóttir og Jóhann G. Jóhannsson. Þau skipta bæði margsinnis um hlutverk í sýningunni og sum þeirra eru í óvenjulegri kantin- um. „Þegar við erum að fjalla um tíðahringinn þá leikur Jóhann til dæmis leg,“ segir Charlotte og kímir. „Þess má annars geta að leikritið er þannig uppbyggt að þau skiptast á að ávarpa áhorfend- ur og leika.“ Vill fleiri konur á svið Charlotte hefur í störfum sínum sem leikkona, leikstjóri og höf- undur gjarnan kannað heim kvenna. „Ég hef tekið það svolít- ið að mér að fjalla um konur. Það er ekki af því að mig langi ekki til að gera leikrit sem snúast um karla. Það eru bara svo margir í því. Ég vil sjá fleiri konur á sviði og miklu fleiri verk sem snúast um konur. Við erum helmingur mann- kyns, því er svo einkennilegt að hlutföllin í leikhúsinu séu svona ójöfn,“ segir Charlotte og rifjar upp breska rannsókn þar sem í ljós kom að karlar ættu 70% hlutdeild í bresku leikhúsi og konur 30%. Og við þetta má bæta að þegar litið er á leikárið í stóru leikhús- unum tveimur, Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu kemur í ljós að karlar eru í aðalhlutverki í sjö nýjum frumsýningum vetrarins en konur aðeins þremur. Af sextán sýningum skrifa konur þrjár sýningar sem eru sýndar í Þjóð- leikhúsinu en í Borgarleikhúsinu var í vetur ekkert langt verk eftir konu tekið til sýningar, en þess má geta að tvö verk af þremur í leik- sýningunni Núna, sem frumsýnd var síðastliðinn föstudag, eru eftir konur. Borgarleikhúsið stendur sig betur en Þjóðleikhúsið í kynja- hlutverkum aðalhlutverka. Ættum að umskrifa klassíkina „Ég veit ekki hvað ég hef horft á mörg leikrit sem fjalla um sam- band föður og sonar, ég er pínu þreytt á því. Við getum kall- að eftir fleiri leikritum sem eru skrifuð fyrir konur. En í nútíman- um ættum við ekki að vera feimin við það að umskrifa klassísk leik- rit þannig að konur fari með hlut- verk karla,“ segir Charlotte. En aftur að Kvennafræðaran- um. Heldurðu að karlmenn hafi gaman af þessu verki eða er það bara fyrir konur? „Ég fór á BLAM eftir Kristján Ingimarsson um daginn. Sú sýning var leikin af fjórum karlmönnum þar sem farið var inn í ímyndaðan heim karlmannsins. Ég hafði rosalega gaman af henni. Ég held að þetta svari spurningunni. Góðar sýning- ar höfða til allra. “ Tek að mér að fjalla um konur Charlotte Böving hefur unnið að því undanfarið að setja á svið leikritið Kvennafræðarann, sem byggt er á danskri handbók fyrir konur. Charlotte hefur í störfum sínu kannað heim kvenna og segir það baráttumál sitt að fá fleiri konur á svið. Charlotte hefur sjálf komið að leikhúsinu með fjölbreyttum hætti á sínum ferli. Hún var fastráðin leikkona við Aarhus teater að loknu námi í leiklist og þar fór hún meðal annars með hlutverk Ariel í Ofviðrinu eftir Shake- speare, Maríu í Sjúk æska eftir Brückner og Víólu í Þrettándakvöldi Shake- speares. Hún lék við ýmis leikhús í Kaupmannahöfn á árunum 1996 til 1999, meðal annars Katrine í Die Fremdenführerin eftir Botho Strauss og Toru í Bildmakarna eftir Per Olov Enquist. Hún segir það hafa skipt mjög miklu máli að hafa fengist við svona fjölbreytt hlutverk nýútskrifuð. „Ég fékk svo góða reynslu, ég var ekkert smá heppin.“ ➜ Búið á Íslandi frá árinu 2000 Charlotte hefur búið á Íslandi frá árinu 2000, að undanskildum þremur árum er hún bjó í Kaupmannahöfn. Hún hefur skrifað, leikstýrt og fram- leitt ýmis verk hér á Íslandi. Má þar nefna Ævintýrið um Rauðhettu og úlfinn, Þetta er lífið, Mamma mamma og Bláa gullið. Charlotte fékk Grímuna – Íslensku leiklistarverðlaunin fyrir leik sinn í Ófögru veröld. Sýningin Litla skrímslið systir mín, sem hún leikstýrði hjá Tíu fingrum, fékk Grímuna sem barnasýning ársins árið 2012. Hefur leikið og leikstýrt CHARLOTTE BÖVING Ýmislegt sem varðar kvenlíkamann og líf konunnar er til umfjöllunar í leikritinu Kvennafræðaranum. Hér má sjá Charlotte á sviði Kassans þar sem leikritið verður sýnt. Leikmyndin sem glittir í er verk Ilmar Stefánsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.