Fréttablaðið - 13.04.2013, Side 36

Fréttablaðið - 13.04.2013, Side 36
13. apríl 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 36 Þegar Margaret Thatcher var kjörin formaður breska Íhaldsflokksins árið 1975 var henni stillt upp sem forsætisráð-herraefni þessa aldna valdaflokks. Voru margir efins í fyrstu um að þessi almúgakona gæti leitt íhaldsmenn til valda á ný enda á þeim tíma fá fordæmi um farsæla kvenleiðtoga í stjórn- málum Vesturlanda. Átti Thatcher eftir að vera áhrifamikill en þó umdeildur stjórnmálaforingi sem sigraði þrisvar glæsilega í kosn- ingum eins og Fréttablaðið fjallaði nánar um á þriðjudag. Thatcher varð forsætisráðherra árið 1979 en á þeim tíma höfðu aðeins fimm konur leitt nútíma- ríkisstjórn og engin í Evrópu. Thatcher varð því ein allra fyrsta konan til að komast til æðstu met- orða í stjórnmálum og sú fyrsti auk Goldu Meir í Ísrael til að láta að sér kveða á alþjóðavettvangi. Frá því að Thatcher settist í embætti hafa 68 konur til viðbót- ar leitt ríkisstjórn og hefur fjöldi þeirra tvöfaldast á síðustu tólf árum. Samtals hafa 52 lönd valið konu til forystu í ríkisstjórn en þar af hafa fleiri en ein kona leitt ríkis stjórn í ellefu löndum. Tvö ríki hafa valið fleiri konur til forystu en tvær; Bangladess með þrjá kvenkyns forsætisráð- herra og San Marínó þar sem tólf konur hafa leitt ríkisstjórn. Stjórn- kerfi San Marínó er þó ólíkt flest- um öðrum því þar skipta tveir þingmenn með sér verkum forseta og forsætisráðherra til sex mánaða í senn áður en skipt er um leiðtoga. Fjöldi forsætisráðherra í San Mar- ínó er því mun hærri en í flestum öðrum ríkjum. 80 70 60 50 40 30 20 10 0 19 60 19 61 19 62 19 63 19 64 19 65 19 66 19 67 19 68 19 69 19 70 19 71 19 72 19 73 19 74 19 75 19 76 19 77 19 78 19 79 19 80 19 81 19 82 19 83 19 84 19 85 19 86 19 87 19 88 19 89 19 90 19 91 19 92 19 93 19 94 19 95 19 96 19 97 19 98 19 99 20 00 20 01 20 02 20 03 20 04 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 20 10 20 11 20 12 20 13 FJÖLDI KVENNA SEM HEFUR LEITT RÍKISSTJÓRN Magnús Þorlákur Lúðvíksson magnusl@frettabladid.is ➜ Thatcher varð forsætis- ráðherra árið 1979 en á þeim tíma höfðu aðeins fimm konur leitt nútíma ríkisstjórn og engin í Evrópu. Síle Perú Panama Kosta Ríka Trínidad og Tóbagó Gvæjana Kanada Ísland Noregur Finnland Litháen Pólland Úkraína MoldóvaFrakkland Portúgal Tyrkland Ísrael Kyrgistan Indland Srí Lanka Mósambík Malaví Rúanda Líbería Saó Tóme og Prinsípe Senegal Malí Búrúndí Mið-Afríku ýðveldið Bangladess Taíland Suður-Kórea Filippseyjar Indónesía Ástralía Nýja-Sjáland Pakistan Króatía Slóvenía Slóvakía Þýskaland Bretland Danmörk Jamaíka Níkaragva Brasilía Argentína Kvenleiðtogum aldrei fjölgað hraðar Margaret Thatcher, forsætisráðherra Breta frá 1979 til 1990, féll frá í vikunni. Thatcher var áhrifamikill forsætisráðherra heima fyrir en varðaði einnig veginn fyrir konur í stjórnmálum víða um heim enda aðeins sjötta konan til að leiða nútímaríkisstjórn. VIGDÍS OG THATCHER Vigdís Finnbogadóttir, þá forseti Íslands, heimsótti Thatcher í Downing-stræti 10, bústað forsætisráðherra Breta, árið 1983 í opinberri heimsókn í Bretlandi. Vigdís var eins og Íslendingar þekkja fyrsti þjóðkjörni kvenkyns forseti heims. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Sirimavo Bandaranaike Forsætisráðherra Srí Lanka frá 1960 til 1965, 1970 til 1977 og 1994 til 2000. ➜ Fyrsta konan til að leiða nútímaríkisstjórn. ➜ Tók við sem leiðtogi valdaflokksins í Srí Lanka eftir að eigin- maður hennar, sem var vinsæll forsætis- ráðherra, var myrtur. ➜ Dóttir þeirra varð síðar forsætisráðherra og forseti Srí Lanka. Indira Gandhi Forsætisráðherra Indlands frá 1966 til 1977 og 1980 til 1984. ➜ Dóttir Jawaharlal Nehru, fyrsta forsætis- ráðherra Indlands og eins leiðtoga sjálfstæð- ishreyfingar Indverja. ➜ Réði lögum og lofum í stjórnkerfi Indlands frá 1966 til 1984 með stuttu hléi. ➜ Var myrt af tveimur lífvörðum sínum árið 1984. Golda Meir Forsætisráðherra Ísraels frá 1969 til 1974. ➜ Virkur þátttakandi í stjórnmálum í Ísrael frá stofnun ríkisins árið 1948. ➜ Var lýst sem járnfrú ísraelskra stjórnmála löngu áður en Thatcher var gefið það viðurnefni. ➜ Embættistíð hennar var viðburðarík og má nefna gíslatökuna á Ólympíu- leikunum í München og Yom Kippur-stríðið. Gro Harlem Brundtland Forsætisráðherra Noregs árið 1981, frá 1986 til 1989 og 1990 til 1996. ➜ Læknir sem lærði við Harvard-háskóla. ➜ Settist á þing fyrir jafnaðarmenn árið 1977 og var kjörin for- maður þeirra árið 1981. ➜ Enn mjög vinsæl í Noregi en Brundtland leiddi Alþjóðaheil- brigðismálastofnunina að stjórnmálaferli sínum loknum. Fleiri leiðtogar sem vörðuðu veg kvenna í stjórnmálum 1 kona leitt ríkisstjórn (+ Júgoslavía sem er ekki lengur til) 2 konur leitt ríkisstjórn 3 konur eða fl eiri leitt ríkisstjórn Dóminíka Haítí San Marínó VIÐ VILJUM VITA MÖGULEG INNGANGA ÍSLANDS Í EVRÓPUSAMBANDIÐ SNÝST UM HAGSMUNI ALMENNINGS – UM LÍFSKJÖR – UM FRAMTÍÐ. KLÁRUM VIÐRÆÐURNAR OG SJÁUM SAMNINGINN. JAISLAND.IS
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.