Fréttablaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 37
PALLURINN
LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013 Kynningarblað Gróður, viðarvörn, pallaolía, heitir pottar, harðviður, skjólveggir.
Húsasmiðjan var frumkvöðull í hönnun sól-palla og skjólveggja hérlendis fyrir aldarfjórð-ungi. Samvinna Húsasmiðjunnar og franska
landslagsarkitektsins Stanislas Bohic vakti mikla at-
hygli á sínum tíma og átti eftir að fæða af sér ótal sól-
palla og skjólveggi um allt land. Í dag býður fyrir-
tækið upp á heildarþjónustu fyrir viðskiptavini sem
eru að íhuga byggingu sólpalls eða skjólveggs. Einar
Sveinsson hjá söludeild Húsasmiðjunnar segir sól-
pallinn stækka íverustað fjölskyldunnar og bjóða upp
á fjölbreytta möguleika, auk þess sem hann eykur
verðgildi eignarinnar. „Þegar hugað er að byggingu
sólpalls er mikilvægt að undirbúa sig vel. Það þarf til
dæmis að huga að því hvar og hvenær sólin skín, hvar
eigi að staðsetja heita pottinn, grillið og húsgögnin.
Einnig þarf að huga að jarðveginum og gróðri á lóð-
inni.“
Teikningar í þrívídd
Húsasmiðjan býður upp á ráðgjöf, allt efni og verk-
færi til pallasmíðar og að sjálfsögðu allt á pallinn
sjálfan. „Húsasmiðjan býður þjónustu garðhönnuð-
ar sem teiknar pallinn í þrívídd frá mismunandi sjón-
arhornum. Þannig sér viðskiptavinur hugmyndina
í þrívídd og grunnteikningu ásamt verðáætlun fyrir
öllu, allt niður í smæstu skrúfu. Fyrir þá sem vant-
ar verkfæri og tæki til pallasmíða bjóðum við upp á
öfluga áhaldaleigu þar sem viðskiptavinir geta feng-
ið bora, staurabora, litlar gröfur og ýmis önnur tæki
og tól.“
Þegar kemur að framkvæmdinni sjálfri hvetur
Einar fólk til að leita ráða hjá fagmönnum, að
minnsta kosti til að koma að koma sér af stað. „Lang-
vinsælasta efnið sem við seljum í palla og skjólveggi
er AB gagnvarin fura. Húsasmiðjan selur eingöngu
efni með viðurkenndri gagnvörn sem endist til fjölda
ára en þau eru samkvæmt ströngustu umhverfis-
reglum. Einnig er mikilvægt að nota ryðfríar skrúfur
ef pallurinn er nálægt sjó.“ Lerki hefur einnig verið að
vinna á, að sögn Einars, en það er náttúrulega gagn-
varið og dugir í áratugi. Lerkið þarf líka minna við-
hald ef fólk sættir sig við að láta það grána en lerk-
ið fær silfurgráan lit. Einnig er í boði harðviður sem
endist von úr viti að sögn Einars, enda
nánast eins og bryggjudekk.
Reglulegt viðhald nauðsynlegt
Ef vandað er til verksins í upphafi að sögn Ein-
ars getur sólpallurinn og skjólveggurinn enst vel og
lengi, sérstaklega ef hann fær reglulegt viðhald með
því að bera á hann
pallaolíu eða viðeig-
andi viðarvörn. „Það
þarf að bera fyrst á hann
fljótlega eftir að hann er
tilbúinn. Svo þarf að bera
á hann reglulega, helst á
hverju ári. Best er að gera
þetta á vorin og sumrin en það
þarf að muna að þrífa hann vel
áður.“
Ekki má gleyma því sem fer á
pallinn. Húsasmiðjan býður upp á
gott úrval grilla, húsgagna og heitra
potta og boðið er upp á heimsendingarþjón-
ustu vara á sanngjörnu verði.
Ráðgjafar og sölumenn Húsasmiðjunnar
um land allt eru ávallt tilbúnir að veita þjónustu og
eru flestir þeirra faglærðir með margra ára reynslu.
Hægt er að panta tíma hjá ráðgjafa í síma 525-3000 og
allar nánari upplýsingar má finna á www.husa.is.
Allt fyrir pallinn hjá
Húsasmiðjunni
Viðskiptavinir fá ráðgjöf og allt efni í pallasmíðina í verslunum
Húsasmiðjunnar. Fyrirtækið var á sínum tíma frumkvöðull hérlendis í
hönnun sólpalla og skjólveggja. Auk þess býður Húsasmiðjan upp á úrval
grilla, húsgagna og heitra potta á pallinn.
Gott er að eiga notalega stund í heitum potti á pallinum heima.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Húsasmiðjan býður upp á ráðgjöf vegna pallasmíðar, efni í pallinn, verkfæri og að sjálf-
sögðu allt á pallinn sjálfan, að sögn Einars Sveinssonar hjá söludeild Húsasmiðjunnar.
MYND/GVA
Ef vandað er til
verksins í upphafi
getur pallurinn
enst vel og lengi.
Húsasmiðjan leigir
út tæki og tól til
pallagerðar og selur
úrval grilla og hús-
gagna á pallinn.
MYND/ÚR EINKASAFNI
MYND/ÚR EINKASAFNI