Fréttablaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 75
KYNNING − AUGLÝSING Pallurinn13. APRÍL 2013 LAUGARDAGUR 3
Öðruvísi blómapottar
Með hækkandi sól má fara að huga að garðverkunum, dusta ryk af áhöldum og tína til blómapottana. Ef
gömlu leirpottarnir eru orðnir lúnir og leiðinlegir mætti breyta til en ýmiss konar ílát geta vel gegnt
hlutverki blómapotta. Gamlar kommóður eru fyrirtaks blómaker, sérstaklega ef málaðar í sumarlegum
litum, og þá hafa hvers konar niðursuðudósir eða skrautlegir kökudunkar lífgað upp á garðinn. Stígvél
sem farin eru að leka og gamla skó er einnig tilvalið að nota til að gróðursetja falleg blóm.
Barnavagn getur haft mikið tilfinningalegt gildi. Hví ekki
að gróðursetja blóm frekar en að henda honum?
Gömul kommóða
sem máluð er í
rómantískum og
sumarlegum litum
getur gert mikið
fyrir garðinn. Svo
hún endist lengur
gæti verið sniðugt
að bora göt í
skúffubotnana svo
rigningarvatn geti
lekið burt.
Fallegar niðursuðu-
dósir og munstraðir
kökudunkar eiga vel
heima í garðinum og
verða meira sjarmer-
andi við hverja dæld
og ryðblett.
Slitinn leðurskór verður að afar skemmtilegum blómapotti
en nýta má lek gúmmístígvél og annað ónýtt skótau af fjöl-
skyldunni undir stjúpur og fjólur. NODRIC PHOTOS/GETTY
Einfaldan safnkassa má slá
saman úr timbri og láta lofta milli
fjala. Neðst þyrfti að vera gott bil
til að ná moldinni úr kassanum.
Eins gæti verið hentugt ef hægt
væri að losa eina hliðina úr svo
hægt sé að tæma kassann alveg.
Hvað má fara í safnkassann úr
eldhúsinu:
■ Ávextir og grænmeti
■ Kjöt
■ Fiskur og skeldýr
■ Mjólkurafurðir
■ Ostavax
■ Egg og eggjaskurn
■ Brauð
■ Kaffi og kaffifilter
■ Te og tepokar
■ Mjöl, hrísgrjón og pasta
■ Afskorin blóm, pottablóm og
pottamold
■ Óbleiktur eldhúspappír
■ Eggjabakkar
Hvað má fara í safnkassann úr
garðinum:
■ Gras
■ Mosi
■ Visinn gróður
■ Lauf
■ Hey og hálmur
■ Börkur, barr, greinar og kvistir
Safnaðu lífrænum úrgangi úr
eldhúsinu í pappírspoka sem loft-
ar um. Gott er að fara með hann út
í safnkassann annan hvern dag,
áður en hann fer að lykta. Öðru
hvoru skal setja úrgang úr garðin-
um saman við eldhúsúrganginn,
ekki mold þó en best er að hlut-
fall eldhús- og garðúrgangs sé til-
tölulega jafnt í kassanum. Þá skal
blanda vel saman.
Til að flýta fyrir jarðgerðinni er
hægt að bæta kjötmjöli, hrossa-
taði eða nýslegnu grasi í kassann.
Ef úrgangurinn er kurlaður eða
brytjaður niður gengur jarðgerð-
in einnig hraðar.
Nánari upplýsingar um jarð-
gerð er að finna á www.sorpa.is.
Mold úr mat
Eigin jarðgerð í bakgarðinum er einföld leið til að
nýta matarafganga heimilisins og til að losna við að
keyra grasið úr garðinum í Sorpu eftir slátt. Allt
sem þarf er safnkassi.
Nokkuð auðvelt er að slá upp einföldum
safnkassa úr timbri.
SJÁLFSÍKVEIKJA
Sjálfsíkveikja vegna fúavarnar-
efna og annarra olíuefna er vel
þekkt fyrirbrigði. Þegar tuskur
og penslar eru bleyttar í olíu og
þeim safnað saman í einn haug
getur innan nokkurra klukku-
stunda kviknað í þeim eldur. Það
sem gerist er að olían gengur í
efnasamband við súrefni og við
það myndast hiti og orka.
Undir venjulegum kringum-
stæðum þornar olían og harðnar
og hitinn hverfur. Sé hins vegar
öllu safnað saman í haug geta
myndast aðstæður þar sem þessi
orka kemst ekki burt. Að lokum
myndast svo mikill hiti að sjálfs-
íkveikja á sér stað. Best er því að
breiða vel úr þeim tuskum sem
notaðar eru þannig að loft eigi
greiðan aðgang að þeim. Þegar
þær hafa þornað er í lagi að safna
þeim saman til að nota síðar.
Fara þarf varlega við frágang
fúavarnarefna.
Ég flyt harðviðinn beint inn frá framleiðanda í Brasilíu og get því boðið mjög hagstætt verð.
Hann er ekki á lista yfir verndaðar
viðartegundir heldur er um sjálf-
bæra skógrækt að ræða. Timbr-
ið er vottað af alþjóðlegu samtök-
unum Forest Stewardship Council
eða FSC,“ segir Magnús Dalberg,
eigandi og stofnandi Indus ehf.
FSC myndi þýðast sem „Ráð hinna
ábyrgu skóga“ á íslensku.
Helstu viðartegundirnar sem
Magnús flytur inn frá Brasilíu eru
cumaru-tekk, jatoba, ipe-hnota og
garapa-askur. „Harkan og þéttleik-
inn í þessum tegundum gerir það
að verkum að ekki þarf að með-
höndla hann eða fúaverja fyrir
notkun líkt og mýkri við. Eins
hefur fólk val um hvort það vill
bera reglulega olíu á viðinn til að
halda lit hans eða láta hann grána.“
Gráminn hefur takmörkuð áhrif á
endingu en viðhaldsvinna verður
nánast engin.
Nokkrar útfærslur eru í boði
fyrir mismunandi aðstæður. Fyrst
ber að nefna hefðbundið pallaefni
sem er heflað á alla kanta og notað
í girðingar, skjólveggi eða skrúf-
að niður sem dekk pallsins. „Einn-
ig eru til útfærslur með riffluðu yf-
irborði. Svo er það pallaparket þar
sem sérstakar klemmur ganga inn
í raufar á hliðum pallaefnisins, svo
hægt er að smella þeim saman.
Þar með er engin þörf fyrir skrúf-
ur í viðinn. Yfir borðið er hægt að
pússa á nokkurra ára eða áratuga
fresti og verður þá alveg eins og
nýtt.“ Magnús er einnig með vatns-
klæðningar úr harðviði af ýmsum
Gæði á góðu verði
Notkun harðviðar í palla og klæðningar sparar tíma og pening í viðhaldi þegar
fram í sækir. Indus ehf., Óseyrarbraut 2 í Hafnarfirði, býður hágæða harðvið
frá Brasilíu á góðu verði.
Helstu viðartegundirnar sem Indus ehf. flytur inn frá Brasilíu eru cumaru-tekk, jatoba,
ipe-hnota og garapa-askur.
„Harkan og þétt-
leikinn í þessum
tegundum gerir
það að verkum
að ekki þarf að
meðhöndla viðinn
eða fúaverja fyrir
notkun líkt þarf
með mýkri við,“
segir Magnús. MYND/
GVA
gerðum og panil efni fyrir þak-
kanta og skyggni. „Klæðningarnar
eru nótaðar og oft notaðar sem heil-
klæðning, eða til að brjóta upp eins
og til dæmis álklæðningar. Með því
móti fæst oft meiri hlýleiki.“
Undirvinnan fyrir harðvið er
öll sú sama og við aðra pallasmíði
eða klæðningar. Þegar harðviður
er notaður heldur yfirborðið, sem
mest á mæðir, betur vatni og vind-
um til lengri tíma og virkar eins og
viðhaldslaus regnkápa sem skýlir
efninu sem undir er. „Þá er ég með
vistvænar harðviðarolíur sem veita
99 prósenta UV-vörn. Olíurnar eru
sérstaklega fyrir þennan harðvið
og alveg litlausar svo litur viðarins
nýtur sín til fulls.“
Ná n a r i uppl ý s i n g a r u m
vörur Indus ehf. er að finna á
www.vidur.is.