Fréttablaðið - 13.04.2013, Side 78

Fréttablaðið - 13.04.2013, Side 78
13. apríl 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 38 Góðu verkin fram í dagsljósið Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins verða veitt næstkomandi miðvikudag. Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á einstaklingum og verkefnum sem geta verið öðrum til fyrirmyndar. Lesendur Fréttablaðsins tóku þátt í að tilnefna til verðlaunanna og bárust á fjórða hundrað tilnefningar. Dómnefnd vann úr tilnefningunum og kynnir nú niðurstöðuna. STEINDÓR ANDERSEN Steindór hefur með starfi sínu með íslenskum tónlistar- mönnum unnið ómetanlegt starf við framgang og kynn- ingu íslenskrar rímnahefðar. Farsælt samstarf Steindórs við hljómsveitir og tónlistar- menn á borð við Sigur Rós, Hilmar Örn Hilmarsson og Erp Eyvindarson hefur vakið verð- skuldaða athygli. Steindór hefur með flutningi sínum unnið að miðlun og varðveislu íslenskrar tónlistarhefðar. FÉLAG ELDRI BORGARA OG GRUNNSKÓLABÖRN Í REYKJANESBÆ Félag eldri borgara á Suður- nesjum og grunnskólabörn í Reykjanesbæ tóku í fyrra höndum saman um að brúa bil kynslóðanna með margvís- legum verkefnum og samstarfi. Í tilefni af útnefningu Evrópu- samtaka aldraðra á árinu 2012 sem Evrópuári aldraðra leitaði Félag eldri borgara á Suður- nesjum eftir því við skóla- yfirvöld að liðkað yrði fyrir heimsóknum fulltrúa félagsins í skóla sveitarfélagsins. Þessar heimsóknir hafa auðgað skólastarfið og verið bæði börnunum og eldri borgurunum mikils virði. MARGRÉT PÁLMADÓTTIR Margrét hefur unnið mikilsvert starf með kórum og um árabil stuðlað að söngmennt stúlkna og kvenna. Hún stofnaði Stúlknakór Reykjavíkur haustið 1994 og hefur verið listrænn stjórnandi hans frá upphafi. Kórinn hefur alltaf verið stór og eru félagar nú um eitt hundrað, á aldrinum fimm til nítján ára. Framlag Margrétar til þess að þroska söngnæmi nemenda með flutningi kórtónlistar er ómetanlegt. FRÁ KYNSLÓÐ TIL KYNSLÓÐAR SIGURLAUG HERMANNSDÓTTIR Sigurlaug hefur um árabil verið ötul í félagslífinu á Blönduósi. Meðal annars hefur hún, ásamt eiginmanni sínum Hlyni Kárasyni, boðið eldri borgurum á Blönduósi til árlegrar veislu heima hjá sér. Þau sækja fólkið á eigin bíl og selflytja í nokkrum ferðum. Hefur fólk í byggðarlaginu á orði að heimsóknin til Sigurlaugar og Hlyns jafngildi árshátíð eldri borgara. HALLDÓR GUNNAR PÁLSSON Halldór, sem er kórstjóri Fjallabræðra, hefur stuðlað að aukinni samkennd þjóðarinnar með upptöku á laginu Ísland. Hann hefur ferðast vítt og breitt um landið til þess að fanga rödd þjóðarinnar. Um 30 þúsund landsmenn hafa með glöðu geði tekið þátt í söngnum. Framtak Halldórs hefur haft góð og hvetjandi áhrif í bæjarfélögum víða um land og þátttakendur hafa fundið til samkenndar í gegnum sönginn. GUÐMUNDUR STEFÁN GUNNARSSON Guðmundur Stefán er íþróttakennari við Akurskóla í Reykjanesbæ. Hann hafði frumkvæði að stofnun Júdódeildar UMFN fyrir fáeinum misserum. Guðmundur hefur gefið vinnu sína og æfingar í júdó hafa verið börnum að kostnaðar- lausu. Júdóhugsjónin er Guðmundi hugleikin og markmiðið með íþrótta- starfinu er að veita börnum og unglingum tækifæri til að efla bæði líkamlegt og andlegt atgervi. HVUNNDAGSHETJAN ALZHEIMER-KAFFI Alzheimer-kaffi er fyrir fólk með alzheimer og skylda sjúkdóma og aðstandendur þeirra. Kaffi- húsið er sett upp með það að markmiði að gefa fólki tækifæri til þess að koma saman þar sem þörfum þeirra er mætt. Með þessu er markvisst unnið að því að draga úr einangrun sem fólk með minnissjúkdóma og aðstandendur þeirra kunna að finna fyrir, auk þess að bjóða upplyftingu og aðstoð. KAFFISTOFA SAMHJÁLPAR Kaffistofan er fyrir utangarðsfólk og aðstöðu- lausa og hefur verið starfrækt frá árinu 1982. Fyrstu árin var opið virka daga og á stórhátíðum. Haustið 2001 bættist svo við helgaropnun og hefur kaffistofan verið opin alla daga síðan. Að jafnaði fær kaffistofan rúmar hundrað heim- sóknir á dag, eða upp undir 40 þúsund á ári. Tveir starfa á kaffistofunni, sem að auki nýtur liðsinnis sjálfboðaliða. KATTHOLT Kattavinafélagið var stofnað árið 1976 og hóf þegar að taka til dvalar heimilislausa óskilaketti. Fljótlega bauð félagið einnig upp á vistun katta ef eigendur þurftu að bregða sér frá. Hús félags- ins, Kattholt, var opnað í júlí 1991. Í Kattholti er ávallt staðinn vörður um gott atlæti katta, að þeir eigi sér húsaskjól og fái mat. Markmið Kattholts er einnig að upplýsa fólk um mikilvægi þess að merkja og gelda ketti og veita almenna fræðslu um kattahald. SAMFÉLAGSVERÐLAUN PROJEKT POLSKA Hópur ungra Pólverja vinnur að aðlögun og eflingu félagsstarfs og bættum aðstæðum innflytjenda á Íslandi. Hópurinn telur að innflytjendur beri sjálfir á því nokkra ábyrgð að bæta hag sinn og kalli það á virka starfsemi. Stór þáttur í starfi félagsins er að kynna íslenska menningu í Póllandi og pólska menningu hérlendis, þannig megi mynda tengsl og aukinn skilning á milli landanna tveggja. ADHD-SAMTÖKIN ADHD-samtökin fagna aldarfjórðungsafmæli á árinu. Markmið samtakanna er að börn og full- orðnir með athyglisbrest og skyldar raskanir njóti sannmælis í samfélaginu og fái þjónustu sem stuðlar að bættum lífsgæðum. Samtökin vinna mikilvægt starf þegar kemur að börnum og ung- lingum með ofvirkni og athyglisbrest. Fræðslufundir samtakanna eru jafnan mjög vel sóttir en auk þess standa samtökin fyrir námskeiðshaldi af ýmsu tagi og útgáfu fræðsluefnis. SENDIHERRAR SAMNINGS SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA UM RÉTTINDI FATLAÐRA Sjö einstaklingar með þroskahömlun kynna samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og eru sendiherrar samningsins. Þau vinna að því að kynna samninginn og freista þess að breyta viðhorfi til fatlaðra til hins betra. Sendiherrarnir eru Gísli Björnsson, Ingibjörg Rakel Bragadóttir, Ína Valsdóttir, María Hreiðarsdóttir, Skúli Steinar Péturs- son, Þórey Rut Jóhannesdóttir og Þorvarður Karl Þorvarðarson. Verkefnisstjóri er Ásdís Guðmunds- dóttir, kennari hjá Fjölmennt. TIL ATLÖGU GEGN FORDÓMUM Umboðs- og dreifingaraðili Ray Ban á Íslandi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.