Fréttablaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 110
13. apríl 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 70
Edda Blumenstein, framkvæmda-
stjóri Skemmtigarðsins í Smára-
lind, er mikil áhugakona um allt
sem tengist hárgreiðslu. Hún
heldur úti vefsíðunni Hárið.is og
Facebook-síðu með sama nafni þar
sem hægt er að nálgast upplýsing-
ar um hár og hártísku.
Edda segir síðuna hafa orðið til
af einskærum áhuga og sinnir hún
henni í frítíma sínum. „Ég segi
stundum að þetta sé eins og fót-
boltinn hjá karlinum. Sumir hafa
áhuga á fótbolta eða golfi, ég hef
áhuga á hári,” segir Edda og hlær.
Markmið vefsíðunnar er að
auðvelda fólki leitina að kennslu-
myndböndum og umfjöllunum
um hár og hárvörur. Hún finn-
ur megnið af upplýsingunum á
Pinterest, Youtube og vefsíðum
sem fjalla um hár og hárgreiðslur.
„Ég safna upplýsingunum á einn
stað og það auðveldar fólki leitina.
Aðdáendur Facebook-síðunnar eru
líka farnir að senda mér tengla og
myndir sem ég síðan deili áfram,
þetta er orðið að hálfgerðu sam-
félagi.“
Aðspurð segir Edda að líklega
geti hún þakkað móður sinni fyrir
þennan mikla áhuga á hári, en hún
starfar sem hárgreiðslumeistari.
„Þaðan kemur fyrirmyndin og
áhuginn. Ég hef alla tíð lagt mikið
upp úr því að hárið sé fínt og hef
mjög gaman af því að gera alls
konar greiðslur.“
Innt eftir því hvaða greiðsla sé í
mestu uppáhaldi hjá henni kveðst
Edda hrifnust af fléttum. „Ég er
rosalega hrifin af fléttum í allri
sinni mynd og bíð til dæmis spennt
eftir því að Daenerys Targaryen
birtist á skjánum þegar ég horfi
á Game of Thrones. Hún er alltaf
með svo flottar fléttur,“ segir hún
að lokum og hlær. - sm
Eins og fótboltinn hjá karlinum
Edda Blumenstein heldur úti vefsíðunni Hárið.is sem fj allar um hár og hártísku.
HRIFIN AF HÁRI Edda Blumenstein
framkvæmdastjóri heldur úti vefsíðunni
Hárið.is. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
➜ 6.034 hafa lækað Hárið.is á
Facebook.
Söngkonan Dísa Jakobsdótt-
ir hefur vakið athygli eftir að
myndband við lag hennar, Sun,
var frumsýnt á vefsíðunni Now-
ness.com.
„Þessi jákvæðu viðbrögð hafa
verið mjög ánægjuleg og komið
skemmtilega á óvart. Lagið
fjallar um sólina og ég sótti inn-
blástur minn í bókina LoveStar,
sem mér finnst alveg frábær,“
útskýrir Dísa og bætir hikandi
við: „Ég vona að honum [Andra
Snæ Magnasyni] sé sama að ég
hafi notað söguna hans á þennan
hátt.“
Söngkonan er nýkomin með
samning við danska útgáfufyrir-
tækið Tigerspring sem er bæði
með skrifstofur í Kaupmanna-
höfn og London. Dísa lýsir sam-
starfinu sem nánu og þægilegu
og viðurkennir að hún hafi lengi
látið sig dreyma um samning við
fyrirtækið. „Þetta er enn glæ-
nýtt en lofar góðu. Uppáhalds
dönsku hljómsveitirnar mínar
eru með samning hjá þeim og
ég hafði látið mig dreyma um
að ganga til liðs við þá frá því
ég flutti hingað,“ segir Dísa,
sem er búsett í Kaupmannahöfn
ásamt dönskum sambýlismanni
og tveimur börnum þeirra.
Hún stundar nám í tón-
smíðum við Rytmisk Musik-
konservatorium og ber nám-
inu vel söguna.
„Námið er snilld. Ég á
tvö ár eftir því ég tók mér
barneignarfrí eftir fæð-
ingu yngra barnsins. Ég
nýtti fríið svo í að semja
efni fyrir sólóplötu sem er
„in the making“.“ Sambýlis-
maður Dísu er einnig tón-
listarmaður og saman
mynduðu þau dúettinn Song
for Wendy sem hélt meðal
annars tónleika hér á landi
jólin 2011. Að sögn Dísu er
dúettinn í orlofi og ætla þau
þess í stað að einbeita sér
að sólóverkefnum. „Þegar
maður er með sameigin-
legt heimili og tvö börn þá
verður svolítið mikið að
ætla líka að vinna saman.
Við erum rosalega ólíkir
tónlistar menn og þó við
vinnum ekki lengur saman
þá fáum við góðar ráðlegg-
ingar og hjálp frá hvort
öðru.“ sara@frettabladid.is
Hefur lengi dreymt
um þennan samning
Dísa Jakobsdóttir vekur athygli með nýju lagi sínu, Sun. Lagið er innblásið af
LoveStar eft ir Andra Snæ Magnason. Dísa skrifaði nýlega undir samning við
danska útgáfufyrirtækið Tigerspring, þar sem hennar uppáhaldssveitir eru fyrir.
■ Tigerspring var stofnað árið 2006 af Christian Møller og Søren
Winding sem kynntust er þeir stunduðu nám við Royal Music
Conservatorium.
■ Listamennirnir sem eru á samningi hjá fyrirtækinu kalla sig
stundum „Tiger Family“, sem þýða má sem Tígurfjölskyldan á
okkar ylhýra.
■ Á meðal þeirra listamanna sem eru á samningi hjá Tigerspring
má nefna Choir of Young Believers, Howl Baby Howl, I Got
You On Tape, Jong Pang og Messy Shelters.
Tígrisdýrafjölskyldan
STYRKJA DAVÍÐ
Vinir Davíðs Olgeirssonar, tónlistar-
manns og markaðsstjóra Háskólans á
Bifröst, hafa hafið sölu á stutterma-
bolum til styrktar honum. Davíð lenti
í því að blóðgúlpur sprakk í höfði hans
á knattspyrnuæfingu í febrúar sem
orsakaði heilablæðingu og hefur hann
verið í stífri endurhæfingu síðan. Karl
Sigurðsson borgarfulltrúi
er einn af þeim sem
standa að söfnuninni
en þeir Davíð voru
saman í strákasveitinni
Brooklyn Fæv. Olgeir
Hallgrímsson hannar
bolina og hægt er panta
eintök á póst-
fanginu kallisig@
gmail.com. - áp
„Það er alltaf
kraftaverk að
eignast barn og
á okkar aldri er
það enn meira
kraftaverk.“
LEIKKONAN HALLE
BERRY, SEM VERÐ-
UR 47 ÁRA Á ÞESSU
ÁRI, OPINBERAÐI Í
VIKUNNI AÐ HÚN
ÆTTI VON Á SÍNU
ÖÐRU BARNI MEÐ
KÆRASTA SÍNUM,
OLIVIER MARTINEZ.
VEKUR ATHYGLI
Dísa Jakobsdóttir,
söngkona, hefur
vakið athygli
með nýju lagi
sínu, Sun.
Lagið var
innblásið af
sögu eftir
Andra
Snæ
Magna-
son.
Í þessari fallegu og rómantísku
vorferð sem hefst um hvítasunnuna
er dvalið á undurfögrum stöðum
í Austurríki og Þýskalandi og ferðast,
fræðst og rölt um í mestu makindum.
Fararstjóri: Ása María Valdimarsdóttir.
Um ferðina:
LÁGMÚLI 4 108 RVK | S. 585 4000 | URVALUTSYN.IS
Vorferð til Mið-Evrópu
á mann miðað við 2 fullorðna í tvíbýli.
Gist er í Tírol frá 18.-21.maí,
við Bodenvatn 21.-24.maí og í
München 24.-26.maí.
228.300 KR.-
18. - 26. maí
Mjög mikið innifalið
Efldu
einbeitninguna
Efldu einbeitinguna
og auktu líkamlegt
þol með töku Arctic
Root og Fjörefna.
20% afsláttur í
apríl!
KOMINN ÚR AÐGERÐ
MMA-bardagamaðurinn Gunnar
Nelson fór í aðgerð á hné í gær. Rétt
eftir hádegi birtist mynd af honum á
Facebook-síðu hans, nývöknuðum úr
aðgerðinni, með þeim skilaboðum að
aðgerðin hefði gengið vel. Með honum
á myndinni var kærastan
hans, Auður Ómarsdóttir,
og vinur hans Jón Viðar
Arnþórsson sem var þar
klæddur í skurðlækna-
galla. Ólíklegt er þó að
hann hafi annast
aðgerðina eins og
stóð í textanum
við myndina, þar
sem hann er ekki
læknismennt-
aður.
DANSARAR MEÐ
FATAMARKAÐ
Dansarinn og gif-drottningin Berglind
Pétursdóttir ætlar að selja af sér
spjarirnar á fatamarkaði á Dans-
verkstæðinu við Skúlagötu 30.
„Þarna verða hinir ýmsu dansarar
að selja allt nema jogginggallana
sína og mikið stuð og stemmning,“
segir Berglind, sem auk
fatnaðarins verður
með hina sívinsælu
hárblómakransa á
staðnum. Markaðurinn
hefst klukkan 13.00 og
stendur til 17.00.