Fréttablaðið - 07.05.2013, Síða 8

Fréttablaðið - 07.05.2013, Síða 8
7. maí 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8 Til leigu 268m2 verslunar-/skrifstofuhúsnæði á þessum vinsæla stað. Laust strax! Til leigu 586m2 lager-/iðnaðarhús- næði, sem hægt er að skipta upp í 400 og 186m2. Mjög gott útisvæði. Laust strax! Allar nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson, lögg. fasteignasali, s. 534 1024 / 897 7086 hmk@atvinnueignir.is Save the Children á Íslandi HÚSNÆÐISMÁL „Sýslumaðurinn mætti bara heim til mín og bauð upp íbúðina. Ég hafði ekki heyrt neitt frá leigusalanum sem hafði þá, án minn- ar vitundar, hætt að greiða af íbúð- inni á sama tíma og ég flutti inn,“ segir Þórunn María Örnólfsdóttir. Í byrjun árs 2012 flutti Þórunn María í leiguhúsnæði á Akranesi. Hún greiddi leiguna samviskusam- lega í eitt ár eða allt þar til hún fékk veður af yfirvofandi uppboði. Þá leitaði hún leiða í að losna undan leigusamningi. Leigusali Þórunnar Maríu er Ingvar Örn Ingólfsson en hann birti á sunnudaginn færslu á vef- ritinu Eyjan.is undir fyrirsögninni „Missti húsið á uppboði en Arion- banki eltir hann með eftirstöðv- arnar til Noregs“. Ingvar ber sig, í færslunni, illa gagnvart þeim sem hann skuldar, Arion banka. „Hann gleymdi alveg að minnast á það í pistlinum að hann þáði leigu upp á 105 þúsund krónur í hverjum mánuði,“ segir Þórunn María. Ingvar, sem búsettur er í Nor- egi, segist hafa flúið land vegna greiðsluerfiðleika. Hann hafi séð þá stöðu vænsta að hætta að borga þar sem ekki gekk að semja við bank- ann. „Ég vildi bara losna við húsið og þeir vildu ekkert fyrir mig gera og ekki semja svo ég fór þessa leið.“ Í Noregi er Ingvar að koma undir sig fótunum og hefur keypt hús þar í landi: „Ég er skráður fyrir húsnæði já, en ég á ekkert í því enn þá,“ segir Ingvar. Ingvar segir að það hafi ekki verið ætlunin að skaða Þór- unni Maríu með neinum hætti. „Ég lét hana vita með smá fyrirvara í gegnum Facebook hvert stefndi. Ef henni finnst á sér brotið þá þykir mér það miður og ég ætla að heyra í henni fljótlega sjálfur og segja henni það,“ segir Ingvar. Spurður hvort ekki sé óeðlilegt að þiggja leigutekjur af húsnæði sem hann var hættur að greiða af segir hann svo ekki vera. „Hver ákveður það annars hvert leigutekjur eiga að renna. Ég hefði mögulega getað staðið betur að málum við Þórunni, ég viðurkenni það alveg en pen- ingana notaði ég meðal annars til að greiða upp annað lán,“ segir Ing- var. maria@frettabladid.is Hætti að greiða lán en hirti leigutekjur Ung einstæð móðir segir farir sínar ekki sléttar af leigusala. Sá hætti að greiða af leiguhúsnæðinu um það leyti sem hún flutti inn. Íbúðin fór á nauðungaruppboð konunni að óvörum. Hún hafði þá greitt 105 þúsund krónur á mánuði, í ár. Fimmtán látnir í Pakistan 1PAKISTAN Fimmtán manns hið minnsta eru sagðir hafa látist í sprengju-árás í norðvesturhluta Pakistans í gær. Tugir til viðbótar slösuðust. Sprengjuárásin var gerð á kosningabaráttufundi hjá trúarlegum stjórn- málaflokki. Sprengingin er sú síðasta í röð árása sem gerðar hafa verið á stjórn- málaflokka og frambjóðendur, en almennar kosningar í landinu fara fram á laugardag. 93 ára handtekinn vegna glæpa í heimsstyrjöld 2 ÞÝSKALAND, AP 93 ára gamall maður hefur verið handtekinn í Þýska-landi fyrir aðild að morðum. Maðurinn er sagður hafa verið fangavörður í Auschwitz-fangabúðunum í seinni heimsstyrjöldinni. Þýsk yfirvöld greindu frá því í gær að maðurinn, Hans Lipschis, hefði verið handtekinn. Maðurinn bjó lengi í Bandaríkjunum eftir stríðið en var vísað úr landi árið 1983. Hann hefur viðurkennt að hafa verið hluti af SS-sveitum nasista en segist þó aðeins hafa verið kokkur. Sjöfaldur forsætis- ráðherra látinn 3 ÍTALÍA, AP Fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, Giulio Andreotti, er látinn. Hann var 94 ára gamall. Andreotti var valdamik- ill maður á sínum tíma. Hann var einn þeirra sem skrifaði stjórnarskrá Ítalíu eftir seinni heimsstyrjöld- ina. Þá gegndi hann embætti forsætisráðherra sjö sinnum og sat í yfir 60 ár á þingi. Hann var einnig umdeildur og sat undir ásökunum um að hafa aðstoðað mafíuna og hafa verið spilltur. GREIDDI 105.000 Í LEIGU MÁNAÐARLEGA Þórunn María vissi ekki að leigusalinn hennar hugðist losna undan húsnæðisláni með því að hætta að greiða það. INGVAR ÖRN INGÓLFSSON HEIMURINN 1 2 3

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.