Fréttablaðið - 07.05.2013, Qupperneq 42
7. maí 2013 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 30
visir.is
Allt um leiki
gærkvöldsins
PEPSI DEILDIN 2013
NÆSTU LEIKIR
Þór - FH sun. 12. maí kl: 17.00
ÍBV - Breiðablik sun. 12. maí kl: 17.00
Stjarnan - Víkingur Ó. sun. 12. maí kl: 19.15
Keflavík - KR sun. 12. maí kl: 19.15
Fram - Fylkir mán. 13. maí kl: 19.15
ÍA - Valur mán. 13. maí kl: 20.00
Mörkin: 1-0 Brynjar Björn Gunnarsson (13.),
1-1 Halldór Orri Björnsson (22.), 2-1 Sjálfsmark
Daníels Laxdal (43.)
KR (4-3-3): *Hannes Þór Halldórsson 7 - Aron
Bjarki Jósepsson 6, Grétar Sigfinnur Sigurðsson
7, Brynjar Björn Gunnarsson 6 (44. Þorsteinn Már
Ragnarsson 5), Guðmundur Reynir Gunnarsson
7 - Jónas Guðni Sævarsson 6, Bjarni Guðjónsson
6, Baldur Sigurðsson 7 - Emil Atlason 5, Óskar Örn
Hauksson 6, Gary Martin 5
Stjarnan (4-4-2): Ingvar Jónsson 5 - Jóhann
Laxdal 5, Daníel Laxdal 5, Martin Rauschenberg 6,
Hörður Árnason 5 (90. Tryggvi Sveinn Bjarnason
-) Ólafur Karl Finsen 4 (63. Kennie Chopart 5),
Michael Præst 5, Atli Jóhannsson 5 (86. Robert
Sandnes -), Halldór Orri Björnsson 6 - Veigar Páll
Gunnarsson 5, Garðar Jóhannsson 4.
Skot (á mark): 5-8 (3-4) Horn: 5-8
Varin skot: Hannes 3 - Ingvar 2
Aukaspyrnur: 13-13
2-1
KR-völlur 2614
áhorfendur
Magnús
Þórisson (7)
Mörkin: 1-0 Atli Viðar Björnsson (34.), 2-0 Albert
Brynjar Ingason (39.), 2-1 Marjan Jugovic (48.)
FH (4-3-3): Róbert Örn Óskarsson 6 - Guðjón
Árni Antoníusson 6, Guðmann Þórisson 5, Freyr
Bjarnason 7, Samuel Lee Tillen 6, Emil Pálsson 6–
Björn Daníel Sverrisson 8, *Atli Viðar Björnsson 8
(89. Ingimundur Níels Óskarsson-), Atli Guðnason
6, Ólafur Páll Snorrason 6, Albert Brynjar Ingason
7 (70. Brynjar Ásgeir Guðmundsson -)
Keflavík (4-3-3): David Preece 5 - Ray Anthony
Jónsson 3 (89. Elías Már Ómarsson -), Halldór
Kristinn Halldórsson 4, Haraldur Freyr
Guðmundsson 5, Fuad Gazibegovic 3, Frans
Elvarsson 5, Sigurbergur Elísson 5,, Arnór Ingvi
Traustason 5,(78. Magnús Þórir Matthíasson -)
Hörður Sveinsson 4, Jóhann Birnir Guðmundsson
6, Marjan Jugovic 5 .
Skot (á mark): 13-8 (8-4) Horn: 7-2
Varin skot: Róbert 3 - Preece 6
Aukaspyrnur: 15-10
2-1
Kaplakrikavö.
1769 áhorfendur
Þóroddur
Hjaltalín(6)
Mörkin: 1-0 Viðar Örn Kjartansson (47.), 1-1
Kristinn Freyr Sigurðsson, víti (61.), 1-2 Haukur
Páll Sigurðsson (78.).
Fylkir (4-3-3): Bjarni Þórður Halldórsson 7 - Davíð
Þór Ásbjörnsson 6, Sverrir Garðarsson 7 (88.
Ásgeir Eyþórsson), Kjartan Ágúst Breiðdal 7,
Tómas Þorsteinsson 6- Finnur Ólafsson 4, Pablo
Oshan Punyed 5 (66. Heiðar Geir Júlíusson 5) ,
Elís Rafn Björnsson 6 - Kristján Páll Jónsson 4 (66.
Egill Trausti Ómarsson 6) , Tryggvi Guðmundsson
6, Viðar Örn Kjartansson 7.
Valur (4-3-3): Fjalar Þorgeirsson 5 - Jónas Tór
Næs 6, Magnús Már Lúðvíksson 5, Stefán Ragnar
Guðlaugsson 6 (55. Matthías Guðmundsson
6), Bjarni Ólafur Eiríksson 5– Andri Fannar
Stefánsson 6 (71. Rúnar Már Sigurjónsson),
*Haukur Páll Sigurðsson 7, Iain Williamson
6– James Hurst 5, Kristinn Freyr Sigurðsson 7,
Kolbeinn Kárason 5 (84. Björgólfur Takefusa ).
Skot (á mark): 8-8 (3-3) Horn: 4-6
Varin skot: Bjarni Þórður 1 - Fjalar 1
Aukaspyrnur: 11-12.
1-2
Fylkisvö. 1321
áhorfendur
Garðar Örn
Hinriksson (7)
HANDBOLTI „Maður hefur þurft að
semja við bankann um að fá að greiða
greiðslukortareikninginn seinna. Maður getur
huggað sig við það að einhvern tímann kemur
peningurinn. Þeir borga alltaf þótt það komi
seint,“ segir Rúnar Kárason. Auk Rúnars leikur
Sverre Jakobsson með liðinu.
Leikmenn Grosswallstadt lögðu niður
æfingu á föstudaginn að frumkvæði þýsku
goðsagnarinnar Peters Meisinger sem stýrði
æfingu liðsins á fimmtudeginum.
„Þegar hann frétti af því sagði hann okkur
að þetta gæti ekki haldið áfram að menn
æfðu eins og óðir menn en fengju þetta
alltaf í bakið á sér,“ segir Rúnar. Meisinger,
sem er íþróttastjóri hjá félaginu, var ekki
meðvitaður um óánægju leikmanna með
vangoldin laun. Meisinger, sem er einn besti
leikmaður Þýskalands frá upphafi og goðsögn
hjá Grosswallstad, sagði leikmönnum að taka
sér frí á föstudag og laugardag. „Sjáumst á
sunnudaginn og undirbúum okkur vel fyrir
leikinn,“ segir Rúnar og vitnar í Meisinger.
Annað kvöld mætir Grosswallstadt liði TV
1893 Neuhausen í botnbaráttuslag. Bæði lið
hafa ellefu stig og sitja í fallsæti.
„Við höfum verið að horfa á þennan
maímánuð þar sem eru leikir sem við eigum að
vinna,“ segir Rúnar. „Við þurfum að vinna þrjá
leiki til að komast á öruggt svæði,“ sem segir
leikmenn vel stemmda miðað við aðstæður.
„Á móti kemur að það er engin kjöraðstaða að
vera að berjast fyrir lífi sínu og þurfa á sama
tíma að lifa eins og fátæklingur,“ segir Rúnar
sem vonast til að gengið verði frá greiðslum
sem fyrst til að friða leikmannahópinn. „Ég er
ekkert brjálæðislega bjartsýnn að það gerist,“
segir stórskyttan.
Rúnar sleit krossband í hné síðastliðið sumar
en byrjaði að spila aftur í febrúar.
„Ég finn að snerpan er svo gott sem komin.
Maður er samt fljótur að stífna upp í hnénu.
Heilt yfir gengur þó mjög vel.“
kolbeinntumi@365.is
Þurft i að semja við bankann
Rúnar Kárason og félagar hjá Grosswallstadt hafa átt í ítrekuðum vandræðum með að fá greidd laun í vetur.
FAX Stórskyttan skartar öflugri
hárgreiðslu. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI „Við vitum að við verð-
um í toppbaráttunni og stefnan
verður að sjálfsögðu sett á titil-
inn,“ segir Harpa Þorsteinsdóttir,
framherji Stjörnunnar. Stjarnan
varð Íslandsmeistari sumarið 2011
en missti titilinn í hendur Þórs/KA
síðastliðið sumar. Það var sárabót
að Garðbæingar urðu bikarmeist-
arar. Stjörnunni er spáð titlinum í
árlegri spá í fyrsta sinn.
Stjarnan saknar fyrirliða síns,
Gunnhildar Yrsu Jónsdóttur, sem
spilar með Arna-Björnar í Noregi.
Þá er Edda María Birgisdóttir í
barneignarleyfi og Ashley Bares
farin til síns heima í Bandaríkj-
unum.
„Það er mjög erfitt að fylla skarð
Gunnhildar Yrsu. Við gerum þó
okkar besta og treystum á að
aðrir leikmenn stígi fram,“ segir
Harpa. Hún fagnar komu Dönku
Podovac frá ÍBV og Rúnu Sifjar
Stefánsdóttur sem kom frá Fylki.
„Danka mun koma til með að
skipta okkur máli í sumar og
Rúna hefur spilað mjög vel,“ segir
Harpa bjartsýn á framhaldið.
-ktd
Skarð fyrirliðans Gunnhildar Yrsu er vandfyllt
MEISTARAR 2011 Harpa Þorsteins-
dóttir fagnar með liðsfélögum sínum
eftir að titilinn vannst. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Fyrsta umferð Pepsi-deildar kvenna í fótbolta fer
fram í kvöld en þá fara fram fimm leikir.
Íslandsmeistarar Þór/KA hefja titilvörnina í
Boganum á móti FH og Íslandsmeistaraefnin
í Stjörnunni (samkvæmt árlegri spá fyrirliða,
þjálfara og forráðamanna) taka á móti ÍBV í
Garðabænum en ÍBV var einmitt eina liðið
sem náði að vinna Stjörnuna í Lengjubik-
arnum. Þessir tveir leikir hefjast báðir klukkan
18.00 en klukkan 19.15 verða síðan eftirtaldir
leikir: Þróttur R.-Selfoss, HK/Víkingur-Breiðablik
og Valur-Afturelding. Valskonur einokuðu deildina
í fimm ár frá 2006-2010 en undanfarin tvö tímabil
hefur kvennadeildin verið mun jafnari og tvö félög
fengið meistaratitil í fyrsta sinn.
Stelpurnar af stað í kvöld
HANDBOLTI Einar Jónsson þjálfari
Fram sveif á skýi eftir sigurinn á
Haukum í gær. Hann hafði fengið
silfur fimm ár í röð með kvennalið
félagsins og var staðráðinn í að
láta það ekki endurtaka sig nú
þegar hann yfirgefur félagið.
„Þetta rétt slapp fyrir horn.
Þetta er ótrúleg tilfinning og
ótrúlega gaman. Ég held að við
höfum átt þetta skilið. Þetta var
svakaleg barátta,“ sagði Einar
skömmu eftir að hafa fengið
gullpeninginn um hálsinn.
Tíundi titilinn hjá Fram
„Haukar eru með frábært lið og
frábæran þjálfara sem ég ber
mikla virðingu fyrir og gaman
að kljást við. Við unnum og
erum besta lið á Íslandi í dag.“
Framarar fögnuðu þarna Íslands-
meistaratitlinum annan daginn í
röð því stelpurnar urðu Íslands-
meistarar í fyrsta sinn í 23 ár
á sunnudaginn. Framkarlarnir
fylgdu því eftir með því að vinna
sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í
sjö ár en þetta er tíuundi Íslands-
meistaratitill félagsins í karla-
flokki.
Fram lagði grunninn að sigrin-
um með frábærum fyrri hálfleik
en liðið var sjö mörkum yfir í hálf-
leik 14-7. Magnús Erlendsson varði
65 prósent skota Haukanna í fyrri
hálfleik og Jóhann Gunnar Einars-
son skoraði 7 mörk úr 8 skotum í
hálfleiknum.
Frábærir í fyrri hálfleiknum
„Við spiluðum frábærlega í fyrri
hálfleik, nánast óaðfinnanlega.
Ég átti svo sem von á því að við
myndum ekki spila eins vel í
seinni hálfleik en þetta hafðist og
ég nenni ekki að spá í það hvernig
seinni hálfleikurinn var. Haukar
voru í bölvuðum vandræðum með
að skora allan leikinn og á meðan
leit þetta þokkalega út,“ sagði
Einar.
Fram var spáð sjötta sætinu
fyrir tímabilið og er því óhætt að
segja að liðið hafi komið verulega
á óvart í vetur.
„Okkur var spáð fallbaráttu og
okkar fyrsta markmið var að falla
ekki um deild. Svo fór að glitta í
úrslitakeppni eftir áramót og við
náðum upp mjög góðum leik og
takti og sjálfstrausti í okkar leik.
Við töpuðum örfáum leikjum og
erum heilsteyptir í okkar leik og
það skilaði þessu sem menn sjá í
dag,“ sagði Einar sem er á leiðinni
út í þjálfun.
Kveður liðið með titli
„Það er algjörlega frábært að
kveðja liðið með titli. Þetta hefur
verið frábær vetur og frábær ár
undanfarið hér í Fram. Ég er stolt-
ur að hafa fengið að starfa hérna
og þakklátur. Það er gaman að
enda þetta á þessum nótum. Það
gæti ekki verið betra,“ sagði Einar
sem kveður félagið sáttur.
„Ég var og er bærilega sáttur
við mitt starf hér undanfarin ár
og þó það hafi ekki skilað Íslands-
meistaratitlum þá höfum við verið
nálægt því og auðvitað hefði verið
svekkjandi að ná því ekki núna
en að sama skapi er það ennþá
skemmtilegra að ná því þegar
maður er kveðja,“ sagði Einar að
lokum. - gmi
Gullnir dagar í Safamýrinni
Framarar fögnuðu Íslandsmeistaratitli annan daginn í röð í gærkvöldi þegar karlalið félagsins vann 22-20
sigur á Haukum í fj órða leik liðanna í úrslitaeinvígi N1-deildar karla í handbolta. Fram vann einvígið því 3-1.
LOKSINS MEISTARI Einar Jónsson, þjálfari Fram, lyftir Íslandsbikarnum eftir sigur Framara í gærkvöldi. FRETTABLAÐIÐ/VALLI
SPORT