Fréttablaðið - 11.07.2013, Blaðsíða 1
FRÉTTIR
DJASS Á JÓMFRÚNNIVeitingastaðurinn Jómfrúin býður upp á sumartónleika
og á laugardaginn er það Reykjavík Swing Syndicate
sem kemur fram og flytur dagskrá helgaða sveiflu girnd
og bannáragleði. Tónleikarnir hefjast kl. 15.00 og
fara fram utandyra á Jómfrúartorginu. Aðgangur er
ókeypis.
D úkalagningameistarinn Einar Bein-teinsson hefur áralanga reynslu af lagningu gólfs og veggefnis en hann leggur meðal annars gólfteppi, gólf-dúka, veggfóður og flotgólf. Honum finnst talsvert skorta liti á íslensk heimili. „Ef þú skoðar íslensk híbýlablöð þá ræður svart, hvítt og grátt víðast hvar ríkjum. Erlendis er hins vegar mun algengara að fólk lífgiupp á vistarv
Einar flytur einnig inn efni frá hollenska
fyrirtækinu Rodeka. Þetta eru strigi, bambusveggfóður og veggfóður með upphleyptri plussáferð og segir hann þó
nokkurn áhuga fyrir því.Einar segir flesta sjá fyrir sér veggfóður
á heimili eða á stöku vegg en það býðurupp á fleiri möguleik
VEGGFÓÐUR FEGRAREINAR BEINTEINS EHF. KYNNIR Með lituðu eða munstruðu veggfóðri má
lífga upp á hvers kyns vistarverur og skapa tiltekin áhrif. Þá er hægt að leika
sér með efni og meðal annars setja bambus, pluss og striga á vegg.
SVEITASÆLA Með því að veggfóðra sumar-bústaðinn má ná fram notalegri sveita-stemningu.
40% afsláttur af fatnaði og skóm
TÆKIFÆRISGJAFIR
TILBOÐ
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
pHnífa aratöskur – 12 manna
14 tegundirVerð frá kr. 24.990
Kynningarblað Brimborg, Aflvélar, Vélfang, Konnasafn á Akureyri, fjörutíu ára jarðýta á Hellisheiði.
VINNUVÉLAR
FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2013
&VÖRUBÍLAR
Ný kynslóð Volvo-vörubifreiða
Volvo Truck-fjölskyldan
samankomin. Fjórir nýir
vörubílar bætast við fram-
leiðslulínu Volvo Truck í
september.
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Fimmtudagur
20
2 SÉRBLÖÐ
Vinnuvélar & vörubílar | Fólk
Sími: 512 5000
11. júlí 2013
161. tölublað 13. árgangur
Getur ekki hætt
Björn Pétursson hætti í vor sem
skólastjóri Melaskóla og var kvaddur
með virktum. Í haust hefur hann
hins vegar störf þar að nýju, þá sem
skólaliði. 2
Enginn ráðinn Sinfóníuhljómsveit
Íslands réð engan umsækjendenna
um starf tónlistarstjóra, heldur
endursamdi við sænskan ráðgjafa. 2
Skógur felldur á Ísafirði Skóg-
ræktarmönnum á Ísafirði gremst
að fella skuli skóg til að koma fyrir
varnargarði. 8
Ver hleranir Angela Merkel Þýska-
landskanslari kemur Bandaríkja-
mönnum til varna vegna njósna. 10
MENNING Fjögur systkini halda úti
vinsælu tískubloggi sem er tileinkað
móður þeirra. 50
SPORT Öll þrjú íslensku liðin í for-
keppni Evrópudeildar UEFA eiga
möguleika á að komast áfram. 42
SKOÐUN Við eigum eina umburðar-
lyndustu lögreglu í heimi, skrifar Gísli
Jökull Gíslason. 21
Enn
meiri
afsláttur
Opið til
kl. 21
í kvöld
Nú er opio allan
sólarhringinn
í Engihjalla
500GB VASAFLAKKARI
11.990
Bolungarvík 12° VSV 2
Akureyri 15° SSA 1
Egilsstaðir 18° SA 1
Kirkjubæjarkl. 11° SSA 3
Reykjavík 11° V 3
Rigning vestan til fyrri hluta dags en
styttir upp og léttir heldur til síðdegis.
Austanlands verður bjart með köflum í
fyrstu en rigning síðdegis. 4
STJÓRNSÝSLA Eðlilegt væri að gera
sömu kröfur til þeirra sem Alþingi
skipar í bankaráð Seðlabankans
og þeirra sem setjast í stjórnir
fjármála fyrirtækja, að mati stjórn-
sýslufræðings.
Í bankaráðinu situr nú vara-
þingmaðurinn Björn Valur Gísla-
son fyrir hönd Vinstri grænna.
Hann uppfyllir ekki hæfisskilyrði
um setu í stjórn slíkra fyrirtækja,
eins og reyndar margir sem setið
hafa í ráðinu á undan honum.
„Það er að sjálfsögðu fullkomlega
eðlilegt að þeir sem sitja í banka-
ráði Seðlabankans uppfylli sömu
kröfur og gerðar eru til þeirra
sem sitja í stjórnum fjármála-
fyrirtækja, opinberra fjármála-
fyrirtækja og Fjármála eftirlitsins,“
segir Ómar H. Kristmunds son, pró-
fessor við Háskóla Íslands.
Stöðuna megi hugsanlega skýra
með því að lög um Seðlabankann
séu frá árinu 2001, en kröfur um
hæfi stjórnenda og stjórnarmanna
fjármálafyrirtækja voru lögfestar
á síðasta kjörtímabili.
Ómar segir eðlilegt að setja
slíkar kröfur um bankaráðsmenn
þegar lög um Seðlabankann verða
endurskoðuð. Þangað til reyni þing-
menn væntanlega að nota reglur
um fjármálafyrirtæki sem viðmið.
Björn Valur segist treysta sér vel
til setu í ráðinu en að hins vegar
mætti hugsa sér að gera ákveðn-
ar kröfur til bankaráðsmanna.
„Hinn endinn á þessu máli er að ég
er ekkert sérstaklega hrifinn af því
að sérfræðingavæða þjóðina. Þetta
snýst líka um pólitíska stjórnun og
það verður ekki allt gert af sér-
fræðingum.“ - bj / sjá síðu 4
Herða ætti kröfur
til bankaráðsmanna
Prófessor í stjórnsýslufræði telur „fullkomlega eðlilegt“ að þeir sem sitji í bankaráði
Seðlabankans uppfylli sömu hæfisskilyrði og stjórnarmenn fjármálafyrirtækja.
Bankaráðsmaðurinn Björn Valur Gíslason segist treysta sjálfum sér vel til starfans.
FÓTBOLTI „Ég er nánast búin að
vera að bíða eftir þessari keppni
frá því á síðasta leik á EM
2009,“ segir sóknarmaðurinn
Hólmfríður Magnúsdóttir, sem
verður væntanlega í stóru hlut-
verki þegar Ísland mætir Noregi
í fyrsta leik liðanna á EM í Sví-
þjóð í kvöld.
Ísland fór á sitt fyrsta stórmót
þegar EM var haldið í Finnlandi
fyrir fjórum árum en alls eru
þrettán leikmenn í hópi Íslands
nú sem tóku þátt í því móti.
Stelpurnar töpuðu öllum sínum
leikjum þá en ætla sér lengra
nú.
„Við erum íþróttamenn og við
setjum ákveðnar kröfur á okkur
sjálfar. Við viljum fá aðeins
meira út úr þessu móti en bara
ánægjuna af því að fá að vera
með,“ segir markaskorarinn
Margrét Lára Viðarsdóttir.
- óój, esá / sjá síðu 40
EM í Svíþjóð hefst í kvöld:
Fjögurra ára
bið á enda
BORIN Í GULLSTÓL Varnarmaðurinn Sif Atladóttir fær ferð í gullstól hjá þeim Katrínu Ómarsdóttur og Margréti Láru Viðars-
dóttur. Fyrirliðinn Katrín Jónsdóttir, lengst til vinstri, og Hallbera Guðný Gísladóttir fylgjast glaðbeittar með. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKARÓ
ATVINNUMÁL Stjórnendur fiskeldisfyrirtækja
á Vestfjörðum segja stjórnvöld kæfa fisk-
eldisfyrirtæki með óskilvirku kerfi. Sjávar-
útvegsráðherra hyggst gjörbylta kerfinu sem
nú er notað við leyfisveitingar í fiskeldi.
Leyfi fyrir um 7.000 tonna fiskeldi er nú
fast í kerfinu, ásamt fleiri málum. Fyrirtæki
hafa beðið í rúm tvö ár eftir svörum um það
hvort stækkun þurfi að fara í umhverfis mat,
sem mun taka önnur tvö ár. Framkvæmda-
stjóri fiskeldisfyrirtækisins Fjarðarlax segir
það gremjulegt að erfið asti ljár í þúfu þess-
ara fyrirtækja skuli vera stjórnvöld.
Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs-
ráðherra hefur hafist handa við breytingu
á kerfinu. Hann segir stærstu breytinguna
felast í því að leyfisveitingin fari í
skipulags ferli í stað flókins umsagnar-
og leyfisferlis hjá mörgum stofnunum og
umsagnaraðilum. Í dag funda fulltrúar
frá Landssambandi fiskeldisstöðva með
Sigurði Inga um málið. - jse, ósk
Sjávarútvegsráðherra hyggst gjörbreyta ríkjandi kerfi um leyfisveitingar:
Fiskeldisfyrirtæki teppt í kerfinu
SIGURÐUR INGI
JÓHANNSSON
Ég er ekkert sérstak-
lega hrifinn af því að sér-
fræðingavæða þjóðina.
Björn Valur Gíslason
bankaráðsmaður í Seðlabanka Íslands
BANDARÍKIN Bandarísk flugfreyja
hyggst höfða mál á hendur fyrr-
verandi vinnuveitenda sínum,
American Airlines, eftir að flug-
félagið sakaði hana um að hafa
smyglað rottum með sér inn í flug-
vél. Átti flugfreyjan að hafa falið
þær í nærbuxum sínum.
Engar rottur fundust hjá flug-
freyjunni þegar leitað var á henni
við lendingu en hefur hún samt
sem áður verið á svörtum lista
hjá amerískum flugfélögum eftir
atvikið.
Hún segist nú þjást af verulegri
áfallastreituröskun og stefnir hún
að því höfða dómsmál
á hendur
flugfélaginu
vegna þess
skaða sem hún
hefur hlotið af
ásökununum.
- le
Flugfreyja ætlar í mál:
Átti að hafa
smyglað rottum
í nærbuxunum