Fréttablaðið - 11.07.2013, Síða 20
11. júlí 2013 FIMMTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÁ DEGI
TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Sigríður Björg Tómasdóttir, sigridur@frettabladid.is HELGAREFNI: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is
VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000
eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á
landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
Ekki kom ákvörðun forsetans um veiði-
gjöldin á óvart. Forsetinn er ekkert ólík-
indatól, hann er sjálfum sér samkvæmur
um að gera það sem honum sýnist þegar
honum sýnist.
Blaðamannafundur forsetans kom hins
vegar nokkuð á óvart. Hingað til hefur
mér fundist forsetinn gæta þess að tala
ekki niður til fólksins í landinu, þó hann
hafi á stundum talað niður til stjórnvalda
og löggjafans.
Nú lýsti hann undrun sinni á því að
einhverjum hefði dottið í hug að hann
mundi ekki staðfesta lögin. Það var ekki
nokkur ástæða til að ætla það, samt tók
hann á móti þeim sem stóðu að undir-
skriftasöfnuninni á Bessastöðum, þó
að hann hefði alveg getað látið þá skila
undir skriftunum á skrifstofuna. Svona
er nú forsetinn alþýðlegur, mátti á
honum skilja.
Umhugsunarefni
Forsetinn er fyrrverandi fjármálaráð-
herra, sagð´ann og fyrrverandi prófessor
í stjórnmálafræði svo hann veit hvað
hann er að gera. Ég er nú ekki alveg viss
um að það sé vottorð upp á óskeikulleika
að hafa gegnt hvoru tveggja virðulegum
embættum, en látum það liggja á milli
hluta.
Ummæli forsetans við forsvarsmenn
undirskriftasöfnunarinnar um að ekki
hafi verið hávær mótmæli við lækkun
veiðigjaldsins eru mér umhugsunarefni.
Í sama anda voru ummælin á blaða-
mannafundinum um stuttan ræðutíma
um málið í þinginu.
Er forsetinn að mæla bót þeirri stjórn-
málamenningu sem ríkti hér á síðasta
kjörtímabili? Stjórnarandstaðan beitti
málþófi í flestum málum, ekki bara í
Icesave og stjórnarskrármálinu. Það jók
ekki virðingu Alþingis.
Í einu orðinu tala forsetinn og ríkjandi
stjórnvöld um víðtæka sátt og hinu orð-
inu er ekki nógu mikill hamagangur í
andmælum.
Vissulega breytir veiðigjaldið ekki
fiskveiðistjórnunarkerfinu, til þess þarf
róttækari aðgerðir. Með veiðileyfagjald-
inu fær eigandi auðlindarinnar, þjóðin,
þó brot af arðinum af hagnýtingu henn-
ar.
Um og yfir 70% þjóðarinnar er á móti
lækkun veiðigjaldsins og kvótakerfinu
eins og það er útfært.
Í orðaforða forsetans og hinna nýju
valdhafa er „víðtæk sátt“ að 70% þjóðar-
innar láti í minni pokann fyrir skoðun-
um forsetans og sérhagsmunaafla innan
Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks.
Um forsetann og veiðigjaldið
SJÁVAR-
ÚTVEGSMÁL
Valgerður
Bjarnadóttir
alþingismaður
Ó
lafur Ragnar Grímsson forseti Íslands tók rétta
ákvörðun þegar hann ákvað að staðfesta lögin um
lækkun veiðigjaldsins. Hann hefði reyndar getað sparað
sér krúsidúllurnar í rökstuðningnum og bara sagt sem
svo að forseti ætti ekki að grípa fram fyrir hendurnar á
réttkjörnu Alþingi.
Forsetinn er líka á réttu
róli þegar hann hvetur í yfir-
lýsingu sinni til þess að Alþingi
og ríkisstjórn kappkosti að „ná
varanlegri og víðtækri sátt um
skipan fiskveiða og arðgreiðslur
til þjóðarinnar“. Hann bendir
réttilega á að sá fjöldi undir-
skrifta sem safnaðist á skömmum
tíma vegna laganna um lækkun veiðigjaldsins sýnir að „almenn-
ingur hefur ríkan vilja og réttlætiskennd í þessum málum“.
Viðbrögð forsvarsmanna stjórnarliðsins í Fréttablaðinu í gær
benda til að þeir átti sig á þessu líka. Sigurður Ingi Jóhannsson
sjávarútvegsráðherra segir að í ljósi undirskriftasöfnunarinnar
muni ríkisstjórnin leggja enn meira á sig til að ná fram víðtækari
sátt í samfélaginu um stjórnun fiskveiða.
Ráðherrann segir að til þessa hafi fyrst og fremst verið unnið
að sátt við hagsmunaaðila í sjávarútvegi en nú þurfi að taka
umræðuna við byggðarlög landsins og ná til sem flestra. „Hluti
af því er ekki síst að auka skilning í samfélaginu á því hvernig
sjávarútvegurinn virkar og ég hef fulla trú á því að okkur takist að
ná fram víðtækari sátt,“ segir Sigurður Ingi.
Vonandi fylgir hugur máli hjá ríkisstjórninni. Hún þarf að leggja
sig fram í þessari vinnu. En hún er raunar líklegri en síðasta ríkis-
stjórn til að skapa sátt um sjávarútveginn.
Stjórnarflokkarnir hafa verið útmálaðir sem stjórnmála-
armur LÍÚ en þegar betur er að gáð hafa þeir ekki hróflað við
grundvallar atriðunum í þeirri nýju skipan sem komst á í tíð fyrri
stjórnar. Eins og forsetinn bendir á í yfirlýsingu sinni verður áfram
innheimt bæði almennt og sérstakt veiðigjald, samtals um tíu millj-
arðar króna. Sömuleiðis eru stjórnarflokkarnir inni á því að gera
eigi tímabundna samninga við útgerðina um nýtingarrétt hennar á
auðlindinni en ekki úthluta þeim réttindum varanlega.
Það eru ekki mörg ár síðan að engum hefði dottið í hug að pólitísk
samstaða gæti í raun náðst um þessi grundvallaratriði. Það hefur
verið komið mjög rækilega til móts við það réttlætissjónarmið að
þjóðin sé eigandi auðlindarinnar og eigi að fá gjald fyrir afnotin af
henni.
Þáttur í víðtækri sátt um sjávarútveginn er líka að aðrar
atvinnugreinar sem nýta takmörkuð gæði í eigu almennings, eins
og til dæmis orkuvinnsla, geri sambærilega nýtingarsamninga og
greiði sambærilegt gjald fyrir afnotaréttinn.
Núverandi stjórnarflokkar hafa ekki þörf fyrir að útmála
sjávarútveginn sem pólitískan andstæðing og ættu fyrir vikið að
geta aukið skilning á því hvernig sjávarútvegurinn virkar, sem
síðasta ríkisstjórn reyndi aldrei. Þótt gjaldtakan sé sjálfsögð má
hún ekki ganga svo langt að athafnamenn séu ekki reiðubúnir að
taka þá áhættu sem því fylgir að reka sjávarútvegsfyrirtæki. Lögin
sem síðasta stjórn setti gengu of langt og komu í raun í veg fyrir
arðbæran rekstur margra sjávarútvegsfyrirtækja.
Flestir hljóta að skilja að sátt sem þýðir að atvinnugreinin er
ekki arðbær er lítils virði.
Rétt ákvörðun forsetans um veiðigjaldalög:
Sáttin um
sjávarútveginn
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
Okkar forna trú
Grein Ólafs F. Magnússonar um
moskubyggingu í Reykjavík, sem
birtist í Morgunblaðinu í gær, vakti
talsverða athygli. Deila má um hvort
hún var verðskulduð. Í stuttu máli
er Ólafur þeirrar skoðunar að ekki
eigi að leyfa múslimum að byggja
hér mosku. Minni athygli hefur
hins vegar verið beint að niðurlagi
greinarinnar, sem hefði ef til vill
verðskuldað hana enn frekar:
„Minnumst þess ávallt að
okkar forna trú var á margan
hátt heiðarlegri og meira í
samræmi við skapgerð og
sómatilfinningu okkar en
hin innflutta kristna trú
er,“ skrifar Ólafur, og
bætir við að við eigum
að hafa ásatrúna í
heiðri og rækta hana sem arfleifð
okkar. Það má því kannski segja að
það örli á samkvæmni í málflutningi
Ólafs.
Bönkunum að kenna
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra tjáði sig um skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis um
Íbúða lánasjóð í Morgunútvarpi
Rásar 2 í gær. Þar sagði hann
að ekki væri hægt að kenna
90 prósenta lánunum sem
Framsóknarflokkurinn lofaði
fyrir kosningarnar 2003 um
vandræði sjóðsins. Fasteigna-
bólan hefði orðið til þegar
bankarnir
komu inn á
íbúðamark-
aðinn.
Gamalt stef
Þetta er kunnuglegt stef. Guðmundur
Bjarnason, fyrrverandi forstjóri
sjóðsins, talaði á svipuðum nótum
í yfirlýsingu í upphafi vikunnar
og ef við leitum enn aftar í tíma
þá má finna nákvæmlega sömu
skýringar hjá þeim stjórnmála-
mönnum og starfsmönnum hins
opinbera sem bornir voru sökum
um slæleg vinnubrögð í skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis árið
2010. Þeir gerðu ekkert rangt
– þetta var allt bönkunum að
kenna. Fljótlega er von á skýrslu
rannsóknarnefndar þingsins
um sparisjóðina. Við megum
væntanlega búast við
sömu frösunum eftir
útgáfu hennar.
stigur@frettabladid.is
www.fronkex.is
Súkkulaðibitakökur
kemur við sögu
á hverjum degi