Fréttablaðið - 11.07.2013, Blaðsíða 26
11. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 26TÍMAMÓT
„Ég byrjaði tíu ára í skátunum og það
var gæfuspor. Þar naut ég útivistar
og ævintýra og sá náttúruna og lífið
á nýjan hátt,“ segir Bragi Þórðarson,
fyrrum bókaútgefandi á Akranesi. Í til-
efni áttræðisafmælis var hann nýlega
sæmdur merkinu skátakveðja úr silfri
en merkið er veitt þeim sem hafa unnið
skátahreyfingunni mikið gagn og
starfað af dugnaði og fórnfýsi.
„Ég veit ekki af hverju félagið tók
upp á því að heiðra mig,“ segir Bragi.
„Mér var sagt að mæta niður í skáta-
hús og þar var bara fullt af skátum. Þá
var þetta afmælishóf fyrir mig, terta,
skátakór og hljómsveit og skáta höfðingi
Íslands mættur. Mér fannst þetta held-
ur mikið í lagt því mín upplifun er sú
að ég hafi bara verið þiggjandi allra
þeirra gæða sem skáta starfið býður
upp á,“ segir Bragi. En hefur hann
ekki verið að kenna hinum yngri og
koma þeim til þroska? „Jú, ég hef verið
virkur í félaginu alla tíð og var félags-
foringi um tíma,“ viður kennir hann
og segir stöðu skáta hreyfingarinnar
nokkuð góða á Akranesi þó hún sé allt
öðruvísi en þegar hann var ungur. „Við
erum með góða skátamiðstöð í Skorra-
dal. Þar höfum við stundað ræktun og
kennt krökkunum að umgangast skóg
og róa á vatninu.“
Eldað á hlóðum í mikilli rigningu
Skátafélag Akraness var stofnað árið
1952 en Bragi segir sögu skátastarfs á
Skaganum þó teygja sig aftur til 1926.
Hann fór í sína fyrstu útilegu tíu ára
í skála sem skátarnir áttu uppi við
Akrafjall og er búinn að fara í marg-
ar útilegur síðan og á mörg skáta-
mót. „Eftirminni legustu ferðina fór
ég 1953. Þá fórum við tíu saman á
alheimsmót skáta í Kandersteg í Sviss.
Þar var eldað á hlóðum í mikilli rign-
ingu allan tímann sem mótið stóð. Við
vorum sex vikur í þessari ferð, ferð-
uðumst í lestum til sex landa í Evrópu
og sváfum alls staðar í tjöldum, meðal
annars í London og París. Þetta var
mikil og góð lífsreynsla.“
Rithöfundur og útgefandi
Bragi rak Prentverk Akraness í 20 ár
og ásamt konu sinni Elínu Þorvalds-
dóttur rak hann Hörpu útgáfuna í
mörg ár. Síðan stofnuðu þau hjónin
búð á Akranesi sem hét Bóka skemman
og seldu þar meðal annars tölvur og
tölvubúnað. „Bókaskemman var fyrsta
tölvuverslun á Vesturlandi. Þá voru
Hvalfjarðargöngin ekki komin og fólk
leitaði mikið til okkar,“ segir Bragi og
kveðst jafnframt hafa skrifað bækur
og unnið útvarpsþætti. „Ég gerði
60 útvarpsþætti með þjóðlífs efni úr
Borgar firði og af Akranesi. Á þeim
þáttum byggðust nokkrar af bókunum
sem við gáfum út og við vorum með
efnið líka á hljóðbókum og diskum,“
lýsir Bragi. „Það var sem sagt heil-
mikið í gangi.“
Nú er Bragi hættur bókaútgáfu en
er enn að skrifa. Nítjándu bókina gaf
hann út fyrir síðustu jól, bæði sem raf-
bók og kilju, og er með verkefni í tölv-
unni en kveðst vilja sjá fyrir endann á
því áður en hann tjái sig um það. „Mér
finnst ég afskaplega lánsamur að hafa
getað fengist við þetta allt og vera við
góða heilsu, hún er lykillinn að þessu
öllu.“ gun@frettabladid.is
Fékk skátakveðju úr silfri
Braga Þórðarsyni, fyrrverandi bókaútgefanda, var nýlega komið á óvart er hann var boðaður
í skátahúsið á Akranesi og heiðraður af skátahreyfi ngunni vegna 80 ára afmælis hans.
ÞAKKAÐI FYRIR SIG Bragi sagði hugsjónir skátahreyfingarinnar hafa mótað líf sitt en
vináttan sem hann hefði notið innan hennar væri það besta af öllu. MYND/CARSTEN KRISTINSSON
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ERLA LÍSA SIGURÐARDÓTTIR
Völvufelli 44, Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
sunnudaginn 23. júní sl. Útförin fer
fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík,
mánudaginn 15. júlí kl. 15.00.
Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði.
Kolbrún Pálína Hafþórsdóttir Páll Heiðar Magnússon
Sigríður Einarsdóttir Ragnar Þórarinn Bárðarson
Jónas Steindór Óskarsson María Erla Hilmarsdóttir
Sigurður Óskar Óskarsson Þórunn Edda Björgvinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, sambýliskona,
dóttir, systir, tengdamóðir og amma,
NANNA SVAVARSDÓTTIR
lést laugardaginn 29. júní sl. á
Borgarspítalanum. Útför fer fram
frá Fossvogskirkju mánudaginn
15. júlí kl. 13.00. Kveðjuathöfn fer
fram í Hamarsseli, Hamarsfirði fimmtudaginn
18. júlí kl. 14.00 og jarðsett verður í Djúpavogskirkjugarði.
Árni Bergmann Jóhannsson
Linda Rós Jónsdóttir
Steinar Már Ævarsson
Guðný Jónsdóttir
systkini, tengdabörn og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGRÍÐUR JÓNASDÓTTIR
til heimilis að Funalind 1, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
sunnudaginn 7. júlí sl.
Jarðsungið verður frá Kópavogskirkju
mánudaginn 15. júlí kl. 13.00.
Jóhanna Valdimarsdóttir Grétar Örn Marteinsson
Anna Valdimarsdóttir Guðmundur Örn Jónsson
Magnús Helgason
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGURVEIG JÓHANNSDÓTTIR
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður Miðvangi 41,
lést laugardaginn 6. júlí. Útför hennar
fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
fimmtudaginn 18. júlí kl. 13.00.
Þuríður Guðmundsdóttir Kristján B. Kristjánsson
Guðríður Guðmundsdóttir Alf H. Pedersen
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
amma, dóttir, systir og tengdamóðir,
ELÍSABET ÓLADÓTTIR
Suðurgötu 13, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum Fossvogi
laugardaginn 6. júlí. Útför hennar
fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
miðvikudaginn 17. júlí kl. 13.00.
Jónas Sigurðsson
Arndís Jónasdóttir Brynjar Þór Gestsson
Árný Jónasdóttir Jón V. Guðmundsson
Óli Hrafn Jónasson
Brynjar Jónasson
Andri Jónasson
Ingibjörg J. Gunnlaugsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
HELGA SVANLAUGSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
Kársnesbraut 27, Kópavogi,
lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund,
föstudaginn 5. júlí. Útförin fer fram frá
Kópavogskirkju, mánudaginn 15. júlí
kl. 15.00. Jarðsett verður í Akureyrarkirkjugarði miðvikudaginn
17. júlí kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Jónas Finnbogason Eyrún Eyþórsdóttir
Aðalbjörg J. Finnbogadóttir Bjarni Ingvarsson
Svanlaug R. Finnbogadóttir Ómar Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkonan mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRA SIGRÚN GUNNARSDÓTTIR
blómaskreytingameistari,
sem varð bráðkvödd að heimili sínu
29. júní, verður jarðsungin frá Grafarvogs-
kirkju fimmtudaginn 11. júlí kl. 13.00.
Eggert Ólafsson
Guðrún Eggertsdóttir Jón Viðar Óskarsson
Kristín Eggertsdóttir Kjartan Flosason
Stella Bára Eggertsdóttir
Gunnar Þór Eggertsson Stephenie Lyn Surbey
Sigrún Eggertsdóttir
Ólöf Dröfn Eggertsdóttir Adam Charles Drennan
barnabörn og langömmubörn.
Fjölbreytt úrval legsteina
Frí áletrun og uppsetning
Sjá nánar á granithollin.is sími 555 38 88
Bæjarhrauni 26 (á móti Fjarðarkaupum)
Bæjarhrauni 26 - 220 Hafnarfirði
www.granithollin.is
Sími 555 38 88
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
HREFNA EINARSDÓTTIR
Hvanneyrarbraut 2, Siglufirði,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Siglufirði
föstudaginn 5. júlí sl. Útför hennar verður
gerð frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn
13. júlí kl. 14.00.
Kristrún Sigurbjörnsdóttir
Sigrún Friðriksdóttir Jens G. Mikaelsson
Kolbrún Friðriksdóttir Hjálmar Jóhannesson
Sigurður Friðriksson
Stefán Einar Friðriksson Jónbjörg K. Þórhallsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför kærs frænda okkar,
JÓNS GESTS SIGURÐSSONAR
frá Tungu.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
Heilbrigðisstofnunarinnar á Hvammstanga
fyrir góða umönnun.
Systkinabörn.