Fréttablaðið - 11.07.2013, Page 50
11. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38
BAKÞANKAR
Bergs Ebba
Benediktssonar
Glamúr og glæsileiki
Hasar- og ævintýramyndin Pacifi c Rim var frumsýnd í Los Angeles í myndinni.
Það er Sons of Anarchy-leikarinn Charlie Hunnam sem fer með aðalhlutverkið í
myndinni en Idris Elba og Rinko Kikuchi fara einnig með stór hlutverk.
MYNDARLEGUR Charlie Hun-
nam er ein skærasta stjarnan
í Hollywood um þessar
mundir. Hann leikur
aðalhlutverkið
í Pacific Rim.
TÖFF Í TAUINU
Leikarinn Ben
Barnes, sem
meðal annars lék
í The Chronicles
of Narnia, tók
sig vel út á rauða
dreglinum.
GULLFAL-
LEG LEIK-
KONA Rinko
Kikuchi var
mætt í sínu
fínasta pússi á
frumsýninguna.
HUGGULEG SAMAN
Þau Charlie Day
og Mary Elizabeth
Ellis voru flott.
FLOTTUR
LEIKSTJÓRI
Guillermo del
Toro leikstýrir myndinni,
en hann var mættur á rauða
dregilinn með Lorenzu
Newton upp á
arminn.
Eitt þætti mér gaman að vita. Hversu stórt hlutfall ofbeldisverka er framið
á fastandi maga? Án þess að gera lítið úr
alvarleika málsins grunar mig að þrátt
fyrir marga aðra augljósa áhættuþætti ger-
enda, eins og vímuefnanotkun og persónu-
leikabrenglanir, séu ofbeldismenn oftast
svangir og pirraðir þegar þeir láta til skar-
ar skríða. Það þarf ekki vísindi til staðfest-
ingar á því hversu mikil áhrif hungur hefur
á geðslag fólks. Það tekur nokkrar vikur að
deyja úr hungri en bara nokkrar mínútur
að missa stjórn á skapi sínu hafi maður
ekki neytt matar. Ég tek það skýrt fram að
hungur er ekki afsökun fyrir rangri hegð-
un en það getur samt verið áhrifavaldur.
HUNGUR er undarlegt fyrirbæri. Ef
maður hefur ekki borðað í nokkra
klukkutíma er maður síður en
svo í heilsufarslegri hættu. Samt
sendir líkaminn boð sem heilinn
túlkar á versta veg. Lundarfarið
vanstillist. Maður finnur fyrir
pirringi og vanmætti, jafnvel
ofsóknaræði, og allt virðist von-
laust. Einföld verkefni verða
óyfirstíganleg og næmnin fyrir
fínleika í samskiptum hverfur.
Orð breytast í kurr, kurr breyt-
ist í garg og brátt fer sá svangi að berja í
borð og annað sem fyrir verður. Lokatil-
finning hungursins er svo reiðin. Svangur
maður er reiður maður. Ég fullyrði þetta
án þess að hika enda eru orðin keimlík.
Hungur er skylt angri sem enskumælandi
nota fyrir reiði sbr. „angry“, angrið er svo
náskylt því að vera svangur. Það er ekki til-
viljun að þessi orð bæði hálf- og heilríma.
HUNGRAÐ fólk er hættulegt. Ekki bara
vegna ofbeldisverka. Hungrað fólk tekur
vondar ákvarðanir. Svangur maður í mat-
vörubúð kaupir bara kex, flögur og sósur.
Sesar treysti ekki Cassíusi því hann leit út
fyrir að vera svangur. Kannski eru allar
hörmungar heimsins hungri að kenna.
Kannski var Ghengis Khan gjarn á að fá
blóðsykurfall. Milljónir manna í valnum.
Tvær heimsálfur í uppnámi. Svangur
maður á hesti alveg snarvitlaus. Kannski
eru „hungrið“ og „hrunið“ líka af sömu rót.
Kannski var Bjarni Ármannsson hungur-
morða að hugsa um maraþonhlaup allan
daginn og tók þess vegna hörmulegar
ákvarðanir. Kannski.
AÐ lokum. Áður en þið dæmið þessi skrif
fáránleg og heimskuleg: fáið ykkur djúsglas
og tvö harðsoðin egg.
Hungur. Angur. Reiði. Afl eiðingar.
DAGSKRÁIN ER Á WWW.BIOPARADIS.IS OG MIDI.IS
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
AKUREYRI
EMPIRE
H.S.S. - MBL
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIN
GILDA EKKI Í BORGARBÍÓ
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
WORLD WAR Z 3D KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
WORLD WAR Z 3D LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
THE HEAT KL. 5.30 -8 -10.30 12
THIS IS THE END KL. 5.30 - 8 - 10.30 16
THE LONE RANGER KL. 5 - 8 12
WHITE HOUSE DOWN KL. 11 16
EPIC 2D ÍSL.TAL KL. 3.20 L
EPIC 3D ÍSL.TAL KL. 3.20 L
THE HEAT KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
THIS IS THE END KL. 5.30 - 8 - 10.30 16
WHITE HOUSE DOWN KL. 8 - 10.50 16
THE PURGE KL. 10.35 16
THE INTERNSHIP KL. 5.25 - 8 7
EPIC 3D ÍSL.TAL KL. 5.45 L
THE HEAT KL. 5.40 - 8 - 10.10 12
THIS IS THE END KL. 5.40 16
WHITE HOUSE DOWN KL. 8 - 10.10 16 Miðasala á: og