Fréttablaðið - 11.07.2013, Page 52
11. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 40
Óskar Ófeigur Jónsson
ooj@frettabladid.is
Skrifar frá Svíþjóð
EM KVENNA
2013
0 DAGAR Í FYRSTA LEIK ÍSLANDS
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í
fótbolta, er einn af fimm þjálfurum á EM í Svíþjóð 2013 sem voru
einnig með lið sitt í Finnlandi fyrir fjórum árum.
Hinir eru Kenneth Heiner-Möller (Danmörku), Silvia Neid
(Þýskalandi), Hope Powell (Englandi) og Bruno Bini (Frakk-
landi). Hope Powell er sú eina í hópnum sem er komin
með lið sitt á þriðju úrslitakeppni EM í röð.
Sigurður Ragnar í fámennum hópi
SPORT
BRUGÐIÐ Á LEIK Það var létt yfir leikmönnum íslenska landsliðsins á hótelinu í gær. Hér eru Katrín Ómarsdóttir, Margrét Lára
Viðarsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir að fara yfir málin eftir spennandi borðtennisviðureign. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKARÓ
FÓTBOLTI Tvö jafntefli litu dags-
ins ljós á opnunardegi EM í Sví-
þjóð en heimamenn gerðu 1-1
jafntefli við Dani í opnunarleikn-
um. Stine Petersen, markvörður
Dana, var hetja sinna manna en
hún varði tvær vítaspyrnur í síð-
ari hálfleik.
Ítalía og Finnland gerðu
markalaust jafntefli í hinni
viður eign dagsins. - esá
Varði tvö víti
HETJA Samherjar Stine Petersen fagna
henni eftir að 1-1 jafntefli gegn Svíum
var í höfn í gær. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Þær eru reynslunni ríkari
frá því í Finnlandi fyrir fjórum
árum og í hefndarhug eftir ósann-
gjarnt tap í síðasta leik á móti
Noregi. Stelpurnar okkar hefja
leik á EM í Svíþjóð í kvöld og nú
á spennustigið að vera rétt. Lands-
liðsfyrirliðinn Katrín Jónsdóttir,
markadrottningin Margrét Lára
Viðarsdóttir og landsliðsþjálfar-
inn Sigurður Ragnar Eyjólfsson
sjá mikinn mun á íslenska liðinu
frá því á fyrsta Evrópumótinu árið
2009.
„Það var frábær upplifun að hafa
fengið að fara á það mót. Við erum
íþróttamenn og við setjum ákveðn-
ar kröfur á okkur sjálfar. Við vilj-
um fá aðeins meira út úr þessu
móti en bara ánægjuna af því að
fá að vera með. Við ætlum okkur að
fara upp úr riðlinum, það er yfir-
lýst markmið okkar og við erum
ekkert hræddar við að sýna það og
segja,“ segir Margrét Lára Viðars-
dóttir. Hún náði ekki að skora á
EM í Finnlandi en er nú laus við
meiðslin og tilbúin í slaginn.
Bara venjulegur fótboltaleikur
Katrín Jónsdóttir fyrirliði rifjar
upp stressið sem var erfiður and-
stæðingur þegar liðið steig sín
fyrstu spor á stórmóti. „Við vorum
margar svolítið stressaðar fyrir
fyrsta leikinn og það var hátt
spennustig í liðinu. Það er rosa-
lega gott að svona margar í liðinu
hafa upplifað þetta áður og geta
um leið miðlað þeirri reynslu til
hinna. Þótt þetta sé rosalega stórt
mót og miklir leikir þá er þetta
samt sem áður bara venjulegur
fótboltaleikur. Maður má ekki láta
það draga orku frá sér heldur nýta
alla orkuna í fótboltann inni á vell-
inum,“ segir Katrín.
Margrét Lára efast ekki um
að íslenska liðið sé betra í dag.
„Það er rosalega mikill munur. Þá
vorum við að koma á okkar fyrsta
stórmót og nánast enginn leikmað-
ur liðsins hafði reynslu af því að
spila erlendis. Núna erum við allar
reynslunni ríkari þegar við spilum
á þessum háa standard sem er spil-
aður erlendis. Ég tel okkur vera
með mikið betri leikmenn og betra
lið,“ segir hún og bætir við:
„Það var svolítið spennufall að
komast inn á mótið fyrir fjórum
árum en núna finnst mér rosaleg
yfirvegun í hópnum. Þetta er bara
eins og hver annar landsleikur þó
að við séum að fara inn á stórmót á
morgun. Gæsahúðin og þjóðarstolt-
ið eru alltaf til staðar en þetta er
bara eins og hver annar leikur. Það
er nefnilega mjög mikilvægt að við
höldum spennustiginu réttu,“ sagði
Margrét Lára.
Landsliðsþjálfarinn Sigurður
Ragnar Eyjólfsson valdi marga
leikmenn í hópinn núna sem voru
með á EM 2009. „Við höfum þrett-
án leikmenn sem voru með í Finn-
landi fyrir fjórum árum. Þær hafa
reynsluna og það er ekki alveg
eins mikið stress hjá þeim,“ segir
Sigurður Ragnar og hann viður-
kennir að það sé erfiðara að velja
byrjunar liðið núna en fyrir fjórum
árum.
Mun nota fleiri leikmenn
„Já, ég held það. Fyrir síðasta
mót þá vorum við nánast búnir að
velja byrjunarliðið í fyrsta undir-
búningsleik á árinu og keyrðum á
því liði alla undirbúningsleikina
og síðan í mótinu. Þetta er öðru-
vísi núna því við munum sjá fleiri
leikmenn taka þátt í þessum leikj-
um. Ég mun spila á aðeins fleiri
leikmönnum því við höfum meiri
breidd. Við höfum þróað leik okkar
mikið áfram sóknarlega síðan þá.
Við spiluðum fyrst og fremst mjög
þétta vörn í mótinu síðast og gátum
lítið fram á við í því móti,“ segir
Sigurður Ragnar.
Hefur beðið í fjögur ár
Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði
strax á sjöundu mínútu í fyrsta
leik á EM 2009 en íslensku stelp-
unum tókst ekki að bæta við marki
þær 263 mínútur sem eftir lifðu af
mótinu. „Ég er nánast búin að vera
að bíða eftir þessari keppni frá því
á síðasta leik á EM 2009. Vonandi
náum við að skora meira en eitt
mark í þessari keppni. Ég er viss
um að við náum að skapa okkur
einhver færi. Það er bara að nýta
þau,“ sagði Hólmfríður og það er
hægt að taka undir þau orð.
Fimmtudag 11. júlí kl. 20:00
STJARNAN – FH
PEPSI–DEILDIN
EINN AF
LYKIL LEIKJUM
ÁRSINS!
ALLIR Á VÖLLINN!
Rosalegur munur á liðunum
Fyrir fj órum árum fór kvennalandslið Íslands á sitt fyrsta stórmót. Síðan hafa þær margar talað um að þær
geti ekki beðið eft ir að fá annað tækifæri. Það kemur í kvöld þegar Ísland mætir Noregi á EM í Svíþjóð.
FÓTBOLTI Sigurður Ragnar
Eyjólfsson landsliðsþjálfari
segir það greinilegt á æfingum
liðsins að það ætla margar
sér að vera í hópi
þeirra ellefu sem
byrja á móti Noregi í
kvöld. „Það er eftir-
vænting í hópnum
og við sáum það
á æfingunni í gær
þar sem það var
hart barist og vel
tekið á því. Þær
vilja allar vera
í liðinu,“ segir
Sigurður Ragnar. Íslenska liðið hefur
tapað sex af sjö leikjum ársins og
hefur mátt þola meiri gagnrýni en
áður. Sigurður Ragnar gerir sér fulla
grein fyrir því að liðið hefur valdið
mörgum vonbrigðum.
„Fólk er farið að gera miklar kröfur
til liðsins og hefur kannski ekki mikla
þolinmæði fyrir því ef við náum ekki
árangri á hverju ári og erum alltaf að
bæta okkur. Þetta ár hefur verið eitt
skref til baka frá því sem hefur verið
undanfarin ár. Við höfum fengið
gagnrýni og það er þroskandi ef
maður tekur rétt á henni og reynir að
gera betur. Það höfum við gert sem
hópur og gagnrýni verður maður að
svara inni á vellinum,“ segir Sigurður
Ragnar.
En má líta á þennan leik í kvöld
sem úrslitaleik? „Það eru þrír leikir
í riðlinum og það getur allt gerst en
þetta er gríðarlega mikilvægur leikur.
Það að ná að byrja mótið vel og ég
tala ekki um að ná í þrjú stig. Þá
værum við komin í mjög góða stöðu.
Eitt stig væri ekki heimsendir en núll
stig væri mjög, mjög slæmt. Þessi
leikur er gríðarlega mikilvægur,“
sagði Sigurður Ragnar. - óój
Eitt stig væri enginn heimsendir
FÓTBOLTI Katrín Jónsdóttir, fyrir-
liði íslenska liðsins, er ekki að fara
að spila fyrsta leikinn við Noreg á
ferlinum. Hún er með það á hreinu
hvað íslenska liðið þarf að gera í
Kalmar í kvöld.
„Við þurfum að koma vel
skipulagðar inn í leikinn,
sérstaklega í vörn. Það er
rosalega mikilvægt að halda
markinu okkar hreinu því ég
er alveg viss um að við
munum fá færi. Stemn-
ing og barátta er samt
það mikilvægasta,“
segir Katrín og
bætir við: „Auðvitað
er taktík líka mikil-
væg en í svona jöfnum leik eins og
þessir leikir við Norðmenn hafa
verið, þá hefur það verið dags-
formið sem réði úrslitum. Það lið
sem vill þetta meira vinnur þenn-
an leik,“ sagði Katrín.
Ísland og Noregur eru
bæði lið sem vilja láta
finna fyrir sér inni á vell-
inum. „Ég held að það verði
alveg rosaleg harka í
þessum leik. Við getum
alveg verið vinkonur
utan vallar en inni á
vellinum á morgun (í
kvöld) þá verður þetta
bara stríð,“ sagði
Katrín. - óój
Mikil harka í kvöld
Katrín Jónsdóttir spáir stríðsástandi í Kalmar.
FÓTBOLTI Ísland tapaði 1-2 á móti
Noregi þegar liðin mættust síð-
ast. Norðmenn voru þá á heima-
velli í úrslitaleik um sigurinn í
riðlinum. Íslenska liðið spilaði vel
í leiknum og átti skilið að fá eitt-
hvað út úr honum en tapið þýddi
að íslenska liðið þurfti að fara á
EM í gegnum umspilið.
„Það var svolítið skrítinn leik-
ur. Við vorum að spila fínan bolta
og mér fannst við betri en Norð-
mennirnir í þeim leik. Þær voru
klókar, beittu skyndisóknum og
notuðu þau svæði sem opnuðust
þegar við vorum að sækja. Það er
alltaf hættulegt,“ segir Margrét
Lára Viðarsdóttir sem skoraði
mark íslenska liðsins.
„Við eigum að þekkja norska
liðið og við teljum okkur alveg
geta unnið þær. Við teljum okkur
vera með betri leikmenn í öllum
stöðum en við þurfum bara að
sýna það inni á vellinum,“ sagði
Margrét Lára full sjálfstrausts.
- óój
Við erum betri
í öllum stöðum