Fréttablaðið - 11.07.2013, Side 62
11. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 50
„Mamma hefur alltaf farið sínar
eigin leiðir í tískunni og virðist
alltaf vera á undan straumnum.
Yngsta systir mín sem er grafísk-
ur hönnuður fékk hugmyndina að
blogginu eftir að hafa séð síðu sem
heitir What Ali wore og við ákváð-
um að byrja á þessu verkefni,“
segir Jóhanna Helga Þorkelsdóttir
myndlistarkona, sem ásamt systk-
inum sínum, Birnu Bryndísi, Frið-
rikku Björk og Guðbrandi Ágústi,
setti á laggirnar tískublogg tileink-
að móður þeirra Mögnu Fríði Birnir.
Bloggið heitir What Magna wore og
sýnir myndir af Mögnu klædda upp
eins og henni er lagið.
Síðan hefur fengið talsverða
athygli frá því hún var stofnuð og
segir Jóhanna að yfir 300 IP-tölur
hafi skoðað hana fyrsta sólar-
hringinn.
„Við tókum mynd af mömmu
í hvert skipti þegar við hittum
hana og í fyrstu vissi hún ekkert
af þessu verkefni. Þegar hún sá
bloggið fannst henni það æðislegt
og er núna aðeins farin að spila
með og klæða sig sérstaklega upp
á þegar hún hittir okkur.“
Jóhanna Helga segir takmarkið
að taka 100 myndir og gefa síðan
út bók. „Við höfum öll svo gaman af
þessu og takmarkið er að þetta endi
sem bók. Mamma á heilu
skipsfarmana af fötum
heima hjá sér þannig að við
eigum ekki eftir að verða
uppiskroppa með mynd-
efni.“
Jóhanna segir að
þegar hún og systk-
ini hennar voru ung-
lingar hafi þeim oft
þótt klæðnaður móður
þeirra vandræðalegur.
„Okkur fannst þetta
oft óþægilegt þegar
við vorum ungling-
ar en núna finnst
okkur þetta æðis-
legt. Hún hugsar
út fyrir kassann
og oft sér maður
hana í einhverju
sem manni finnst alls ekki
smart en síðan er það komið í
tísku stuttu seinna og maður
biður um að fá það lánað hjá henni,“
segir Jóhanna kímin.
Magna Fríður er menntaður
hjúkrunarfræðingur og starf-
aði lengi sem slíkur. Í dag
starfar hún sem dáleiðari og
rekur hún sína eigin stofu.
„Mamma er mikill lista-
maður í sér þó að hún
starfi ekki sem slík-
ur og þetta er henn-
ar leið til þessa að fá
útrás fyrir sköpunar-
kraftinn. Hún er ekk-
ert feimin við athygl-
ina sem hún fær enda
myndi hún ekki klæðast
svona fötum ef svo væri.“
Fyrir áhugasama má skoða
bloggið á síðunni WhatMagnaWore.
tumblr.com/ hannarut@365.is
Stofnuðu tískublogg
tileinkað mömmu
Systkinin setja inn myndir af móður sinni sem fer sínar eigin leiðir í tískunni
„Við erum í mjög stóru rými nú
þegar en það er svo gríðarlega
mikil aðsókn að við ætlum að bæta
við okkur nýjum sal sem verður til-
búinn í september. Við vitum ekki
til að það sé í boði annað „bardaga-
gym“ af þessari stærðargráðu í
allri Evrópu,“ segir Jón Viðar Arn-
þórsson, formaður Mjölnis. Í hverj-
um mánuði hefjast ný námskeið í
Mjölni og segir Jón Viðar að það séu
margir þættir sem spila inn í þenn-
an mikla áhuga. „Þetta er ótrúlega
skemmtileg hreyfing og svo hefur
Gunnar Nelson fengið gott umtal.
Nú erum við með um þúsund með-
limi og bætum því við mörgum
tímum og förum upp í að kenna 85
tíma á viku,“ segir Jón Viðar og
bætir við að konur séu duglegar
að sækja tíma í víkingaþreki þrátt
fyrir að meirihluti meðlima sé karl-
menn. Jafnframt segir Jón Viðar að
margir útlendingar og ferðamenn
séu farnir að sækja æfingar hjá
Mjölni og skemmtilegt þyki að sjá
viðbrögðin. - mmm
Húsnæðið springur utan af Mjölni
Bardagaíþróttaklúbburinn Mjölnir er svo vinsæll að stækka þarf húsnæðið til að anna eft irspurninni
ÁNÆGÐUR MEÐ EFTIRSPURNINA Jón
Viðar Arnþórsson, formaður Mjölnis.
➜ Mjölnir hefur
verið starfandi í
10 ár. Um 1.000
meðlimir æfa
í klúbbnum en
boðið er upp á
Kick Box, Glímu og
Víkingaþrek.
„Það hefur gengið vel og fólk virðist mjög hrifið af hugmynd-
inni,“ segir myndlistarkonan Helga Birgis dóttir, eða Gegga,
sem hannar hálsmenin Smiler.
Hálsmenin eru þannig gerð að sá sem þau kaupir getur stung-
ið þeim á milli munnvikanna og þar með búið til bros.
„Hugmyndin kviknaði þegar ég var við nám í Listaháskóla
Íslands um aldamótin. Þá fór ég að vinna mikið í sjálfri mér
og skoða mín eigin gildi, og byrjaði svo að hanna þennan grip,“
segir Gegga, sem er lærð ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur og
starfar á geðdeild Landspítalans. Hún segir Smiler eigi að fá
menn til að hugsa um andleg gildi sem henni finnst vanta í þjóð-
félagsumræðuna. Mikið hefur verið fjallað um hrottafengnar
sýruárásir gegn konum í Indlandi undanfarna mánuði. Gegga
ákvað því að láta hluta af sölunni á Smiler renna til góðgerðar-
samtakanna Stop Acid Attacks í takmarkaðan tíma, en samtökin
berjast einmitt gegn árásum sem þessum. Fjölmargir Íslend-
ingar hafa sýnt hugmyndafræði Smiler áhuga. „Það er virkilega
margt gott og kraftmikið fólk í þjóðfélaginu sem vill hreykið
telja sig í hópi „Smilera“,“ segir Gegga. Hægt er að skoða háls-
menin og hugmyndafræðina inn á vefsíðunni Smiler.is - ka
Hálsmenin fá fólk til að brosa
Myndlistarkonan Gegga hannar hálsmenin Smiler. Í takmarkaðan tíma rennur
ágóði sölunnar á Smiler til samtaka sem berjast gegn sýruárásum gegn konum.
„Óreiða á striga og Karitas án titils
eru uppáhaldsbækur mínar í dag.
Enda er rithöfundurinn fæddur í
Hafnarfirði.“
Margrét Gauja Magnúsdóttir, forseti bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar.
UPPÁHALDSBÓKIN
ALLIR EIGA AÐ BROSA Myndlistarkonan Gegga hannar
hálsmenin Smiler. MYND/BJARNEY LÚÐVÍKSDÓTTIR
FJÖLSKYLDAN
Magna Fríður
og Birnir ásamt
börnum sínum
Friðrikku Björk,
Birnu Bryndísi,
Jóhönnu Helgu og
Guðbrandi Ágústi
sem stofnuðu
tískublogg til
heiðurs henni og
gera bók þegar 100
myndum af henni
er náð. MYND/ARNÞÓR
Mamma á heilu
skipsfarmana af fötum
heima hjá sér þannig að
við eigum ekki eftir að
verða uppiskroppa með
myndefni.
DY
NA
M
O
RE
YK
JA
VÍ
K
1. SÆTI
BÓKSÖLULISTIN
N
ALLAR BÆKUR
3. - 9. JÚLÍ
„Á SKILIÐ AÐ
VERÐA SUMAR-
SMELLUR!“
★★★★★
„Stórkostleg saga.
Hún grætir og kætir.“
– Kristjana Guðbrandsdóttir,
DV
„Ekki láta sumarið líða
án þess að lesa Maður
sem heitir Ove ... í senn
hrífandi og fyndin.“
– Kolbrún Bergþórsdóttir,
Morgunblaðinu
„Einfaldlega
hrein
dásemd“
– Kolbr
ún Berg
þórsdó
ttir,
Morgu
nblaðin
u
– Kolbrún Bergþórsdóttir, Mbl.
„Feykiskemmtileg
“
– FRIÐRIK
A BENÓN
ÝS,
FRÉTTAB
LAÐINU