Fréttablaðið - 19.08.2013, Qupperneq 6
19. ágúst 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
Aðalfundur félagsins haldin miðvikudaginn 18. maí
kl. 16.00, á skrifstofu félagsins að Haukanesi 23,
210 Garðarbæ.
Dagskrá aðalfundar:
Venjuleg aðalfundarstörf.
AÐALFUNDUR
www.blattafram.is
Aðalfundur félagsins verður haldinn
mánudaginn 26. ágúst kl. 16.00 á skrifstofu
félagsins Fákafeni 9, 108 Reykavík.
Dagskrá aðalfundar
Venjule lf rstörf.
Svo létt á brauðið
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
57
65
5
Save the Children á Íslandi
1. Hvers konar bók er Pálmi Gunnarsson
tónlistarmaður að fara að gefa út í haust?
2. Hvaða íslenska kvikmynd var valin á
kvikmyndahátíðina í San Sebastián?
3. Hvaða fi mm borgarfulltrúar eru orð-
aðir við oddvitasæti Sjálfstæðisfl okksins
fyrir næstu borgarstjórnarkosningar?
SVÖR
1. Sjálfsævisögulega veiðisögu. 2. Hross í oss
eftir Benedikt Erlingsson 3. Guðlaugur Þór
Þórðarson, Júlíus Vífi ll Ingvarsson, Kjartan
Magnússon, Gísli Marteinn Baldursson og
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir.
DÝRALÍF Það fjölgaði óvænt í fjöl-
skyldu nokkurri í Reykjanesbæ
eftir að hún fór að tína mávaegg
snemmsumars úti í Gróf, sem er
rétt ofan við smábátahöfnina þar
í bæ. Elsta dóttirin, Særún Birta,
tók gæsaregg án þess að átta sig
á hvers kyns var. Þegar það varð
ljóst stakk fjölskyldufaðirinn upp
á því að þau reyndu að láta það
klekjast út heima úr því sem komið
var.
Það varð úr og í sumar hefur
gæsin Bíbí elt fjölskylduna á
röndum. „Þetta hefur verið mikið
umstang en gæsaungar eru þannig
að þeir geta ekki verið einir enda
var Bíbí orðin mjög hvekkt þegar
við skildum hana eina eftir í hálf-
tíma eitt sinn,“ útskýrir Kristín
Ingunn Gísladóttir. Húsbóndinn,
Birgir Haukdal Rúnarsson, segir
að fjölskyldan hafi verið á vökt-
um í sumar af þessum völdum.
„En ég hef ekki þurft að slá blett-
inn,“ segir hann kankvís. Í versl-
unarferðum Bíbíar notar fjölskyld-
an hundabúr sem gæsin unir sér
ágætlega í.
Kristín segir að Bíbí sé eins og
ein af fjölskyldunni en þó vonast
hún til að gæsin hefji sig á loft
með sínum líkum í haust og fari
á vetrar stöðvar. „Reynslan hefur
sýnt það að tamdar gæsir geta
bjargað sér í villtri náttúrunni
og jafnvel gleymt eftir árið öllu
sem þeim var kennt.“ Farið hefur
verið með Bíbí til að sjá sína líka
en henni brá við þau ósköp. „Svo
höfum við sett spegil hjá henni á
svölunum svo að hún sjái sjálfa
sig en við erum hálf smeyk við að
leiða hana til annarra gæsa því það
er margt um varginn hérna.“
Það er nokkur kúnst að skapa
réttu aðstæðurnar fyrir gæsaregg
til að klekjast. Þá kom sér vel bað-
skápur þeirra hjóna en hann er
með hitagrind og því hlýr og góður.
„Reyndar var ekki nógu mikill raki
svo eggið var þurrt og hart og við
heyrðum í Bíbí inni í egginu og
urðum að hjálpa henni við að opna
það.“ Ekki tók betra við því næst
varð að gefa henni vökva úr teskeið
en svo komst fuglinn fljótt á legg.
„Ég er í raun alveg á móti því að
grípa svona inn í hjá náttúrunni,“
segir Kristín Ingunn. „En fyrst
þetta þróaðist svona þá var ekkert
annað að gera en að vinna úr því af
alúð.“
jse@frettabladid.is
Fjölskylda elur upp
gæs í Reykjanesbæ
Fjölskyldunni tókst að klekja út gæsarunga í baðskáp. Gæsin hefur sett svip sinn
á fjölskyldulífið. Hún verður að koma með í verslunarferðir því hún unir ekki ein.
Vonast húsmóðirin til þess að gæsin fari með sínum líkum til vetrarstöðva.
GÆSIN Á GÓÐA AÐ Særún Birta (10 ára), Birgir Logi (7 ára) og Jóhanna María (3 ára) Birgisbörn hafa hlúð vel að Bíbí.
MYND/KRISTÍN INGUNN GÍSLADÓTTIR
SLEPPA VIÐ SLÁTT Fjölskyldan hefur ekkert þurft að slá blettinn í sumar. Bíbí sér
alveg um að bíta grasið langleiðina niður í svörð.
VEISTU SVARIÐ?
Við heyrðum í Bíbí
inni í egginu og urðum að
hjálpa henni mvið að opna
það
Kristín Ingunn Gísladóttir
AFGANISTAN Aðstandendur þeirra
sextán afgönsku borgara sem féllu
fyrir hendi bandaríska hermannsins
Robert Bales á síðasta ári eru æva-
reiðir yfir því að honum skuli hlíft
við dauðadómi fyrir morðin. Réttar-
höld yfir Bales hefjast í Bandaríkj-
unum í dag.
Mál Bales vakti mikla athygli á
sínum tíma enda varpaði það ljósi á
það mikla vantraust sem ríkti milli
afganskra borgara og bandarískra
hermanna sem verið hafa í landinu
frá árinu 2001. Bales hefur játað
að hafa, aðfaranótt 1. mars í fyrra,
laumast í tvígang út úr herstöð sinni
í Kandahar-héraði og gengið hús úr
húsi í tveimur nærliggjandi þorpum
þar sem hann skaut fólk af handa-
hófi, þar af níu börn og fjórar konur.
Bales neitaði lengi vel að tjá sig
um atburði næturinnar, en sneri við
blaðinu í vor og játaði á sig sök gegn
því að sleppa við dauðadóm. Það eru
aðstandendur fórnarlamba hans afar
ósátt við og vilja að hann verði tek-
inn af lífi í Afganistan.
Þetta er mannskæðasta atvik af
þessu tagi sem komið hefur upp
hjá bandaríska hernum frá árum
Víetnamstríðsins.
Verjendur Bales hafa haldið því
fram að hann hafi þjáðst af áfalla-
streituröskun og heilaskaða þegar
hann hélt í drápsförina. Vitni í mál-
inu segja að Bales hafi fyllst mik-
illi reiði eftir að félagi hans missti
annan fótinn í sprengjutilræði
nokkrum dögum fyrir árásina. - þj
Aðstandendur fórnarlamba bandarísks hermanns í Afganistan ósáttir við lífstíðardóm:
Krefjast dauðadóms yfir fjöldamorðingja
MYRTI SAKLAUSA Robert Bales drap
sextán saklausa borgara. NORDICPHOTOS/AFP