Fréttablaðið - 19.08.2013, Side 13

Fréttablaðið - 19.08.2013, Side 13
MÁNUDAGUR 19. ágúst 2013 | SKOÐUN | 13 Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Svona virka vestræn lýðræðisríki: stjórnmálamenn eiga ekki að hafa boðvald yfir fréttamönnum og eiga ekki að geta stýrt því hvernig fréttamenn fjalla um það hvernig þeir sjálfir stunda sitt starf. AF NETINU Íslendingar eru fífl ! Rök sem notuð hafa verið hér á Íslandi gegn ESB-aðild– og nú fyrir því að stöðva viðræð- urnar– eru mörg hver einstaklega ómerkileg. En það er auðvelt að koma slíkum rökum áfram ef hægt er að tengja þau við þjóðerniskennd. Dæmi um þetta eru hinar síendurteknu rangfærslur um að ESB muni taka yfir náttúru- auðlindir Íslands, ef við gerumst meðlimir í Evrópusambandinu. Í morgun sagði utanríkisráðherra að ekki væri hægt að skoða í pakkann, með aðildarviðræðum. Ekki hægt, sagði hann! Það hafa Norðmenn þó gert tvisvar sinnum. blog.pressan.is/stefano/ Stefán Ólafsson Blásið burt kófi nu Fjölmiðlar stóðu sig vel í stríði Vigdísar Hauksdóttur síðustu daga. Allt, sem máli skiptir, kom upp á borðið, jafnvel fyrra tal hennar um illan feng í glópagulli. Ýmsar aðrar fréttir á sama tíma hafa hins vegar vakið fleiri spurn- ingar en þær svara. Til dæmis viðtölin við eiganda Cheap Jeeps, við talsmann Umferðar- stofu og við formann bæjarráðs Árborgar. Í öllum tilvikum reyndi viðmælandinn að þyrla upp ryki. Svona viðtöl þarf að framlengja til að reyna að blása burt kófinu og komast að staðreyndum. Birta svo bara þann hluta viðtalanna, sem segir eitthvað. Sleppa alveg pörtunum með mekkinum. jonas.is Jónas Kristjánsson Þegar ég var strákur fór ekki hjá því stundum að maður yrði var við það þegar leiðindaskarfarn- ir úr Flokkunum voru að hringja í móður mína sem þá var frétta- stjóri á Fréttastofu útvarpsins. Þeir sátu með skeiðklukkur og mældu tímann sem þeir fengu og svo „hinir“ og ef skeikaði fimm sekúndum kröfðust þeir leiðrétt- inga, upp á sekúndu. Móðir mín lét sér þetta í léttu rúmi liggja enda leit hún ekki á sig sem þjón þessara manna heldur almenn- ings. Hún leit svo á að hún hefði skyldum að gegna við eigendur Ríkisútvarpsins – fólkið í landinu sem greiddi afnotagjöldin. Stjórnmálamennirnir litu svo á að þeir ættu sjálfir að stjórna því hvernig fréttum af sér yrði hátt- að. Hún hélt nú ekki. Enda höfðu þeir sín rör að tala í – á Mogga og Þjóðvilja og hvað þau hétu nú þessi flokksblöð – og í sumum rörunum ýlir enn. Að vera fréttamaður Fréttamaður er ekki vinstri sinn- aður eða hægri sinnaður heldur fréttasinnaður; ekki Evrópusinn- aður eða þjóðhyggjusinnaður heldur upplýsingasinnaður; ekki á vegum Jesú, Búdda eða Óðins heldur spurningarinnar: það að vera fréttamaður er lífsafstaða í sjálfu sér. Þau sem eru frétta- menn leita upplýsinga og telja það skyldu sína að miðla þeim upplýsingum til almennings á eins greinargóðan hátt og þeim er frekast unnt. Þau gegna ákaf- lega mikilsverðu hlutverki í sam- félaginu – ekkert síður en stjórn- málamenn þó fréttamenn fái að sönnu ekki jafn mikið kaup. Starfsfólk Ríkisútvarpsins er sem sagt í þjónustu almennings. Það eru líka stjórnmálamenn – meira að segja stjórnmálamenn sem komast til metorða og mann- virðinga: þeir eru líka þjónar. Þeir mega aldrei líta svo á að starfsfólk Ríkissútvarpsins sé þjónar þeirra. Útvarpsfólkið gegnir eftirlits- skyldu gagnvart störfum stjórn- málamannanna, fyrir almenning. Það er beinlínis hlutverk frétta- mannsins að spyrja óþægilegra spurninga sem jafnvel geta verið pirrandi og virkað alveg fráleit- ar út frá sjónarhóli þess sem spurður er, og segja frá hlut- um sem kunna að koma sér illa fyrir einhverja. Fréttamaður er ekki þerapisti. Hann er ekki sál- gæsluaðili. Hann er ekki vinur eða óvinur. Og hann er ekki rör. Fréttamaðurinn starfar á vett- vangi þar sem atburðir verða, upplýsingar þjóta fram og til baka, álitamálið hrannast upp. Fréttamönnum getur skjátlast (eins við munum í aðdraganda Íraksstríðsins þegar þeir voru of trúgjarnir); þeir geta verið ósanngjarnir, þeir geta ruglast. En þeir starfa af heilindum. Vigdís þarf að víkja Svona virka vestræn lýðræðis- ríki: stjórnmálamenn eiga ekki að hafa boðvald yfir fréttamönn- um og eiga ekki að geta stýrt því hvernig fréttamenn fjalla um það hvernig þeir sjálfir stunda sitt starf. Þeir mega aldrei kom- ast í aðstöðu til þess. Þannig er verkaskiptingin, og við henni má ekki hrófla – lýðræðið sjálft er þá í húfi. Gerist það að stjórn- málamaður, sem hefur áhrif á fjárframlög til ríkisfjölmiðils- ins, tengi sjálfur umfjöllun fjöl- miðilsins um sig við völd sín yfir fjármálum fjölmiðilsins – segi eitthvað á þá leið að fjölmiðilinn hafi sýnt sér ósanngirni og dragi taum andstæðinga sinna og við því muni hann bregðast með því að skera niður framlög til við- komandi fjölmiðils sem sé „ekki að standa sig“ – gerist slíkt í lýð- ræðisríki þá hefur viðkomandi stjórnmálamaður sýnt fram á vanhæfi sitt og skilningsleysi á starfi sínu. Þetta gerði Vigdís Hauksdóttir um daginn. Hún tengdi óánægju sína með lítilfjörlega missögn í endursögn fréttamanns á tali hennar um IPA-styrkina beint við stöðu sína í svonefndum hag- ræðingarhópi ríkistjórnarinn- ar. Þetta gerði hún í samtali við Bylgjuna. Þetta er býsna alvar- legt mál, og ekki hægt að líta á þetta eins og hvert annað gasp- ur í athyglissjúkum stjórnmála- manni að reyna að æpa sig inn í fréttatímana. Þetta er mark- viss viðleitni til að terrorísera fjölmiðilinn, ná stjórn á honum; láta næsta fréttamann sem þarf að segja frá verkum og orðum Vigdísar Hauksdóttur hugsa sig tvisvar um: Hún ræður því hvort ég held vinnunni, hvort yfirleitt verður hér einhver starfsemi, best að styggja hana ekki – best að gleðja hana. Svona virkar ekki lýðræðið. Svona virkar einræðið. Vand- séð er hvort er verra, sjálf hótun Vigdísar Hauksdóttur eða hitt, að hún komist upp með hana. Geri hún það hefur íslensk stjórnmála- menning færst enn neðar en áður. Komist Vigdís upp með hótanir sínar hefur henni tekist að skapa andrúmsloft ótta og sjálfsrit- skoðunar kringum sig, hún hefur brotið siðareglur sem alls staðar eru gerðar til stjórnmálamanna í þeim lýðræðisríkjum sem flest okkar vilja að Ísland miði sig við, hún hefur seilst langt út fyrir verksvið sitt, misnotað aðstöðu sína í þjónustu almenn- ings í eigin þágu og haft í hótun- um við starfsfólk almannastofn- unar sem ekki hefur gert annað en að reyna að sinna vinnu sinni af þeirri trúmennsku sem ósk- andi væri að Vigdís Hauksdótt- ir reyndi einhvern tímann að til- einka sér. Manneskja sem sýnir slík við- horf til valda á ekki að hafa völd. Svona virkar einræðið www.volkswagen.is Evrópu- og heimsmeistari Volkswagen Golf var kosinn bíll ársins í Evrópu 2013 á bílasýningunni í Genf og 66 bílablaðamenn hvaðanæva að útnefndu hann bíl ársins í heiminum á bílasýningunni í New York. Velkomin í reynsluakstur í HEKLU og hjá umboðsmönnum um land allt Nýr Golf kostar frá 3.540.000 kr. Golf Trendline, 1.4 TSI, beinskiptur, 122 hestöfl. Volkswagen Golf eyðir aðeins frá 3,8 l/100 km HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.