Fréttablaðið - 19.08.2013, Page 13
MÁNUDAGUR 19. ágúst 2013 | SKOÐUN | 13
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Svona virka vestræn lýðræðisríki: stjórnmálamenn
eiga ekki að hafa boðvald yfir fréttamönnum og
eiga ekki að geta stýrt því hvernig fréttamenn fjalla um
það hvernig þeir sjálfir stunda sitt starf.
AF NETINU
Íslendingar eru fífl !
Rök sem notuð hafa verið hér
á Íslandi gegn ESB-aðild– og
nú fyrir því að stöðva viðræð-
urnar– eru mörg hver einstaklega
ómerkileg. En það er auðvelt
að koma slíkum rökum áfram
ef hægt er að tengja þau við
þjóðerniskennd.
Dæmi um þetta eru hinar
síendurteknu rangfærslur um
að ESB muni taka yfir náttúru-
auðlindir Íslands, ef við gerumst
meðlimir í Evrópusambandinu. Í
morgun sagði utanríkisráðherra
að ekki væri hægt að skoða í
pakkann, með aðildarviðræðum.
Ekki hægt, sagði hann! Það
hafa Norðmenn þó gert tvisvar
sinnum.
blog.pressan.is/stefano/
Stefán Ólafsson
Blásið burt kófi nu
Fjölmiðlar stóðu sig vel í stríði
Vigdísar Hauksdóttur síðustu
daga. Allt, sem máli skiptir, kom
upp á borðið, jafnvel fyrra tal
hennar um illan feng í glópagulli.
Ýmsar aðrar fréttir á sama tíma
hafa hins vegar vakið fleiri spurn-
ingar en þær svara. Til dæmis
viðtölin við eiganda Cheap
Jeeps, við talsmann Umferðar-
stofu og við formann bæjarráðs
Árborgar. Í öllum tilvikum reyndi
viðmælandinn að þyrla upp ryki.
Svona viðtöl þarf að framlengja
til að reyna að blása burt kófinu
og komast að staðreyndum. Birta
svo bara þann hluta viðtalanna,
sem segir eitthvað. Sleppa alveg
pörtunum með mekkinum.
jonas.is
Jónas Kristjánsson
Þegar ég var strákur fór ekki hjá
því stundum að maður yrði var
við það þegar leiðindaskarfarn-
ir úr Flokkunum voru að hringja
í móður mína sem þá var frétta-
stjóri á Fréttastofu útvarpsins.
Þeir sátu með skeiðklukkur og
mældu tímann sem þeir fengu og
svo „hinir“ og ef skeikaði fimm
sekúndum kröfðust þeir leiðrétt-
inga, upp á sekúndu. Móðir mín
lét sér þetta í léttu rúmi liggja
enda leit hún ekki á sig sem þjón
þessara manna heldur almenn-
ings. Hún leit svo á að hún hefði
skyldum að gegna við eigendur
Ríkisútvarpsins – fólkið í landinu
sem greiddi afnotagjöldin.
Stjórnmálamennirnir litu svo á
að þeir ættu sjálfir að stjórna því
hvernig fréttum af sér yrði hátt-
að. Hún hélt nú ekki. Enda höfðu
þeir sín rör að tala í – á Mogga
og Þjóðvilja og hvað þau hétu nú
þessi flokksblöð – og í sumum
rörunum ýlir enn.
Að vera fréttamaður
Fréttamaður er ekki vinstri sinn-
aður eða hægri sinnaður heldur
fréttasinnaður; ekki Evrópusinn-
aður eða þjóðhyggjusinnaður
heldur upplýsingasinnaður; ekki
á vegum Jesú, Búdda eða Óðins
heldur spurningarinnar: það að
vera fréttamaður er lífsafstaða
í sjálfu sér. Þau sem eru frétta-
menn leita upplýsinga og telja
það skyldu sína að miðla þeim
upplýsingum til almennings á
eins greinargóðan hátt og þeim
er frekast unnt. Þau gegna ákaf-
lega mikilsverðu hlutverki í sam-
félaginu – ekkert síður en stjórn-
málamenn þó fréttamenn fái að
sönnu ekki jafn mikið kaup.
Starfsfólk Ríkisútvarpsins er
sem sagt í þjónustu almennings.
Það eru líka stjórnmálamenn –
meira að segja stjórnmálamenn
sem komast til metorða og mann-
virðinga: þeir eru líka þjónar.
Þeir mega aldrei líta svo á að
starfsfólk Ríkissútvarpsins sé
þjónar þeirra.
Útvarpsfólkið gegnir eftirlits-
skyldu gagnvart störfum stjórn-
málamannanna, fyrir almenning.
Það er beinlínis hlutverk frétta-
mannsins að spyrja óþægilegra
spurninga sem jafnvel geta verið
pirrandi og virkað alveg fráleit-
ar út frá sjónarhóli þess sem
spurður er, og segja frá hlut-
um sem kunna að koma sér illa
fyrir einhverja. Fréttamaður er
ekki þerapisti. Hann er ekki sál-
gæsluaðili. Hann er ekki vinur
eða óvinur. Og hann er ekki rör.
Fréttamaðurinn starfar á vett-
vangi þar sem atburðir verða,
upplýsingar þjóta fram og til
baka, álitamálið hrannast upp.
Fréttamönnum getur skjátlast
(eins við munum í aðdraganda
Íraksstríðsins þegar þeir voru
of trúgjarnir); þeir geta verið
ósanngjarnir, þeir geta ruglast.
En þeir starfa af heilindum.
Vigdís þarf að víkja
Svona virka vestræn lýðræðis-
ríki: stjórnmálamenn eiga ekki
að hafa boðvald yfir fréttamönn-
um og eiga ekki að geta stýrt því
hvernig fréttamenn fjalla um
það hvernig þeir sjálfir stunda
sitt starf. Þeir mega aldrei kom-
ast í aðstöðu til þess. Þannig er
verkaskiptingin, og við henni má
ekki hrófla – lýðræðið sjálft er
þá í húfi. Gerist það að stjórn-
málamaður, sem hefur áhrif á
fjárframlög til ríkisfjölmiðils-
ins, tengi sjálfur umfjöllun fjöl-
miðilsins um sig við völd sín yfir
fjármálum fjölmiðilsins – segi
eitthvað á þá leið að fjölmiðilinn
hafi sýnt sér ósanngirni og dragi
taum andstæðinga sinna og við
því muni hann bregðast með því
að skera niður framlög til við-
komandi fjölmiðils sem sé „ekki
að standa sig“ – gerist slíkt í lýð-
ræðisríki þá hefur viðkomandi
stjórnmálamaður sýnt fram á
vanhæfi sitt og skilningsleysi á
starfi sínu.
Þetta gerði Vigdís Hauksdóttir
um daginn. Hún tengdi óánægju
sína með lítilfjörlega missögn
í endursögn fréttamanns á tali
hennar um IPA-styrkina beint
við stöðu sína í svonefndum hag-
ræðingarhópi ríkistjórnarinn-
ar. Þetta gerði hún í samtali við
Bylgjuna. Þetta er býsna alvar-
legt mál, og ekki hægt að líta á
þetta eins og hvert annað gasp-
ur í athyglissjúkum stjórnmála-
manni að reyna að æpa sig inn
í fréttatímana. Þetta er mark-
viss viðleitni til að terrorísera
fjölmiðilinn, ná stjórn á honum;
láta næsta fréttamann sem þarf
að segja frá verkum og orðum
Vigdísar Hauksdóttur hugsa sig
tvisvar um: Hún ræður því hvort
ég held vinnunni, hvort yfirleitt
verður hér einhver starfsemi,
best að styggja hana ekki – best
að gleðja hana.
Svona virkar ekki lýðræðið.
Svona virkar einræðið. Vand-
séð er hvort er verra, sjálf hótun
Vigdísar Hauksdóttur eða hitt, að
hún komist upp með hana. Geri
hún það hefur íslensk stjórnmála-
menning færst enn neðar en áður.
Komist Vigdís upp með hótanir
sínar hefur henni tekist að skapa
andrúmsloft ótta og sjálfsrit-
skoðunar kringum sig, hún hefur
brotið siðareglur sem alls staðar
eru gerðar til stjórnmálamanna
í þeim lýðræðisríkjum sem flest
okkar vilja að Ísland miði sig
við, hún hefur seilst langt út
fyrir verksvið sitt, misnotað
aðstöðu sína í þjónustu almenn-
ings í eigin þágu og haft í hótun-
um við starfsfólk almannastofn-
unar sem ekki hefur gert annað
en að reyna að sinna vinnu sinni
af þeirri trúmennsku sem ósk-
andi væri að Vigdís Hauksdótt-
ir reyndi einhvern tímann að til-
einka sér.
Manneskja sem sýnir slík við-
horf til valda á ekki að hafa völd.
Svona virkar einræðið
www.volkswagen.is
Evrópu- og heimsmeistari
Volkswagen Golf var kosinn bíll ársins í Evrópu 2013 á
bílasýningunni í Genf og 66 bílablaðamenn hvaðanæva að
útnefndu hann bíl ársins í heiminum á bílasýningunni í New York.
Velkomin í reynsluakstur í HEKLU og hjá umboðsmönnum um land allt
Nýr Golf kostar frá
3.540.000 kr.
Golf Trendline, 1.4 TSI, beinskiptur, 122 hestöfl.
Volkswagen Golf eyðir aðeins frá 3,8 l/100 km HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði