Fréttablaðið - 19.08.2013, Page 18
19. ágúst 2013 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 18TÍMAMÓT
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTJÁN LINDBERG JÚLÍUSSON
Langholtsvegi 26, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
mánudaginn 19. ágúst kl. 13.00. Blóm og
kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á líknarfélög.
Aðalheiður L. Gunter
Adolf Örn Kristjánsson Guðrún Ólafsdóttir
Grétar Kristjánsson Svana Björnsdóttir
Ósk Kristjánsdóttir Guðmundur Vilhjálmsson
Rut Kristjánsdóttir Jóhann Almar Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
VirðingReynsla & Þjónusta
Allan sólarhringinn
571 8222 · 82o 3939 svafar · 82o 3938 hermann
www.kvedja.is
Okkar ástkæra eiginkona, móðir, dóttir,
tengdadóttir, systir, tengdamóðir og amma
RAGNHILDUR ALDÍS
KRISTINSDÓTTIR
lést á Landspítalanum 7. ágúst.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju 22. ágúst, kl 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á hjúkrunarþjónustuna Karítas.
Eyjólfur H. Sveinsson
Kristinn A. Eyjólfsson
Davíð F. Eyjólfsson
Margrét Erla Einarsdóttir
Gyða Eyjólfsdóttir
Aðalheiður Jónsdóttir
Fanney Björk, Ásdís Birna, Jón Sævar, Alexandra Aldís
og systkini.
Hin árlega keppni Austfjarðatröllið, sem
Magnús Ver Magnússon hefur staðið að,
fór fram dagana 15.-18 ágúst. Keppend-
ur nú voru Andri Björnsson, sem vann
titilinn Vestfjarðavíkingurinn 2013,
Úlfur Orri Pétursson, Skúli Ármanns,
Georg Ögmundsson, Gatis Kausen, Orri
Geirsson, David Nyström og Sebastian
Davidsson. Keppnin í ár var afar spenn-
andi þar sem David Nyström og Sebast-
ian Davidsson frá Svíþjóð voru með í
keppninni, en þeir urðu í 2. og 3. sæti í
keppninni um sterkasta mann Svíþjóð-
ar 2013. Keppnin hófst á Höfn í Horna-
firði við þar sem keppt var í kútakasti
og hleðslu. Á laugardag var farið til
Vopnafjarðar þar sem keppt var í öxul-
lyftu og trukkadrætti. Lokaslagurinn
hófst á Reyðarfirði þar sem keppt var
í nokkrum þrautum og endaði keppnin
á Seyðisfirði þar sem keppt var í polla-
burði og atlasteini. Vaxtarræktartröllið
Georg Ögmundsson vann keppnina í ár
og er þetta í þriðja sinn sem hann hrepp-
ir titilinn Austfjarðatröllið. „Ég byrjaði
keppnina alveg hræðilega illa og útlitið
var svart fyrsta daginn. Ég náði mér svo
hægt og rólega á strik og það má segja
að ég hafi tekið þetta síðasta daginn. Sví-
arnir voru hörku keppinautar og öfugt
við mig, þá byrjuðu þeir rosalega vel
en náðu ekki að halda dampinum út alla
keppnina.“ Úrslitin voru kynnt í gær við
Herðubreið á Seyðisfirði og mætti fjöldi
fólks til þess að styðja við bakið á Íslend-
ingunum. „Það var svakaleg stemming
og ekki skemmdi veðrið fyrir. segir
sigur vegarinn Georg Ögmundsson. -áo
Tröllin börðust um helgina
Georg Ögmundsson vann titilinn Austfj arðatröllið þriðja árið í röð.
HÖFN Austfjarðatröllið fór fram um helgina
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
„Það má eiginlega segja að það séu
tímamót á öllum vígstöðum,“ segir
tónlistarkonan Edda Borg sem kemur
fram á tónleikum á Café Rosenberg
í kvöld klukkan 21 ásamt hljómsveit.
Tónleikarnir eru hluti af Jazzhátíð
Reykjavíkur og á þeim fylgir Edda
eftir útgáfu sinnar fyrstu sólóplötu,
No Words Needed, fyrr í sumar.
Segja má að Edda sýni á sér nýja hlið
á plötunni, en hún hefur lengi fengist
við djasssöng. Því kom mörgum á óvart
að á sólóplötunni syngur hún aðeins
laglínur án orða í nokkrum lögum en
hin lögin eru án söngs. Tónlistarkonan
segir að tónlistinni á plötunni megi ef
til vill líkja við það sem hljómsveitin
Mezzoforte hefur fengist við, en gítar-
leikarinn Friðrik Karlsson úr Mezzo-
forte er einmitt meðlimur í sveitinni
sem kemur fram með Eddu á tónleik-
unum. Auk tónleikanna á Rósenberg í
kvöld kemur Edda fram með sveitinni
í Iðnó á menningarnótt og þar verður
frítt inn.
Á níunda áratugnum gerði Edda
garðinn frægan með hljómsveitinni
Módel, sem sendi frá sér smelli á borð
við Lífið er lag og Ástarbréf merkt X.
Í þeirri sveit lék Edda á hljómborð sem
hún hélt á og vakti athygli fyrir vikið.
„Svona hljóðfæri eru stundum köll-
uð „keytar“, en ég hef líka heyrt að í
bransanum hér á landi séu þau kölluð
Eddu Borg-hljómborð,“ segir tónlistar-
konan og hlær. „Fyrir ári sameinaðist
fjölskyldan mín um að gefa mér svona
hljómborð í afmælisgjöf. Dóttir mín
gekk í það að leita svona hljómborð
uppi á Ebay og svo var bara lagt í púkk
og keypt. Ég hef ekki notað hljómborð-
ið enn þá og er að hugsa um að geyma
það þangað til Módel snýr aftur.“
Blaðamaður hváir, enda vitað að end-
urkoma Módels er mörgum tónlistar-
unnandanum ofarlega í huga. Edda
útskýrir að skipuleggjendur tónlist-
arhátíðarinnar Aldrei fór ég suður á
Ísafirði hafi mikið reynt að fá Módel
til að koma fram á hátíðinni á síðasta
ári. „Það munaði litlu að það hefði tek-
ist þá, en án gríns þá erum við alvar-
lega að spá í að koma með „kombakk“.
Frissi [Friðrik Karlsson] er fluttur
aftur til landsins og þannig opnast
gluggi. Eiríkur Hauksson er búsett-
ur í Noregi en hann er til, þegar rétta
augnablikið gefst. Ég veit ekki hvort
við myndum flytja nýtt efni því þetta
er allt á umræðustiginu enn þá,“ segir
Edda.
Einnig eru tímamót í starfsemi
Tónskóla Eddu Borg um þessar
mundir því skólinn er að sigla inn
í sitt 25. starfsár og útskrifar senn
sinn fyrsta nemanda af framhalds-
stigi. Þá er tónlistarkonan nánast
tilbúin með aðra plötu þar sem hún
syngur djassstandarda með banda-
ríska píanóleikaranum Don Randi,
fyrrverandi hljómsveitarstjóra Frank
Sinatra. „Það kemur í ljós hvenær sú
plata kemur út, en ég tók hana upp
um leið og ég vann að fyrstu sólóplöt-
unni. Um leið og ég byrjaði var eins
og opnaðist fyrir allt heila klabbið,“
segir Edda.
kjartan@fréttablaðið.is
Módel íhugar
endurkomu alvarlega
Tónlistarkonan Edda Borg fylgir eft ir útgáfu sinnar fyrstu sólóplötu á Café Rósenberg
í kvöld. Módel, hljómsveitin sem hún gerði það gott með á níunda áratugnum, íhugar
endurkomu og tónskólinn hennar siglir inn í 25. starfsár sitt.
MARGT AÐ GERAST Skipuleggjendur tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður reyndu að fá Módel til að koma fram á Ísafirði á síðasta ári og
Edda Borg segir litlu hafa munað að það hefði tekist. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Merkisatburðir
1561 María, drottning Skota, snýr átján ára gömul aftur til Skot-
lands eftir þrettán ára dvöl í Frakklandi.
1871 Hið íslenska þjóðvinafélag er stofnað af alþingismönnum.
Almanak Þjóðvinafélagsins hefur komið út árlega síðan 1875.
1960 Rússar skjóta á loft gervitunglinu Sputnik 5 með hundana
Belka og Strelka innanborðs, ásamt fimmtíu músum, tveimur
rottum og fjölda plantna.
1964 Bítlamyndin A Hard Days Night er sýnd í Tónabíói og sló
öll aðsóknarmet.
1991 Mikhail Gorbachev, forseti Sovétríkjanna, er settur í stofu-
fangelsi í sumarfríi sínu á Foros á Krímskaga.
Íslenskir togarar hófu veiðar í svokallaðri Smugu í Barentshafi
þennan dag árið 1993.
Smugan er á alþjóðlegu hafssvæði og höfðu Íslendingar
ekki stundað veiðar þar frá því um 1960. Hins vegar höfðu
færeyskir togarar undir hentifána
stundað þar veiðar og landað
aflanum meðal annars hér á landi.
Veiðarnar 1993 vöktu strax upp
mikla andstöðu hjá norskum og
rússneskum stjórnvöldum, sem
töldu að fiskurinn þar væri af
flökkustofnum er gengju úr lög-
sögu þeirra í fæðuleit. Íslenskir
útgerðarmenn voru á öðru máli og
sögðu að þar sem Smugan væri á
alþjóðlegu hafssvæði hefðu íslensk
skip fullan rétt til veiða þar. Að
auki töldu þeir sig eiga sögulegan
rétt til veiða vegna fyrri veru
sinnar á þessum slóðum.
Árið 1994 gengu veiðarnar í Smugunni glimrandi vel.
Íslensku skipin veiddu um 37 tonn, sem skiluðu um fimm
milljörðum í þjóðarbúið. Næstu ár fóru veiðarnar minnkandi.
Strax árið 1994 hófust samningaviðræður milli þjóðanna
um lausn deilunnar og var hún til lykta leidd með kvótaskipt-
um í apríl 1999.
ÞETTA GERÐIST: 19. ÁGÚST 1993
Smuguveiðar hinar
síðari hefj ast