Fréttablaðið - 19.08.2013, Side 19
KERTALJÓS OG NOTALEGHEIT
Sumarið líður fljótt og nú er aftur kominn tími kertaljósa á
kvöldin. Það er reyndar kósí að kveikja á kertum en ef veður er
gott má sitja úti á verönd með kertaljós í luktum. Stemningin
verður róandi og notaleg.
STOFU-
STÁSS Rakel
Sævarsdóttir
listfræðingur
endurhleður
batteríin við
uppáhalds-
hlutinn sinn
á heimilinu,
píanóið. Rakel
heldur úti bæði
myndlistar-
galleríi og
hönnunar-
verslun á
netinu.
MYND/GVA
Ég hef átt misgóðar stundir við þetta píanó, stundum hamrað á það en líka leikið á það með gleði. Foreldrar mínir keyptu það svo ég gæti
æft mig heima en ég lærði á píanó sem barn þar sem
ég ólst upp, í Hnífsdal,“ segir Rakel Sævarsdóttir list-
fræðingur þegar hún er spurð út í uppáhaldshlutinn
sinn. Píanóið góða skipar heiðurssess á heimilinu
eftir að hún fékk það til eignar á fullorðinsárum.
„Pabbi hélt ræðu þegar ég gifti mig fyrir tíu árum
og gaf okkur píanóið í brúðkaupsgjöf. Ég hef flutt
það með mér þrisvar milli staða og það er alltaf jafn
mikill höfuðverkur. Það þarf sérhæfða flutningamenn
í verkið,“ segir Rakel hlæjandi. Píanóið muni þó fylgja
henni áfram gegnum súrt og sætt.
„Það er einstaklega gott að kúpla sig út úr amstri
dagsins með því að setjast niður við píanóið og spila.
Eldra barnið mitt er líka farið að spila svolítið svo
píanóið mun fylgja fjölskyldunni áfram um ókomna
tíð. Það tekur auðvitað sitt pláss en það er falleg
mubla.“
Fallegir hlutir eru Rakel hugleiknir en hún heldur
úti bæði myndlistargalleríi á netinu og vefverslun
með íslenska hönnun. Netgalleríið muses.is fór í loftið
árið 2009 en þar er hægt að nálgast verk ungra mynd-
listarmanna. Nýlega opnaði Rakel svo vefverslunina
kaupstadur.is, þar sem íslensk hönnun og handverk
er til sölu.
„Ég vildi auðvelda fólki aðgang að fallegum munum
og koma því fallega sem skapandi fólk er að gera á
framfæri á netinu. Það eru ekki allir sem þræða gallerí
eða vinnustofur listamanna en vilja nálgast unga
íslenska myndlistamenn og fylgjast með því sem er
að gerast. Á muses.is er hægt að nálgast myndlist á
auðveldan máta og auk þess setjum við upp sýningar.
Níunda sýningin okkar verður opnuð þann 24. ágúst
á Ísafirði,“ útskýrir Rakel. „Á kaupstadur.is má svo
nálgast það nýjasta í íslenskri hönnun. Það er svo
mikill sköpunarkraftur í þjóðfélaginu og ungt fólk
er að gera metnaðarfulla hluti, bæði í myndlist og í
hönnun.“ ✮ heida@365.is
KÚPLAR SIG ÚT ÚR
AMSTRI DAGSINS
HEIMILI Rakel Sævarsdóttir listfræðingur heldur úti myndlistargalleríi á
netinu og hönnunarverslun. Hún leikur á píanó til að endurhlaða batteríin.
Save the Children á Íslandi