Fréttablaðið - 19.08.2013, Page 43
KYNNING − AUGLÝSING Atvinnumiðlun19. ÁGÚST 2013 MÁNUDAGUR 3
Flestir sem standa frammi fyrir því að bæta við sig starfsfólki, eða hafa ráðið í stöðugildi sem hafa losnað, gera
sér grein fyrir að ráðningar eru langtíma-
fjárfesting. Kostnaður við að ráða inn
starfsfólk er að miklu leyti fastur en frammi-
staða einstaklinga getur verið mjög misjöfn
og ólíkar aðstæður henta fólki misvel. Til að
manna allar stöður með rétta fólkinu þarf
að vanda til verka. Ráðningar eru því vísindi
og innsæi í bland,“ segir Gunnar Haugen,
framkvæmdastjóri Capacent Ráðninga,
en fyrirtækið hefur trausta, áratuga langa
reynslu af ráðningum.
„Meðalstarfsaldur ráðgjafa okkar er langur
og hjá okkur starfar hópur fólks sem hefur
unnið við ráðningar síðan snemma á níunda
áratugnum,“ segir Gunnar, sem sjálfur hefur
starfað hjá Capacent í þrettán ár.
„Við byrjuðum að vinna á markaði sem leit
á ráðningar sem verkefni sem hægt væri að
leysa fyrir hádegi á mánudegi. Í dag er notast
við vandaðar vinnuaðferðir sem tryggja að
ávallt sé tekin eins góð ákvörðun og hægt er
út frá fyrirliggjandi upplýsingum,“ útskýrir
Gunnar.
Leitað í brunn þekkingar
Capacent telur rúmlega hundrað starfsmenn
en þrettán starfa á ráðningarsviðinu.
„Í fyrirtækinu öllu býr yfirgripsmikil
þekking á mannauðsráðgjöf og öllu
sem viðkemur starfsmannavali. Því
hafa ráðgjafar okkar greiðan aðgang að
sérfræðingum fyrirtækisins þegar koma
upp álitaefni af ýmsu tagi og eins til að dýpka
þekkingu ráðgjafa á tilteknum rekstri eða
starfsgreinum.“
Fagleg vinnubrögð í hávegum
Í samkeppni um hæfasta starfsfólkið nálgast
Capacent umsækjendur með tveimur
lykilferlum; að afla umsækjenda og velja þá
hæfustu úr.
„Fyrir áratug var nóg að setja atvinnu-
auglýsingu í Morgunblaðið sem allir lásu
en í dag eru atvinnuauglýsingar á mun fleiri
miðlum, eins og vefsíðu Capacent sem er með
40 þúsund heimsóknir á mánuði og mikla
virkni. Stundum dugar það ekki til og þá
auglýsum við annars staðar til að finna rétta
fólkið sem hægt er að kynna fyrir viðskipta-
vinum,“ segir Gunnar.
„Við leggjum áherslu á að kynnast
viðskiptavinum okkar og umhverfi þeirra
eins vel og hægt er. Með því getum við ráðlagt
þeim sem allra best og fundið starfsfólk sem
hentar þeirra umhverfi, og öfugt. Því er í mörg
horn að líta við ráðningar og hvergi slegið af
faglegum vinnubrögðum,“ segir Gunnar.
Til viðbótar við aðrar valaðferðir notar
Capacent staðlað og staðfært persónuleika-
mat, ýmis hæfnipróf og mælitæki frá SHL,
sem er stærsta prófafyrirtæki í heimi.
„Með faglegum vinnubrögðum er tekin
besta ákvörðunin. Það hjálpar umsækjendum
að finna starf við hæfi og fyrirtækjum að ráða
rétta starfsfólkið. Það er mikilvægt að gildi
umsækjanda og fyrirtækjamenning passi
vel saman. Þannig eru meiri líkur á að ná
hámarksárangri og ánægju í starfi.“
Varhugaverður spjallari
Þegar kemur að ráðningum segir Gunnar
mikilvægt að fyrirtæki og umsækjendur geti
leitað til trausts og reynslumikils ráðningar-
aðila.
„Við tökum viðtöl við mörg þúsund
manns á ári vegna hundraða starfa fyrir
mismunandi fyrirtæki. Reynsla okkar og
þekking er því talsverð. Ráðgjafar okkar
hafa allir fengið ítarlega þjálfun í gerð og
töku ráðninga viðtala og nota viðurkennda
matstækni þegar við á,“ útskýrir Gunnar.
Í ráðningarferlinu segir Gunnar helstu
hættu umsækjenda að falla í þekktar gildrur
og telja sig óhultan af því að hann veit af
þeim.
„Algengasta hættan er þegar viðtal dettur
í spjall eða er of afslappað. Spjall getur
orðið til þess að einstaklingar eru ráðnir
út frá því hversu vel viðmælanda líkar við
umsækjanda en það gleymist að leggja mat
á mikilvæg atriði sem lúta að viðhorfum og
þekkingu umsækjenda. Önnur algeng gildra
er „geislabaugsáhrifin“. Þá verður eitthvað
jákvætt í fari umsækjandans til þess að hann
er talinn hafa aðra jákvæða eiginleika án
þess að það sé kannað frekar. Þetta og fleira
hafa mannauðsfræðin dregið upp síðustu
70 árin og búnar hafa verið til aðferðir
sem draga úr hættu á þessum villum við
ráðningar.“
Allir hafa tækifæri
Að sögn Gunnars er nú mikil eftirspurn eftir
ýmsum sérfræðingum og starfsfólki í upp-
lýsingageirann. „Við opinber ráðningar-
ferli er krafa um háskólapróf orðin ríkari
en flestir gera sér grein fyrir að reynsla er
býsna mikils virði líka. Umsækjendur verða
þó alltaf að kanna hvaða kröfur eru gerðar
til þeirra í auglýsingu og leggja mat á eigin
hæfni með tilliti til þeirra.“
Capacent er í Ármúla 13. Sjá nánar á
www.capacent.is
Ráðning er fjárfesting
Hjá Capacent starfar hópur traustra og reyndra ráðgjafa sem auðvelda fyrirtækjum að finna rétta starfsfólkið.
Gunnar Haugen, framkvæmdastjóri Capacent Ráðninga, fyrir framan nýjar höfuðstöðvar fyrirtækisins í Ármúla 13 í Reykjavík. MYND/GVA