Fréttablaðið - 19.08.2013, Page 44

Fréttablaðið - 19.08.2013, Page 44
KYNNING − AUGLÝSINGAtvinnumiðlun MÁNUDAGUR 19. ÁGÚST 20134 Hjá Vinnumálastofnun starfar öf lugur hópur ráðgjafa sem veitir einstaklingum í starfsleit margvíslega ráðgjöf og þjónustu. Áhersla er lögð á að efla einstaklinginn og skapa honum forskot á vinnumarkaði, t.d. með því að aðstoða við ferilskrárgerð og kynningarbréf og undirbúning f y r i r at v i n nuv iðt a l . Þá er einnig boðið upp á áhugasviðs- könnun, markmiðasetningu og aðstoð og ráðgjöf vegna náms- og/ eða starfsvals, auk miðlunar í störf. Allt miðar þetta að því að auka þátt- töku og möguleika einstaklinga á vinnumarkaði. Fjölbreytt úrræði eru í boði fyrir atvinnu leitendur, s.s. starfsleitarnámskeið og ýmis starfstengd námskeið í samstarfi v ið námskeiðsha ldara/skóla. Vinnumálastofnun leggur mikla áherslu á að mæta fjölbreyttum þörfum at vinnuleitenda með sérhæfðri þjónustu og starfa þar ráðgjafar með sérfræðiþekkingu á sviði náms- og starfsráðgjafar og félags- og sálfræðilegrar ráð- gjafar. Vinnumálastofnun rekur átta þjónustuskrifstofur í kringum landið, auk þriggja smærri útibúa. Ráðgjöf fyrir ungt fólk Atvinnutorg er samstarfsverkefni VMST og sveitarfélaga um sér- hæfða þjónustu við ungt fólk sem hvorki er í námi eða vinnu. Ráðgjafar Atvinnutorgs bjóða ungum einstak lingum upp á einstaklingsmiðaða ráðgjöf með áherslu á daglega virkni og þátt- töku í fjölbreyttum úrræðum, sem felast í tilboði um starfsþjálfun/ vinnu, nám/námstengd úrræði, áfengis- eða vímuefnameðferð eða starfshæfingu. Skert starfshæfni Ráðgjafarþjónusta Vinnumála- stofnunar leggur nú auk na áherslu á að veita atvinnu- leitendum með skerta starfshæfni einstaklings miðaða þjónustu með áherslu á árangursríkar leiðir til að sem f lestir verði aftur virkir á vinnumarkaði. Markmiðið er ekki síst að koma í veg fyrir að atvinnuleysi leiði til óvinnufærni sem gæti endað í ótímabærri örorku. Atvinna með stuðningi (AMS), sem er hluti af þessari þjónustu, er árangursrík leið í atvinnumálum fyrir þá er þurfa aðstoð við að fá vinnu á almennum vinnumarkaði. Áhersla er lögð víðtækan stuðning við þá sem hafa skerta vinnu- getu vegna andlegrar og /eða líkamlegrar fötlunar, aðstoð við að finna rétta starfið og að veita stuðning á nýjum vinnustað. Fjölbreytt vinnumarkaðsúrræði Þjónusta Vinnumálastofnunar felst í öflugri vinnumiðlun og aðstoð við atvinnurekendur við ráðningu starfsfólks og upplýsingar um framboð á vinnuafli. Þá geta fyrir- tæki sótt um styrk til að þjálfa nýja starfsmenn og greiðir Atvinnu- leysistryggingasjóður sem nemur upphæð atvinnuleysis bóta ef ráðið er úr hópi atvinnuleitenda. Slík vinnumarkaðsúrræði hafa reynst vel og hefur meirihluti starfsmanna sem ráðnir hafa verið á slíkum forsendum haldið áfram starfi. Atvinnuleit erlendis Ráðgjafar Vinnumálastofnunar aðstoða einnig þá sem hyggja á atvinnuleit erlendis. Gott er að byrja slíka leit á að skoða heimasíðu samevrópsku vinnu- m iðlu na r i n na r, w w w.eu res. is. Nánari upplýsingar fást hjá EURES-ráðgjafa VMST. Nánari upplýsingar um þjónustu Vinnumálastofnunar má finna á heimasíðunni www.vinnumala- stofnun.is eða með því að senda tölvupóst á radgjafar@vmst.is. Fjölbreytt og öflug þjónusta Vinnumálastofnunar Ráðgjafar Vinnumálastofnunar veita einstaklingum fjölbreytta ráðgjöf og þjónustu. Vinnumálastofnun rekur átta þjónustuskrifstofur um allt land auk þriggja smærri útibúa. Rágjafar búa yfir mikilli og fjölbreyttri þekkingu. Öflugur hópur ráðgjafa starfar hjá Vinnumála- stofnun og veitir einstak lingum ráðgjöf. MYND/GVA Ferilskrá á að vera þannig úr garði gerð að hún endurspegli menntun, reynslu og hæfni umsækjanda. Lengd ferilskrár fer eftir menntun og reynslu en algengt er að ferilskrá rúmist á A4-blaði. Útlit ferilskrár skal vera einfalt og aðgengilegt. Forðast skal allt skraut og flúr. Mikilvægt er að málfar sé stutt, hnitmiðað og vandað og að staf- setning sé í lagi. Eftirfarandi þættir þurfa að koma fram á ferilskrá: ● Persónulegar upplýsingar Nafn, heimilisfang, símanúmer, kennitala, hjúskaparstaða og fjölskylduaðstæður. Æskilegt er skanna inn andlitsmynd efst á umsóknina. ● Markmið Sumir kjósa að setja markmið á ferilskrá. Það á þó einungis við þegar leitað er að framtíðarstarfi. Þar getur viðkomandi lýst óskum sínum og markmiðum í stuttu máli, þ.e. hvers konar starf hann stefnir að að vinna í framtíðinni. ● Menntun Efst er lokapróf/ menntun sem er næst í tíma- röð, t.d. frá háskóla, sérskóla eða framhaldsskóla eftir því sem við á. Síðan kemur t.d. framhalds- skóli og síðast grunnskóli. Einnig má tilgreina lengri námskeið sem geta haft þýðingu. Stutt námskeið er óþarfi að tíunda. ● Starfsreynsla Mikilvægt er að gefa nákvæmt yfirlit yfir fyrri störf. Byrja á núverandi starfi eða síðasta starfi, síðan næsta þar á undan og þannig koll af kolli. Ekki þarf að gera grein fyrir sumar störfum ef langt er um liðið. Í ferilskrá þarf að koma fram nafn fyrirtækis, starfsheiti þitt innan þess og tímabil á hverjum stað. ● Áhugamál Með því að greina frá áhugamálum og tóm stundum fær atvinnurekandi mynd af umsækjanda sem persónu. Það ýtir svo undir að hann muni eftir honum þegar ákvörðun um ráðningu er tekin. ● Meðmælendur Meðmælandi (eða umsagnaraðili ef svo ber undir) gefur upplýsingar um hvernig um- sækjandi hefur staðið sig við fyrri störf og hvernig hann er sem ein- staklingur. Meðmælandi er oft- ast fyrrverandi vinnuveitandi en getur þó verið kennari eða vinnu- félagi. Mikilvægt er að hafa alltaf samband við þann eða þá sem til- greindir eru sem meðmælendur á ferilskrá áður en hún er send til atvinnurekanda. ● Fylgigögn Fylgiskjöl eru próf- skírteini, ýmis vottorð um mennt- un og störf, sem og einkunnir úr skóla. Einnig geta þetta verið vott- orð um tómstundastörf og aðra sjálfboðavinnu. Góð meðmæla- bréf frá fyrrverandi vinnu veitanda eru alltaf til bóta. Fylgiskjöl og meðmælabréf eru merkt í núm- eraröð, þannig að númerin á þeim séu í samræmi við þau númer sem gefin eru upp í ferilskrá. Hvernig á að gera ferilskrá? Það vill stundum vefjast fyrir fólki hvernig á að gera ferilskrá þegar sótt er um vinnu. Flestar atvinnumiðlanir eru með leiðbeiningar um það á heimasíðum sínum og því er auðvelt að nálgast þær. Hér að neðan eru leiðbeiningar frá Stúdentamiðlun um hvernig best er að gera ferilskrána. „Strax eftir verslunarmannahelgi fór allt af stað á vinnumarkaðnum,“ segir Kolbeinn Pálsson, framkvæmdastjóri job.is. „Þá fóru fyrirtæki og stofnanir á fullt að auglýsa eftir fólki til að mæta því þegar sumar- starfsmenn hætta.“ „Job.is er mjög öflugur vefur til að auglýsa eftir starfsfólki, því við höfum 28 þúsund einstaklinga á skrá og þeir fá sendan tölvupóst um störf sem auglýst eru á þeirra áhugasviði. En það er bara hálf sagan, því með job.is geta atvinnurekendur jafnframt tekið við öllum umsóknum, flokkað þær og svarað umsækjendum. Þetta er miklu auðveldari leið til að vinna úr umsóknum um atvinnu en að láta persónulega póst hólfið fyllast af umsóknum og ítrekunum,“ segir Kolbeinn. Umsjónarkerfið fyrir umsóknir kallast Job- Pro og er notkun þess innifalin í birtingu aug- lýsingar hjá job.is. Kolbeinn nefnir sem dæmi að ef 100 umsóknir berast um starf og fimm eru valdir í viðtal, þá er hægt að senda hinum 95 umsækjendunum svar úr Job-Pro-kerfinu „með einum smelli“, eins og hann orðar það. „Þeir sem sjá um ráðningar þurfa þá ekki að fylla eigin pósthólf og geta með einföldum hætti sýnt þá kurteisi að svara öllum umsækjendum.“ Birting atvinnuauglýsingar hjá job.is í fjórar vikur kostar 26.700 kr. án vsk. og eru ótakmörkuð afnot af Job-Pro umsjónarkerfinu inni- falin í verðinu. Einnig stendur til boða að gera fastan samning við Job. is um birtingu atvinnuauglýsinga og er sá valkostur sérstaklega vin- sæll hjá fyrirtækjum og stofnunum sem þurfa að ráða til sín fólk með reglulegum hætti. „Miklu auðveldari leið til að vinna úr um- sóknum um atvinnu“ Miklu skiptir að ferilskráin sé vel gerð. Kolbeinn Pálsson, framkvæmdastjóri job.is.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.