Fréttablaðið - 19.08.2013, Side 50
19. ágúst 2013 MÁNUDAGUR| MENNING | 22
Listkennsludeild Listaháskólans
býður uppá námskeið á
meistarastigi fyrir starfandi
listgreina kennara og listafólk
sem vill sækja sér símenntun.
– Listir og sjálfbærni
– Rödd - spuni- tjáning
– Skapandi skrif
– Rafmögnuð tónlist
– Listkennsla nemenda
með sérþarfir
– Námsefnisgerð
– Fræðsla fullorðinna
– Skapandi leiðir
í píanókennslu
– Bókagerð
– Myndrænt leikhús/
hlutaleikhús
Allar nánari upplýsingar um námskeiðin,
og umsóknareyðublað er að finna á lhi.is
OPIN NÁMSKEIÐ
Í LIST KENNSLU-
DEILD
NÁMSKEIÐ Á HAUSTÖNN 2013
„Þetta er bara eitthvað sem ég hef haldið til haga og
er úr öllum áttum og frá öllum tímum,“ segir Ófeigur
Sigurðsson rithöfundur um efni hinnar nýju ljóðabók-
ar sinnar, Kviðlingar. Þegar haft er orð á því að bókin
virðist unnin með frekar frumstæðri prenttækni viður-
kennir hann það fúslega. „Þetta er bara svona heima-
föndur,“ segir hann og kveðst vera með ansi lélega ljós-
ritunarvél enda sé hún komin til ára sinna. „En þetta
er einungis gefið út í hundrað eintökum fyrir fólkið í
kringum mig,“ segir hann.
Þegar betur er að gáð er um úthugsaða list að ræða
því Ófeigur segir bókina ljósritaða á gegnsæjan pappír.
„Hún er fyrst vélrituð upp og þar verður hún gegnsæ
líka þannig að þetta er eiginlega tvöfalt gegnsæi,“
útskýrir hann. „Ég hef gert svona heimatilbúnar bækur
áður. Provence í endursýningu var vélrituð upp og
síðan ljósrituð og svo gerði ég eina bók úr sílikoni. Hún
hét Biscayne Blvd og var alveg gegnsæ.“
„Það hlýtur að vera djúp meining bak við það að hafa
bækur gegnsæjar,“ segir blaðamaður spekingslega.
„Já, alveg hyldjúp. Eiginlega botnlaus,“ segir höfundur-
inn, ekki minna spekingslegur.
En útgáfuheitið Sjálfskeiðungur. Hefur það einhverja
æðri þýðingu en í fljótu bragði virðist? „Ja, þetta er mín
sjálfsútgáfa og Ebenezerprent er bara dregið af tegund
ljósritunarvélarinnar. Hún er af gerðinni Ebenezer,“
segir Ófeigur og er greinilega skemmt.
Þegar haft er orð á að Kviðlingar hafi óneitanlega yfir-
bragð fortíðar kemur yfirlýsing frá höfundinum:
„Ég er hrifinn af fegurð fortíðarinnar, til dæmis göml-
um ljóðabókum og gömlu bragarháttunum sem ég lærði
sem unglingur og bý enn að. Ég hafði bragfræði Svein-
björns Beinteinssonar að leiðarljósi.“
En hvar skyldu menn geta nálgast þessa nýju bók?
„Hún mun fást í Útúrdúr á Hverfisgötu og svo bara hjá
mér,“ er svarið.
Spurð ur í lokin hvort hann sé með skáldsögu í smíðum
í jólabókaflóðið svarar Ófeigur.
„Já og nei. Ég er með skáldsögu en hún kemur ekki út
fyrr en á næsta ári.“ gun@frettabladid.is
Kviðlingar úr öllum tímum og áttum
Ófeigur Sigurðsson rithöfundur hefur sent frá sér ljóðakverið Kviðlingar í eitt hundrað eintökum. Það er útgefi ð af Sjálfskeiðungi og
prentað í Ebenezerprenti í Reykjavík. Það var prýðis tilefni til að slá á þráðinn til skáldsins og forvitnast um hvað því gengi til.
RITHÖFUNDURINN Ég er hrifinn af fegurð fortíðar innar, til dæmis gömlum
ljóðabókum og gömlu bragarháttunum sem ég lærði sem unglingur,“ segir
Ófeigur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hljómsveitin ADHD spilar
í Fríkirkjunni í Reykjavík í
kvöld, 19. ágúst. „Þetta eru
nokkuð merkilegir tónleikar því
með þeim snýr ADHD aftur á
sinn heimavöll en fyrstu stóru
tónleikar sveitarinnar á höfuð-
borgarsvæðinu fóru fram í
Fríkirkjunni fyrir rétt rúmum
fimm árum,“ segir Óskar Guð-
jónsson, einn hljómsveitarmeð-
lima.
ADHD hefur að undanförnu
spilað mikið erlendis. „Við héld-
um 18 tónleika á 19 dögum,“
segir Óskar og útskýrir að
sveitin hafi ferðast milli landa
í svefnrútum þannig að tíminn
hafi verið nýttur vel.
ADHD er komin á kortið í
Evrópu því síðustu þrjár plötur
sveitarinnar hafa verið gefnar
út af Contemplate Music í
Þýskalandi.
Tónleikarnir í kvöld hefjast
klukkan 20. Þeir eru hluti af
Jazzhátíð Reykjavíkur.
- gun
ADHD spilar á
heimavelli
SAXÓFÓNLEIKARINN „Þetta verða
merkilegir tónleikar,“ lofar Óskar.
➜ Í eyðidal/ á Ísalandi/ ég aldrei skal/
úti verða/ minna ferða/ á Sprengisandi
MENNING