Fréttablaðið - 19.08.2013, Page 52
19. ágúst 2013 MÁNUDAGUR| MENNING | 24
Frumkvöðullinn og eigandi net-
verslunarinnar Nasty Gal, Sophia
Amoruso, er stödd í New York
þessa dagana þar sem hún kynn-
ir nýjustu „Ready to Wear“-línu
Nasty Gal.
Tískuveldið Nasty Gal hefur
heldur betur slegið í gegn en
verslunin leggur áherslu á
klæðnað og fylgihluti fyrir konur
á aldrinum 15-35 ára. Amoruso
sagði nýlegu frá því í viðtali við
Style.com að velgengni fyrirtæk-
isins væri meðal annars vegna
þess hversu mikla áherslu hún
leggur á ljósmyndirnar.
Mikil vinna fer í að mynda
fötin á síðunni og hver flík er
mynduð í bak og fyrir. Hún segir
að myndirnar séu unnar af mik-
illi ást og nákvæmni, sem er
lykilatriði ef þú ætlar að vera
með fataverslun á netinu. Amor-
uso hélt því einnig fram að það
skipti miklu máli að vera með föt
sem standa upp úr og eru öðru-
vísi þar sem þeim er frekar veitt
eftirtekt. Árið 2012 var mjög gott
hjá tískuveldinu, en það halaði
inn hvorki meira né minna en 20
milljarða íslenskra króna fyrir
sölu á fatnaði og fylgihlutum.
Tískuveldið Nasty Gal seldi fyrir
tuttugu milljarða á síðasta ári
Eigandinn Sophia Amoruso segir góðar ljósmyndir vera lykilatriði.
GENGUR VEL Sophia Amoruso opnaði
Nasty Gal árið 2006.
Söngkonan Lady Gaga er brjál-
uð út í slúðurkónginn Perez
Hilton ef marka má skilaboð
hennar á samfélagsmiðlinum
Twitter. Gaga heldur því fram
að Hilton áreiti sig og er hún
viss um að Hilton hafi leigt
íbúð í sömu blokk og hún býr í,
eingöngu til þess að njósna um
sig. Gaga á að hafa brjálast yfir
atvikinu og segir hún á Twitter-
síðu sinni að hún vilji fá að vera
látin í friði og að hegðun Hiltons
sé komin út í öfgar. Það er ekki
svo langt síðan Gaga og Hilton
voru miklir vinir, en það vina-
samband virðist ekki hafa enst
lengi eins og svo mörg önnur hjá
fræga fólkinu.
Lady Gaga æf
út í Hilton
Ungstirnið og meðlimur hljóm-
sveitarinnar Jonas Brothers,
Nick Jonas glímir við sykursýki
1. Hann segir baráttuna oft erfiða
og hann reynir að taka einn dag
einu. Jonas greindist með sykur-
sýki 1 fyrir átta árum og er enn
að læra inn á sjúkdóminn. Í við-
tali við The Huffington Post sagði
hann að það hjálpaði sér mikið að
stunda líkamsrækt og borða holl-
an mat. „Sykursýkina þarf ég að
sætta mig við, en með heilbrigð-
um lífsstíl get ég lifað ágætu lífi,“
segir hinn ungi Jonas. Hann segir
jafnframt að hann þurfi að fara
mjög varlega í ræktinni, því það
hafi áhrif á blóðsykurinn ef hann
æfi of mikið, hinn gullni meðal-
vegur er það sem gildir sagði
hann. Jonas Brothers ferðast nú
um Bandaríkin og kynnir efni á
nýútkominni plötu sem nefnist
einfaldlega V.
Glímir við
sykursýki
Forsetafrú Bandaríkjanna, Mic-
helle Obama, vinnur nú að gerð
nýrrar rappplötu sem ber heitið
„Healthier America“. Platan á að
stuðla að heilbrigðara líferni og
hefur frú Obama barist fyrir því
að Bandaríkjamenn borði holl-
ari mat og hreyfi sig meira. Á
plötunni má heyra lög á borð við
„Veggie Luv“, „Let´s Move“ og „U
R What You Eat“. Margir frægir
standa að gerð plötunnar og má
þar nefna söngkonuna Ashanti,
Jordin Sparks og rapparann
DMC sem gerði garðinn frægan
með hljómsveit sinni Run-D.M.C.
Frú Obama mun því miður ekki
syngja sjálf inn á plötuna, en hún
mun koma fram í tónlistarmynd-
böndum sem verða gerð við öll
lög plötunnar. Plötunni verður
dreift fyrst í New York en síðar
um öll Bandaríkin.
Forsetafrú ger-
ir rappplötu
MEÐ SYKURSÝKI 1 Nick Jonas til
vinstri ásamt bræðrum sýnum í
hljómsveitinin Jonas Brothers.
NORDICPHOTOS/GETTY
Í RAPPIÐ Michelle Obama berst fyrir
heilbrigðu lífi meðal íbúa Banda-
ríkjanna. NORDICPHOTOS/GETTY