Fréttablaðið - 19.08.2013, Page 53
MÁNUDAGUR 19. ágúst 2013 | MENNING | 25
Hljómsveitin Lockerbie hefur gefið
út lagið Heim og er það komið í
útvarpsspilun.
„Við frumfluttum lagið á X-inu
á miðvikudaginn og settum það á
netið í kjölfarið,“ segir Þórður Páll
Pálsson úr Lockerbie. „Við erum
nokkuð sáttir við það. Þetta er
fyrsta lagið af nýju plötunni okkar
sem við erum að vinna í að klára og
vonum að geti komið út í október.“
Aðspurður segist hann ekki vita
nákvæmlega um hvað lagið er, enda
samdi hann ekki textann. „Það
hefur tekið mjög miklum hamskipt-
um. Það hét fyrst Eiturlyf en það
var eitthvað djók á hljómsveitar-
æfingum. Núna er það um mann
sem er að drukkna, held ég.“
Fyrsta plata Lockerbie, Ólgusjór,
kom út í Japan og öllum þýskumæl-
andi löndum og er mikill áhugi á að
fá nýju plötuna inn á sömu mark-
aði. Til að fylgja henni eftir spilaði
sveitin í Evrópu á sínum tíma og
stendur til að gera það sama til að
fylgja eftir nýju plötunni. - fb
Um mann sem er að drukkna
Lockerbie hefur gefið út lagið Heim sem verður á næstu plötu sveitarinnar.
LockERbIE Hljómsveitin hefur gefið út
lagið Heim.
Vandaðir danstímar & glæsileg sýning í hörpunni!
Opið hús 26. -31. ágúst þegar önnin hefst!
Forskráning nú þegar hafi n á dancecenter.is!
DansLið þáttanna
kemur sérstaklega
á vegum:
Fáðu ÚTRÁS fyrir DansGleðina!
Barnadansar: Mini-Hip Hop, Jazzballett & ballett
Break Hip Hop Jazzfunk Nútímadans Zumba
Tryggðu þér pláss & skráðu þig strax!
Öll skráning & nánari upplýsingar á
dancecenter.is. Facebook/DanceCenter RVK.
dancecenter@dancecenter.is – Sími 777 3685
Mánudaga Þriðjudaga Miðvikudagur Fimmtudaga Föstudaga Laugardaga
14.00-15.00 Barnadansar 4-6
ára: Mini-Hip Hop,
Jazzballett & ballett
15.00-16.00 Break 5-12 ára
17.30-18.30 Break 5-12 ára
(18.50-19.50)
19.00-20.00 10-12 ára
Kameron
7-9 ára (18.50-19.50)
Kameron og Thelma Tara
7-9 ára (18.50-19.50)
Thelma Tara
10-12 ára
(18.30-19.30)
Kameron
20.00-21.00 16-19, 20+
Kameron
13-15 ára (19.50-20.50)
Kameron
16-19, 20+ (19.50-
20.50) Kameron
13-15 ára
(19.30-20.30)
Kameron
21.00-22.00 Nútímadans
Kameron
SjóðHeitt ZUMBA
(20.50-21.50)
Nútímadans (20.50-
21.50) Kameron
Break Nútímadans Jazzfunk & Hip Hop
Fagfólk DanceCenter & Kameron Bink úr So You Think You Can Dance?
STUNDASKRÁ – Grensávegur
Stundaskrá
fyrir Mjódd er á
dancecenter.is
KENNSLUSTAÐIR
REYKJAVÍK:
Grensásvegur 14,
Mjóddin -
Álfabakka 14, 3.hæð
KÓPAVOGI:
HK, 2.hæð,
Digranesvegi
GARÐABÆ:
Ásgarði, 2.hæð
HAFNARFJÖRÐUR:
FH, Kapplakrika
„Hvernig á maður að vita það
núna hvort manni líkar þetta
eftir 30 ár eða ekki og hverjum
er ekki sama,“ segir hönnuður-
inn Marc Jacobs í viðtali við
New York Magazine á dögun-
um. Jacobs segir fólk spyrja sig
sífellt hvort hann hafi hugsað
almennilega út í það hvernig húð-
flúrið verði þegar hann er kom-
inn á áttræðisaldurinn. Líkami
Jacobs er fallega skreyttur með
ýmsum húðflúruðum fígúrum
sem hann er hæstánægður með í
dag. „Þetta byrjaði allt með bull-
terrier-hundunum mínum,“ segir
Jacobs en hann er með húðflúr
af hundunum sínum, Alfred og
Daisy.
Marc Jacobs
húðflúraður í
bak og fyrir
Noel Gallagher gefur lítið fyrir
það að hljómsveitin Oasis komi
saman á nýjan leik. „Það mun pott-
þétt ekki gerast. En hver veit hvað
gerist eftir tuttugu ár? Þá verð
ég þrjátíu eða fjörutíu ára er það
ekki? Nei, ég verð vonandi sestur í
helgan stein þá,“ sagði Gallagher í
léttum dúr.
Hann er með sína aðra sólóplötu
í undirbúningi og segist eiga hell-
ing af lögum sem fóru ekki inn á
þá síðustu. „Ég er að semja og setja
ýmislegt saman. Ég mun gera aðra
plötu, engin spurning.“
oasis snýr ekki aftur
Noel Gallagher býst ekki við endurkomu Oasis.
Oprah Winfrey vill ekki ganga
upp að altarinu af ótta við að
það eyðileggi sambandið Hin 59
ára Winfrey hefur verið í sam-
bandi með Stedman Graham í
27 ár og segir að þau gætu ekki
verið hamingjusamari. „Það
gengur mjög vel núna en þegar
þú bætir við „eiginkonu-dæm-
inu“ verður það of mikið,“ sagði
Winfrey.
Hún þakkar Graham fyrir
aðstoðina sem hann veitti henni
er sjónvarpsstöð hennar átti í
erfiðleikum. Stöðin tapaði miklu
í fyrstu en hefur náð að rétta úr
kútnum að undanförnu. „Hann
var ótrúlegur,“ sagði hún.
Vill ekkert
hjónaband
opRAh wINfREy Sjónvarpskonan er
ánægð með Stedman Graham.
NoEL GALLAGhER Rokkarinn ætlar ekki
að endurreisa Oasis á næstu áratugum.
TöffARI Fatahönnuðurinn Marc Jacobs
er með mörg húðflúr.