Fréttablaðið - 19.08.2013, Síða 54
19. ágúst 2013 MÁNUDAGUR| MENNING | 26
BAKÞANKAR
Hauks Viðars
Alfreðssonar
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM
SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT
SPARBÍÓ
AKUREYRI
KEFLAVÍK
ROGER EBERT
B R A D P I T T
COSMOPOLITAN
JULIANN GAREY / MARIE CLAIRE
SCOTT MANTZ / ACCESS HOLLYWOOD
CHICAGO SUN-TIMES
H.G., MBL
V.G., DV
2 GUNS 5, 8, 10.15(P)
THE WAY WAY BACK 8, 10.10
STRUMPARNIR 2 3.50, 6 2D
R.I.P.D. 10.10 3D
SKRÍMSLA HÁSKÓLINN 3.50, 6 2D
THE HEAT 8
-Empire
-H.G., MBL
5%
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIN
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
2 GUNS KL. 3 (TILBOÐ) - 5.30 - 8 - 10.30
WAY WAY BACK KL. 8 - 10.20
STRUMPARNIR 3D ÍSL TAL KL. 3.20 (TILBOÐ) - 5.40
STRUMPARNIR 2D ÍSL TAL KL. 3.20 (TILBOÐ) - 5.40
ONLY GOD FORGIVES KL. 8 - 10.10
GROWN UPS KL. 3.20 (TILBOÐ) - 5.40
THIS IS THE END KL. 8 - 10.25
STRUMPARNIR 3D KL. 6
ONLY GOD FORGIVES KL. 8 - 10 / WOLVERINE 3D KL. 10
GROWN UPS 2 KL. 6 - 8
-T.V., S&H - BÍÓVEFURINN
-H.S., MBL
Miðasala á: og
2 GUNS KL. 1 (TILBOÐ) - 3.20 - 5.30 - 8 - 10.30
2 GUNS LÚXUS KL. 3 - 5.30 - 8 - 10.30
THE TO DO LIST KL. 8
STRUMPARNIR 3D ÍSL TAL KL. 1 (TILBOÐ) - 3.20 - 5.40
STRUMPARNIR 2D ÍSL TAL KL. 1 (TILBOÐ) - 3.15 - 5.40
WOLVERINE 3D KL. 5 - 8 - 10.40
GROWN UPS KL. 8 -10.20
THE HEAT KL. 1 (TILBOÐ) - 10.20
-H.G., MBL -V.G., DV
DAGSKRÁIN ER Á WWW.BIOPARADIS.IS OG MIDI.IS
★★★ ★★
2 Guns
Leikstjórn: Baltasar Kormákur
LEIKARAR: DENZEL WASHINGTON,
MARK WAHLBERG, PAULA PATTON, BILL
PAXTON, EDWARD JAMES OLMOS
Það er freistandi að klína auka-
stjörnu á mynd eins og 2 Guns.
Hún er dýrasta kvikmynd sem
leikstýrt hefur verið af íslenskum
leikstjóra, skartar tveimur risa-
stjörnum í aðalhlutverkum, hefur
nú þegar halað inn sex milljarða í
miðasölu, og svo held ég bara með
Balta.
Myndin segir reyfarakennda
glæpasögu undir áhrifum frá rit-
höfundinum Elmore Leonard, þar
sem svik og prettir eru regla frek-
ar en undantekning. Hún er ekki
frumleg og enn síður fullkomin,
en framsetningin er leikstjóran-
um til mikils sóma. Hann nær því
besta úr leikurunum, og sérstak-
lega Mark Wahlberg sem sýnir
sínar fyndnustu hliðar. Denzel
Washington er líka skemmtilegur,
en litríkastir eru aukaleikararnir.
Af hverju er Bill Paxton til dæmis
ekki í öllum bíómyndum? Það væri
alveg vel þegið.
Þó persónulegra hafi ég verið
hrifnari af Contraband þá sést
það glögglega að Baltasar er orð-
inn öruggari með sig. Leikstjór-
nin er skemmtilega dólgsleg
og þau trix í bókinni sem
hann hafði ekki lært þá
hefur hann lært nú. Þá
er hasarinn vel úr garði
gerður, laus við tilgerð-
arlegan óþarfa hristing
og tölvubrellurúnk.
Það er helst handrit-
ið sem hefði mátt gera
betur. Þegar grunnhug-
myndin er ekki frumlegri
en þetta verður hún að
vera skotheld á blaði.
Á köflum er
fléttan orðin
flóknari
en mynd-
in ræður
við og þá
fer áhorf-
andann
að lengja
í næsta
skammt
af hasar.
En burt
séð frá
öl lu er
2 Guns
hress-
andi
hasarmynd sem ég hlakka til að
skoða aftur.
Haukur Viðar Alfreðsson
NIÐURSTAÐA: Sleppum
þjóðremb unni. Þrjár þræl-
sterkar stjörnur á þríeykið
Balta, Mark og Denzel.
Dólgsleg og hressandi hasarmynd
2 GUNS Denzel Washington og Mark Wahlberg leika aðalhlutverkin í 2 Guns.
Á TOPPINN Leikstjórinn
Baltasar Kormákur fór beint á
toppinn í Bandaríkjunum með
mynd sína 2 Guns
Það sést ekki á mér en stundum gleymi ég að borða. Í síðustu viku fattaði ég það um
tíuleytið að ég hafði gleymt kvöldmatnum.
Aðframkominn af næringarskorti gekk ég
þungum skrefum að nálægum pitsustað og
pantaði konung flatbakanna: pepperóní og
ananas.
Á meðan ég beið bökunnar kom maður á
mínum aldri inn á staðinn í sömu erindagjörð-
um. Ég verð að viðurkenna að ég er stútfullur
af útlitsfordómum og mér fannst hann asna-
legur að sjá. Hann var í hálfvitalegum skóm
og með óþolandi hár. Ég veit ekki hvernig
böku hann pantaði en ég heyrði hann segja
nafnið sitt. Köllum hann Hannes.
ÞARNA stóð ég í nokkrar mínútur með asna-
lega Hannesi að bíða eftir pitsu þar til síminn
hans hringdi. Að sjálfsögðu var hringitónninn
hans leiðinlegur og hann brá sér út fyrir til að
tala. Líklega við einhvern fábjána.
SKÖMMU síðar kom annar afgreiðslu-
maður með rjúkandi böku í kassa og
spurði mig hvort nafn mitt væri Hann-
es. Hinn var líklega farinn í kaffipásu.
„Nei,“ segi ég og í ljós kom að pöntunin
mín hafði misfarist. Ég þurfti því að bíða
eilítið lengur og hataði ég Hannes því helm-
ingi meira þegar hann kom aftur inn.
ÁTTI ég að segja eitthvað? Þarna stóð hann
pollrólegur og hafði ekki hugmynd um
að pitsan hans var tilbúin og uppi í hillu.
Afgreiðslufólkið gerði sér enga grein fyrir
því að þarna væri Hannes mættur. „Nei,
fjandakornið, ég get ekki farið að tala við
hann,“ hugsaði ég. Plús það, hann átti það eig-
inlega skilið að bíða eftir kólnandi pitsu fyrir
að vera í þessum skóm.
FIMM til átta mínútum síðar fékk ég bökuna
mína og gekk hröðum skrefum heim á leið.
Hannes var enn að bíða. „Gott á hann,“ hugs-
aði ég og hló inni í mér. Honum var nær að
vera með bjánalegt hár og svona stórt barka-
kýli.
ÞEGAR heim var komið tók ég til hnífapör,
disk og afþreyingarefni. Allt sem piparsveinn
þarf til að matast. Bakan lyktaði dásam-
lega og ég opnaði kassann. Við blasti skinka,
rjómaostur, laukur. Hvað var þetta? Nauta-
hakk?
ÉG trúði ekki mínum eigin augum, en aðeins
meira á karma.
Helvítið hann Hannes