Fréttablaðið - 19.08.2013, Blaðsíða 56
19. ágúst 2013 MÁNUDAGUR| SPORT | 28
ENSKI BOLTINN
LIVERPOOL - STOKE 1-0
1-0 Daniel Sturridge (37.)
ARSENAL - ASTON VILLA 1-3
1-0 Olivier Giroud (6.), 1-1 Christian Benteke
(23.), 1-2 Benteke, víti (62.), 1-3 A. Luna (85.)
NORWICH - EVERTON 2-2
1-0 Whittaker (51.), 1-1 Barkley (61.), 1-2 Seamus
Coleman (65.), 2-2 Ricky van Wolfswinkel (71.).
SUNDERLAND - FULHAM 0-1
0-1 Pajtim Kasami (53.)
WEST BROM - SOUTHAMPTON 0-1
0-1 Rickie Lambert, víti (90.)
WEST HAM - CARDIFF 2-0
1-0 Joe Cole (11.), 2-0 Kevin Nolan (76.). Aron
Einar Gunnarsson spilaði allan leikinn.
SWANSEA - MANCHESTER UNITED 1-4
0-1 Robin van Persie (34.), 0-2 Danny Welbeck
(36.), 0-3 Robin van Persie (72.), 1-3 Wilfried
Bony (82.), 1-4 Danny Welbeck (90.)
CRYSTAL PALACE - TOTTENHAM 0-1
0-1 Roberto Soldado, víti (50.). Gylfi Þór
Sigurðsson spilaði allan leikinn.
CHELSEA - HULL 2-0
1-0 Oscar (13.), 2-0 Frank Lampard (25.).
KÁTUR KARL Í BRÚNNI Jose Mourinho fagnaði því vel þegar Frank Lampard kom
Cheslea í 2-0 á móti Hull í gær. Portúgalski stjórinn byrjar mjög vel með Chelsea-
liðið alveg eins og þegar hann kom fyrst fyrir níu árum. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Kolbeinn Sigþórsson,
Alfreð Finnbogason og Aron
Jóhannsson voru allir á skotskón-
um um helgina og það stefnir í
mikið markastríð á milli íslensku
framherjanna í hollensku deild-
inni ef heldur áfram sem horfir.
Kolbeinn og Aron fögnuðu einnig
þremur stigum í húsi með liðum
sínum Ajax og AZ Alkmaar en
Alfreð og félagar í Heerenveen
töpuðu sínum fyrsta leik í vetur.
Alfreð og Aron hafa báðir skor-
að í öllum leikjum tímabilsins til
þessa en Alfreð er nú markahæsti
leikmaður hollensku deildarinnar
með fjögur mörk í þremur umferð-
um.
Aron hefur skorað eitt mark í
öllum þremur leikjum AZ Alkmaar
og hann skoraði einnig eitt mark
í Meistarakeppninni og er því
kominn með fjögur mörk í fjórum
leikjum. Missir íslenska landsliðs-
ins er því augljóslega mikill.
Kolbeinn afgreiddi Feyenoord
með tveimur mörkum í gær en
þetta voru fyrstu deildarmörk
hans á tímabilinu. Kolbeinn skor-
aði aftur á móti eitt mark í Meist-
arakeppninni og hefur því skorað
þrjú mörk í fjórum leikjum á tíma-
bilinu. Kolbeinn missti af fimm
mánuðum af síðasta tímabili vegna
meiðsla en skoraði sex mörk í síð-
ustu níu leikjunum á tímabilinu og
minnti síðan verulega á sig í gær.
Kolbeinn hefur verið óheppinn
með meiðsli fyrstu tímabilin sín
með Ajax en hefur þegar fagnað
tveimur meistaratitlum. Mörkin
hans í gær þýða að hann hefur nú
skorað fleiri deildarmörk fyrir
Ajax (16) en hann gerði á sínum
tíma fyrir AZ Alkmaar (15).
Alfreð Finnbogason bætti
markamet Péturs Péturssonar í
hollensku úrvalsdeildinni í fyrra
þegar hann skoraði 24 mörk í 31
leik fyrir Heerenveen.
Aron Jóhannsson lýsti því yfir
fyrir tímabilið að hann ætlaði að
taka metið af Alfreð og miðað við
þessa byrjun er honum greinilega
full alvara. Á sama tíma er Alfreð
að sýna okkur að hann ætlar að
gera betur en í fyrra.
Íslensku leikmennirnir hafa
nú gert níu deildarmörk í fyrstu
þremur umferðunum. Það eru
rúmar 30 umferðir eftir með von-
andi nóg af íslenskum mörkum.
Íslensku mörkin urðu alls 38 tals-
ins í hollensku deildinni á síðasta
tímabili (Alfreð 24, Kolbeinn 7,
Aron 3, Jóhann Berg 2 og Guð-
laugur Victor 2) og gætu orðið mun
fleiri á þessu tímabili.
ooj@frettabladid.is
Skytturnar þrjár
Kolbeinn Sigþórsson, Alfreð Finnbogason og Aron Jóhannsson hafa skorað
samtals ellefu mörk á fyrstu fj órum vikum hollenska fótboltatímabilsins. Kol-
beinn skoraði tvö á móti Feyenoord í gær og Alfreð er markahæstur í deildinni.
KOLBEINN SIGÞÓRSSON 23 ára fram-
herji Ajax. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
ARON JÓHANNSSON 22 ára framherji
AZ Alkmaar. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
ALFREÐ FINNBOGASON 24 ára fram-
herji Heerenveen. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
4 MÖRK Í 3 LEIKJUM 4 MÖRK Í 4 LEIKJUM 3 MÖRK Í 4 LEIKJUM
FRJÁLSAR Ísland eignaðist fimm Norðurlandameistaratitla
unglinga á Norðurlandamóti 19 ára og yngri sem fram fór í
Espoo í Finnlandi um helgina. Aníta Hinriksdóttir og Kol-
beinn Höður Gunnarsson urðu bæði Norðurlandameist-
arar tvo daga í röð og Björg Gunnarsdóttir varð einnig
meistari.
Aníta Hinriksdóttir er með þessu heims- Evrópu
og tvöfaldur Evrópumeistari á árinu 2013, en hún
vann mjög örugga sigra í 800 og 1500 metra hlaupi.
Aníta kom í mark í 1500 metra hlaupinu á 4:18,18
mínútum sem er hennar annar besti árangur í grein-
inni. Hún hljóp 800 metrana á 2:03,94 mínútum.
Kolbeinn Höður Gunnarsson setti Íslandsmet 18 til
19 ára þegar hann vann 400 metra hlaup karla á 47,91
sekúndu og hann vann síðan 200 metra hlaupið á 21,45
sekúndum sem er hans næstbesti tími á ferlinum.
Björg Gunnarsdóttir sigraði í 400 metra hlaupi kvenna
á nýju persónulegu meti eða 55,90 sekúndum.
Íslenska kvennasveitin kom síðan önnur í mark í
fjórum sinnum 400 metra boðhlaupi á 3:46,28 mínút-
um sem er nýtt Íslandsmet í flokki 18-19 ára stúlkna.
Sveitina skipuðu þær: Arna Stefanía Guðmundsdóttir,
Aníta Hinriksdóttir, Björg Gunnarsdóttir og Dóróthea
Jóhannesdóttir. - óój
Fimm íslensk gull
Aníta og Kolbeinn unnu tvöfalt á NM unglinga.
GOLF Karlalið Golfklúbbsins Keilis
og kvennalið Golfklúbbs Kópavogs
og Garðabæjar tryggðu sér í gær
sigur í Sveitakeppni GSÍ.
Keilismenn unnu á heimavelli í
úrslitaleik karla en það var mikil
dramatík í gangi hjá konunum
sem spiluðu á Hólmsvelli í Leiru.
Keilis konur héldu að þær hefði
unnið úrslitaleikinn en GKG var
dæmdur sigur eftir kæru.
Golfklúbburinn Keilir sigraði í
dag Golfklúbb Kópavogs og Garða-
bæjar í úrslitaleik 1. deildar karla
4/1 eftir spennandi leik. GR varð í
þriðja sæti.
Mikil dramatík átti sér stað í
úrslitaleik í 1. deild kvenna en
bráðabana þurfti milli Golfklúbbs-
ins Keilis og Golfklúbbs Kópa-
vogs og Garðabæjar sem endaði
með því að Keilir hafði betur, eða
svo héldu viðstaddir. Það átti hins
vegar eftir að breytast.
GKG lagði inn kæru til móts-
stjórnar vegna aðstoðar sem leik-
maður Keilis óskaði eftir frá liðs-
félaga. Niðurstaða mótsstjórnar og
dómara var á þá leið að um brot á
golfreglum (regla 8-1b) hafi verið
um að ræða sem þýddi holutap
fyrir viðkomandi lið.
Golfklúbbur Kópavogs og Garða-
bæjar sigraði því í 1. deild kvenna,
Golfklúbburinn Keilir varð í öðru
sæti og Golfklúbbur Reykjavíkur
í því þriðja.
- óój
Kæran réð úrslitum
Keilismenn og GKG-konur unnu Sveitakeppni GSí
Endurkoma Mourinho á Brúna byrjar vel
FRJÁLSAR Rússar unnu flest gull-
verðlaun á HM í frjálsum íþróttum
sem lauk í Moskvu í gær. Rússar
unnu sjö gull eða einu meira en
Bandaríkin og Jamaíka.
Bandaríkjamenn unnu hins
vegar langflest verðlaun eða 25 (6
gull, 13 silfur, 6 brons). Alls eign-
uðust átján þjóðir heimsmeistara
að þessu sinni.
Usain Bolt (100m og 200m hlaup
karla), Shelly-Ann Fraser-Pryce
(100m og 200m hlaup kvenna)
sem eru bæði frá Jamaíku og
Bretinn Mo Farah (5000 og 10000
metra hlaup karla) voru stjörnur
mótsins en þau unnu öll tvö gull
í einstaklingsgreinum. Bolt og
Fraser-Pryce bættu síðan bæði við
gullverðlaunum í boðhlaupunum í
gær, en þau tvö áttu þátt í öllum
gullum Jamaíka á HM. - óój
Rússar með fl est gull
Bolt og Fraser-Pryce urðu þrefaldir heimsmeistarar
ELDINGIN ER ENN ÞÁ LANGFYRST Usain Bolt fagnar hér einu af þremur gull-
verðlaunum sínum á HM í Moskvu ásamt liðsfélaga sínum. MYND/NORDICPHOTOS/AFP
Stjörnumenn þurftu að sætta sig við enn ein silfur-
verðlaunin um helgina þegar karlalið félagsins í
fótbolta tapaði bikarúrslitaleiknum á móti Fram.
Auk þess að tapa bikarúrslitaleik karla annað árið í
röð þá voru þetta tíundu silfurverðlaun Stjörnunnar
á þessu ári í fjórum stærstu boltaíþróttunum;
fótbolta, körfubolta, handbolta og blaki.
Silfurverðlaun Stjörnunnar árið 2013 eru:
Körfubolti (Íslandsmót karla og 1. deild kvenna),
handbolti (Íslandsmót kvenna, Bikarkeppni karla,
1. deild karla og umspil um sæti í efstu deild),
blak (Bikarkeppni karla og deildarkeppni karla)
og fótbolti (Bikarkeppni karla og Meistarakeppni
kvenna).
Tíundu silfurverðlaun Stjörnunnar
á árinu 2013
FÓTBOLTI Sigurður Ragnar Eyjólfsson hætti sem þjálfari
íslenska kvennalandsliðsins fyrir helgi og það liggur á því
hjá Knattspyrnusambandinu að finna nýjan
þjálfara enda aðeins rúmur mánuður í
fyrsta leik í undankeppni HM.
„Við erum að fara að setjast yfir þetta
í fyrramálið (í morgun) og það er ekkert
búið að ákveða næstu skref. Við höfum
verið að velta þessu á milli okkar um
helgina en við vorum á norrænum
fundi,“ sagði Þórir Hákonarson,
framkvæmdastjóri KSÍ, í samtali við
Fréttablaðið í gær. Það ræðst því ekki
strax hvort auglýst verður í stöðuna
eða hvort KSÍ fer í samningavið-
ræður við einhvern einstakan þjálfara. En hverjir koma
til greina? Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari sænska liðsins
Kristianstad, hlýtur þar að vera ofarlega á blaði
sem og Þorlákur Árnason, þjálfari verðandi Ís-
landsmeistara Stjörnunnar. KSÍ gæti líka farið
sömu leið og þegar Sigurður Ragnar var ráðinn
en sambandið réð þá óþekktan þjálfara fyrir
liðið með frábærum árangri. Þá er alltaf
möguleiki að fá erlendan þjálfara eins og
var gert hjá karlaliðinu en það verður
þó að teljast ólíkleg niðurstaða.
Íslenska kvennalandsliðið spilar
sinn fyrsta leik í undankeppni HM
á móti Sviss á Laugardalsvellinum
26. september næstkomandi. - óój
Landsliðsþjálfaraleitin hjá KSÍ hefst væntanlega í dag
SPORT