Fréttablaðið - 06.09.2013, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 06.09.2013, Blaðsíða 2
6. september 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 LÖGREGLUMÁL Lögreglan handtók á dögunum enn einn mann grunaðan um aðild að líkamsárásarmál- inu sem kennt hefur verið við Stefán Loga Sívarsson og fól meðal annars í sér að maður var fluttur nauð- ugur til Stokkseyrar eftir hrottalegar misþyrmingar. Einn þeirra sem er grunaður í málinu stakk af til Danmerkur eftir að það kom upp í fyrri hluta júlí- mánaðar. Sá er talinn hafa verið nokkuð atkvæða- mikill í frelsissviptingunni og meðal annars ekið með fórnarlambið til Stokkseyrar. Lögregla leitaði mannsins vikurnar á eftir en hann skilaði sér hins vegar ekki til landsins fyrr en 21. ágúst eftir að hafa gefið sig fram í íslenska sendi- ráðinu í Kaupmannahöfn. Þaðan fékk hann fylgd íslensks lögreglumanns til landsins. Úr því að maður- inn var kominn til landsins og var tiltækur í skýrslu- töku gat lögregla lokið rannsókninni um viku síðar og sent það ríkissaksóknara til ákærumeðferðar. Maðurinn sem um ræðir er 23 ára og með dóma á bakinu, meðal annars fyrir líkamsárásir og vopna- lagabrot. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald þegar hann kom til landsins og hefur setið í því síðan. Það var í fyrradag framlengt til 2. október. Gæsluvarðhald yfir Stefáni Loga Sívarssyni var sömuleiðis framlengt til 2. október á miðvikudag. Fjórir til viðbótar sitja ýmist í gæsluvarðhaldi grun- aðir um aðild að málinu og nokkrum öðrum keim- líkum árásarmálum eða hafa hafið afplánun eldri refsinga. Þá hafa tveir sætt varðhaldi vegna málsins en síðan verið sleppt. - sh Enn einn sakborningurinn í Stokkseyrarmálinu stakk af til Danmerkur í júlí: Kom til Íslands í lögreglufylgd STEFÁN LOGI SÍVARSSON Er talinn hafa fyrirskipað árásina á manninn sem farið var með til Stokkseyrar. Ólafur, á að slá á vitleysuna? „Við gerum okkar besta til að beina fólki á rétta braut.“ Ólafur H. Sigurjónsson er formaður Félags stjórnenda í framhaldsskólum. Skólar reyna margir að koma böndum á eða úthýsa alveg busavígslum og ofbeldi sem þeim hefur fylgt. SPURNING DAGSINS Grundvallarrit um vín og vínmenningu HEILBRIGÐISMÁL Stjórnvöld ættu að leggja fram fjármagn til að ljúka við rannsókn á öryggi sjúk- linga, er mat ábyrgðarmanns. Heil- brigðisráðherra telur hendur sínar bundnar og að slík fyrirgreiðsla komi ekki til greina. Til að ljúka vinnunni þarf tíu til tólf milljónir króna. Eins og fram hefur komið á rannsóknin að svara því hvort 10% þeirra sem leggjast inn á spít- ala hér á landi verði fyrir skaða af völdum meðferðarinnar. Rann- sóknir erlendis frá, sem eru að öllu sambærilegar, benda til þess að svo sé. Þetta þýðir að nokkur hundruð manns örkumlast og tugir láta lífið á íslenskum sjúkrahúsum á ári vegna aðstæðna sem mætti koma í veg fyrir í allt að helmingi tilfella. Sigurður Guðmundsson, fyrr- verandi landlæknir og forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands, hefur um árabil bent á að ekkert bendi til annars en að reynsla annarra landa eigi við hér, til dæmis í viðtali við Fréttablaðið í júní 2010. Þá stóð fjárskortur rann- sókninni fyrir þrifum, eins og nú. „Mér finnst það ekki til fyrir- myndar að ekki sé hægt að fjár- magna könnun af þessu tagi,“ segir Sigurður spurður um skoðun hans á því að stjórnvöld klári ekki ein- faldlega rannsóknina með fjár- framlagi, eins og þráfaldlega hefur verið sóst eftir. Sigurður bendir á að mikilvægi upplýsinganna sé ein- faldlega svo mikið að slíkt ætti að koma til greina, ekki síst í því umhverfi niðurskurðar í heil- brigðiskerfinu sem allir þekki. Niðurskurði fylgi aukin hætta á að öryggi sjúklinga aukist. „Þau rök hafa heyrst að mat á þjón- ustu eins og heilbrigðisþjónustu eigi ekki að vera á könnu vísinda- sjóða heldur hins opinbera. Þetta er mat á gæðum heilbrigðisþjón- ustunnar, sem við erum alltaf að tala um, og í því samhengi er þetta ekki dýrt.“ Kristján Þór Júlíusson heil- brigðisráðherra dregur ekkert úr mikilvægi rannsóknarinnar, heldur þvert á móti. En hann telur hendur sínar bundnar þar sem engin hefð sé fyrir því að ráðuneyti heilbrigðismála taki ákvörðun einhliða um að veita fjármagn með þeim hætti sem Sigurður nefnir. „Ráðherra situr því miður ekki á neinum sjóðum sem hægt væri að nýta í þetta verkefni, þótt það sé vissulega þarft að ljúka vinnunni,“ segir Kristján. svavar@frettabladid.is Rannsókn á öryggi föst vegna fjárskorts Tíu til tólf milljónir þarf til að ljúka rannsókn á öryggi sjúklinga á Íslandi. Fyrr- verandi landlæknir telur það stjórnvalda að leggja fram fjármagn. Ráðherra segir hendur sínar bundnar. Tilraunir til fjármögnunar hafa staðið um langt árabil. Í AÐGERÐ Tíu prósent allra sem leggjast inn á sjúkrahús verða fyrir mistökum heil- brigðisstarfsfólks, sýna rannsóknir. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI SIGURÐUR GUÐMUNDSSON KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON ATVINNUMÁL Bryndís Hlöðvers- dóttir hefur látið af störfum sem formaður stjórnar Lífeyris- sjóðs verslunarmanna. Ástæðan er sú að hún hefur verið ráðin starfsmannastjóri Landspítala. Ný stjórn lífeyrissjóðsins var kosin í lok apríl og hafa tveir af þeim sem kjörnir voru í stjórn hætt, Bryndís og Elmar Hall- gríms Hallgrímsson, sem fór yfir til Samkeppniseftirlitsins. Ólafía B. Rafnsdóttir, for- maður VR, segir að gengið verði frá kjöri nýrra stjórnar- manna hjá Lífeyrissjóðnum næstkomandi miðvikudag. - jme Lífeyrissjóður VR: Bryndís hættir sem formaður STJÓRNMÁL „Ég er með frek- ar leiðinlegt svar við þessari spurningu, ég er enn þá að hugsa um þetta,“ segir Oddný Sturlu- dóttir, borgarfulltrúi Sam fylk- ingarinnar, en hún bræðir með sér hvort hún eigi að gefa kost á sér í fyrsta sætið, verði niður- staðan sú að halda prófkjör hjá Samfylkingunni fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Orð- rómur hefur verið uppi um að Oddný íhugi að bjóða sig fram í sæti oddvitans en Dagur B. Egg- ertsson hefur gegnt því sæti nú í tvö kjörtímabil. Oddný segir einnig í samtali við Fréttablaðið að það sé of snemmt að segja til um hvað hún ætli sér fyrir næstu kosningar. Bæði sé ekki búið að ákveða með hvaða hætti verður valið í sætin auk þess sem hún hafi verið lengi í stjórnmálum. „Og ég er ekki búin að gera það upp við mig hvort ég haldi áfram eða ekki, enda átta ár langur tími í stjórnmálum,“ segir Oddný. Sveitarstjórnarkosningar fara fram í lok maí en á brattann er að sækja fyrir Samfylkinguna, sem hlaut afleita kosningu í síð- ustu þingkosningum. - vg Oddný Sturludóttir er að hugsa um það hvort hún eigi að sækja fram: Veltir fyrir sér fyrsta sætinu HUGSI Oddný veltir fyrir sér að gefa kost á sér í fyrsta sæti Samfylkingar í næstu kosningum. VESTMANNAEYJAR Melkorka Mary Bjarnadóttir fann fyrstu lundapysju haustsins í Vestmannaeyjum í gær. Pysjuna fann Melkorka í garðinum heima hjá sér en hún hafði líklega flogið á eina af öspunum sem þar er að finna. Bjarni Ólafur Guðmundsson, pabbi Melkorku, segir þau hafa farið með pysjuna á Náttúrugripasafnið í Eyjum þar sem hún var vigtuð. „Pysjan var mjög vel haldin og vó heil 273 grömm,“ segir Bjarni og bætir við að hún hafi flogið mjög vel þegar fjölskyldan sleppti henni. „Við þurftum að vísu að sleppa henni tvisvar þar sem hún flaug aftur upp í klappirnar á Stórhöfða í fyrra skiptið en í seinna skiptið flaug hún mjög vel og hélt út á sjó,“ segir Bjarni. - eh Árlegur viðburður í Vestmannaeyjum: Melkorka fann fyrstu pysjuna HEFUR SIG TIL FLUGS Melkorka Mary hjálpar hér fyrstu lundapysju haustsins að hefja sig til flugs. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON HEILBRIGÐISMÁL Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur ráðlagði sjósundsfólki að synda ekki í nágrenni við skólp- dælustöðina í Nauthólsvík í gær. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg var möguleiki á saurgerlamengun í sjó eftir að bilun varð í skólpdælustöð við Skeljanes, sem varð til þess að skólp slapp í sjóinn. Bjarni Brynj- ólfsson, upplýsingastjóri borgar- innar, sagði í samtali við Frétta- blaðið í gær að viðgerð væri lokið. Því ætti að vera óhætt fyrir sund garpa að taka sundsprett í nágrenni við Nauthólsvík í dag. - bl Bilun í skólpdælustöð: Saur slapp í sjó SAMFÉLAGSMÁL Öryrkjabandalag Íslands og Landssamband eldri borgara boða til hvatningarfundar á Austurvelli á þriðjudag í næstu viku. Markmiðið með honum er að hvetja stjórnvöld til að halda áfram að efna loforð sem gefin voru fyrir síðustu kosningar um að afnema kjara- og réttindaskerð- ingar á greiðslum til eldri borgara og öryrkja árið 2009. Á sumarþingi afturkallaði Alþingi tvær af þeim sex skerðingum sem gerðar voru á kjörum þessara hópa. Vonast er til þess að með góðri hvatningu á fundinum muni stjórn- völd standa við loforð um að afnema allar sex skerðingarnar. - bl Útifundur á Austurvelli: Vilja að stjórn- völd efni loforð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.