Fréttablaðið - 06.09.2013, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 06.09.2013, Blaðsíða 36
KYNNING − AUGLÝSINGBólstrun FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 20132 Nú höfum við augastað á gömlum tekksófa sem okkur langar að láta bólstra, klæða í hvítt og setja marglita hnappa í bakið. Fyrirtækið Bólstrarinn byggir á gömlum og traustum grunni enda er það stofn-að árið 1944 og fagnar því 70 ára afmæli á næsta ári. Gunnar V. Kristmannsson stofn- aði Bólstrarann á sínum tíma en í dag stýrir sonur hans, Hafsteinn Gunnarsson, fyrir- tækinu. „Við höfum sinnt almennri bólstrun í öll þessi ár. Fólk gerir sér almennt ekki grein fyrir því að bólstraðir hlutir eru alls staðar í kringum okkur, til dæmis á heimilum, í fyrir- tækjum, flugvélum og bílum. Áður fyrr fram- leiddum við líka húsgögn en það breyttist þegar Ísland gekk í EFTA. Gæði húsgagna hafa minnkað mikið undanfarin ár og við erum því oft að laga nýleg húsgögn. Einnig erum við mikið að hressa upp á leðurhúsgögn sem til dæmis eru upplituð og komin á tíma.“ Hjá fyrirtækinu vinna sex manns, allir hoknir af reynslu að sögn Hafsteins. „Hér vinna ein- ungis fagmenn enda tekur að minnsta kosti sex ár að verða góður bólstrari. Margir halda að þetta sé bara föndur en svo er alls ekki, til þess þarf langa þjálfun.“ Mörg þekkt merki Að sögn Hafsteins hefur bólstrun og klæðn- ing húsgagna aukist hérlendis undanfarin ár. „Við finnum vel fyrir því enda hækkuðu hús- gögn mikið í verði eftir hrun. Bæði vill fólk laga húsgögnin sín og svo er húsgagnamark- aðurinn á Íslandi svolítið einsleitur. Því koma líka margir til okkar og klæða upp gömul hús- gögn, sérstaklega í „sixties“ stíl. Algengast er að Bólstrarinn sjái um bólstrun stóla og sófa en einnig sjá starfs- menn fyrirtækisins um að sérsmíða húsgögn. „Við höfum undanfarið sér smíðað mikið af húsgögnum fyrir nýja veitingastaði, hótel, gistiheimili og einstaklinga. Það er miklu dýrara að láta sérsmíða fyrir sig erlendis og því komum við sterkir inn þar. Um leið vinnum við mikið með ungum arkitektum sem margir hafa lært erlendis.“ Bólstrarinn flytur inn fjölda áklæða frá mörgum af þekktustu framleiðendum Evr- ópu, til dæmis Romo Fabricks, Kirkby Design og Villa Nova. „Það eru eðlilega tísku sveiflur í áklæðum eins og öðru, bæði hvað varðar liti og áferð. Undanfarið hafa viðskipta vinir okkar frekar valið áklæði fram yfir leður enda mikið um leðurhús- gögn alls staðar. Margir eru því að skipta yfir í bjarta og fallega liti á áklæðum í stað svarta og hvíta lit- arins sem fylgir flestum leðurhús- gögnum.“ Gluggatjaldaefni og veggfóður Fyrirtækið hefur einnig um langt skeið selt gluggatjaldaefni og vegg- fóður. Hafsteinn segir sölu gluggatjalda hafa aukist talsvert undanfarin ár, sér- staklega á þunnu gardínuefni. „Við bjóð- um einnig upp á gott úrval af veggfóðri en þau eru líka að verða algengari á heimilum og fyrirtækjum landsins. Þá er ekki endi- lega verið að þekja allt rýmið með veggfóðri heldur bara einn vegg. Þar eru margir að leita í hlýleik- ann aftur í stað steypunnar.“ Á heimasíðu Bólstrarans, www.bolstrarinn.is, má finna ótal sýnishorn af áklæðum, gluggatjöldum og veggfóðri. „Fólk getur byrjað þar og skoðað hvað er í boði. Síðan er upplagt að koma við hjá okkur og fá sýnishorn með heim áður en pantað er. Yfirleitt tekur ferlið minna en viku, frá því áklæði er pantað og þar til það kemur í hús. Við eigum mörg þúsund sýnishorn af áklæðum og því þarf enginn að hafa eins lit. Einnig flytjum við inn úrval af leðri í ólíkum litum og með ólíka áferð.“ Þekking á gömlum grunni Í næstum sjö áratugi hefur Bólstrarinn sinnt almennri bólstrun hér á landi. Fyrirtækið selur einnig mikið úrval gluggatjaldaefna og veggfóðurs. Starfsmenn Bólstrarans búa yfir mikilli þekkingu og reynslu sem skilar sér í úrvals vöru til viðskiptavina. „Hér vinna einungis fagmenn enda tekur að minnsta kosti sex ár að verða góður bólstrari,“ segir Hafsteinn Gunnarsson hjá Bólstraranum. MYND/GVA Við sönkuðum að okkur gömlum borðstofu-stólum á bland.is og létum bólstra þá og klæða hvern í sínum litnum hjá Bólstraranum á Langholts- vegi. Þá fundum við gamlan hægindastól í Góða hirðinum sem fékk sömu meðferð. Nú höfum við augastað á gömlum tekksófa sem okkur langar að láta bólstra og klæða í hvítt og setja marglita hnappa í bakið.“ Elva segir að þau Guð- mundur séu litaglöð og þess vegna hafi þau ákveðið að hafa borðstofustólana hvern í sínum lit. „Það var settur nýr svampur í þá alla og þeir svo yfirdekktir með leðurlíki. Það er ótrúlega slitsterkt og flestir sjá engan mun á því og ekta leðri.“ Sessan og bakið á hæg- indastólnum voru líka klædd með leðurlíki en tvídefni sett í hliðarnar. „Það var hug- mynd bólstrarans og kom mjög vel út. Hann er með mikið úrval af efnum og litum og tekur auk þess niður sérpantanir. Það er því bara að sleppa hugmyndaf lug- inu lausu. Þessi tekk húsgögn halda sér vel og þarf lítið að eiga við viðinn. Eftir bólstrun verða þau eins og ný.“ Enginn borð stofustóll eins Hjúkrunarfræðingurinn Elva Björk Ragnarsdóttir er mikill fagurkeri og hefur gaman af því að gefa gömlum húsgögnum nýtt líf. Hún og maðurinn hennar, Guðmundur F. Jóhannsson, hafa komist upp á lag með að láta bólstra gömul tekkhúsgögn og eru himinlifandi yfir útkomunni. Þennan hægindastól keyptu Elva og Guðmundur, maðurinn hennar, í Góða hirðinum á 1.500 krónur. Hér er hann eftir yfirhalningu bólstrara. Elva er óhrædd við að velja litrík húsgögn. Borðstofu- stólarnir eru hver í sínum lit; einn er svartur, annar hvítur, þriðji fjólublár, fjórði blár, fimmti rauður og sjötti grænn. MYND/PJETUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.