Fréttablaðið - 06.09.2013, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 06.09.2013, Blaðsíða 4
6. september 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 LEIÐRÉTTING Í grein Fréttablaðsins í gær um tvær nýjar sýningar í Listasafni Íslands var ranglega farið með staðreyndir í fyrir- sögn. Sýningarnar tvær, Kees Visser og Leiðangur 2011, eru í Listasafni Íslands en ekki Listasafni ASÍ eins og stóð í fyrirsögn. HAFNARFJÖRÐUR Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir það ekki á færi bæjaryfirvalda að þvinga Landsnet til að taka strax niður háspennulínu og tengivirki við Vallahverfi. Í Fréttablaðinu sagði íbúi í Vallahverfi mikið ónæði af háspennulínunni og tengivirki við hverfið. Íbúarnir væru ósáttir við að brotthvarfi mannvirkjanna hefði verið frestað allt til ársins 2020. Samkvæmt samningi hefðu línurnar átt að vera farnar á árinu 2011. „Að sjálfsögðu erum við sam- mála íbúunum að það er alveg óþolandi að þessar línur séu ekki farnar eins og samkomulagið upp- haflega við Landsnet frá 2009 gerði ráð fyrir,“ segir Guðrún. „En samkvæmt skýrum fyrir- vörum í samkomulaginu hefðu línurnar geta staðið þar til þær væru ónýtar.“ Bæjaryfirvöld fóru fram á við- auka við samkomulagið þegar þróunin á raforkumarkaði varð ekki eins og að var stefnt. „Í við- aukanum eru föst tímamörk og mælt fyrir að Landsnet byrji í síðasta lagi að taka þetta niður árið 2016. Hins vegar, ef raforku- frekar framkvæmdir fara fyrr í gang, þá fari línan fyrr. Við erum því búin að ljúka allri okkar vinnu og það stendur ekkert á Hafnar- firði,“ segir bæjarstjórinn. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjar- fulltrúi Sjálfstæðisflokks, segir ljóst að það sé „algjörlega á ábyrgð meirihluta Samfylkingar og VG í bæjarstjórn og svo fyrrverandi ríkisstjórnar sömu flokka“ að tímamörk um brottnám raflínanna hafi ekki staðist. Rio Tinto Alcan hafi boðist til að leggja raflín- urnar í jörð ef álverið í Straums- vík hefði fengið að stækka. „En málið var sett í íbúakosningu árið 2007, algjörlega á ábyrgð þessara flokka,“ segir Rósa. Síðan segir Rósa að samkomu- lagið við Landsnet frá árinu 2009 hafi ekki haldið þar sem ríkis- stjórn Samfylkingar og VG hafi beitt sér mjög gegn uppbyggingu orkufreks iðnaðar. Ekki hafi verið fjárhagslegar forsendur fyrir brottflutningi línanna. „Auðvitað vildi maður að bæjar- stjórnin gæti beitt sér fyrir því að samkomulagið verði endurskoðað svo hægt verði að efna þau loforð sem íbúum á þessu svæði voru gefin fyrir mörgum árum og áður en frekari uppbygging á svæðinu fer fram. En líklega er það um seinan nema með gríðarlegum til- kostnaði fyrir bæinn,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir. gar@frettabladid.is Háspennulína ekki á valdi Hafnarfjarðar Bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir að ef ekki væri fyrir nýjan viðauka við samkomulag við Landsnet gæti fyrirtækið látið háspennulínur við Vallahverfi standa þar til þær ónýtast. Fulltrúi Sjálfstæðisflokks segir Samfylkingu og VG „algjörlega ábyrg“. VALLAHVERFI Háspennulínur við Vallahverfi verða ekki teknar niður í bráð þótt þær angri íbúana. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FLATEYRI Leikfélag í sjálfboðavinnu Meðlimir Leikfélags Flateyrar vilja að framkvæmdum við Félagsheimilið á Flateyri verði lokið sem fyrst og bjóðast til að leggja af mörkum sjálfboðavinnu svo megi verða. DANMÖRK Danska lögreglan er nú að prófa nýjan búnað sem skannar og les númeraplötur bíla á þjóð- vegum landsins. Búnaðurinn, sem er komið fyrir uppi á þaki lögreglubíla, les númer bíla sem koma á móti og ber saman við þá sem eru eftirlýstir í kerfi lögreglunnar. Um er að ræða til- raunaverkefni til þriggja mánaða en tilgangurinn með þessu er bæði að hafa uppi á bílum sem tengjast glæpum sem hafa verið framdir og hafa uppi á fólki sem er grunað um að hafa glæpi í hyggju. Yfir 400.000 bílnúmer eru í umferðinni í Danmörku. - þj Nýtt vopn í baráttunni: Skanna númer á vegum úti RÚSSLAND David Cameron, for- sætisráðherra Bretlands, segir að vísindamenn á Porton Down til- raunastofunni hafi fundið eitur- efnið sarín í fötum fórnarlamba efnavopnaárásarinnar í Sýrlandi 21. ágúst síðastliðinn. Þá hafi eiturefnið einnig fundist á vett- vangi. Forsætisráðherrann sagði frá þessu þegar hann kom á G20- fundinn í Rússlandi síðdegis í gær. Hann segir að vísindamenn hafi safnað gögnum síðustu daga og þau renni stoðum undir að Assad beitti efnavopnum á borgara sína. Yfir 1.400 manns létust í árásinni, þar af mörg börn. Utanríkismálanefnd öldunga- deildar Bandaríkjaþings veitti í fyrradag Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, heimild til hern- aðaríhlutunar í Sýrlandi. Í næstu viku mun bæði öldungadeildin og fulltrúadeildin greiða atkvæði um beitingu hervalds í Sýrlandi. Í síðustu viku felldi breska þingið tillögu Camerons um árás á Sýrland en forsætisráðherrann sagði í samtali við breska ríkisút- varpið í gær að það væri rangt ef Bandaríkjamenn myndu hika við að gera árás á landið. „Ég held að það myndi senda hræðileg skila- boð til Assads forseta og annarra einræðisherra í heiminum.“ - bl David Cameron sagðist hafa ný sönnunargögn um efnavopnaárásina í Sýrlandi: Bretar fundu sarín í fötum fórnarlamba FULLVISS David Cameron sagði á fund- inum í gær að eiturefnið sarín hefði fundist í fötum fórnarlamba í Sýrlandi. NORDICPHOTOS/AFP KENÍA, AP Þingið í Kenía samþykkti í gær tillögu um að draga sig úr samstarfi um Alþjóðaglæpadóm- stólinn í Haag. Mikill meirihluti þingsins studdi tillöguna en stjórn- arandstæðingar gengu úr þingsal. Alþjóðaglæpadómstóllinn hefur ákært bæði aðstoðarforseta lands- ins, William Ruto, og forsetann, Uhuru Kenyatta, fyrir glæpi gegn mannkyninu. Þeim hefur verið gefið að sök að skipuleggja ofbeldis verk í landinu. Ruto og Kenyatta hafa þó lýst því yfir að þeir muni vera sam- vinnuþýðir við dómstólinn. - eh Þingmenn í Kenía: Vilja úr alþjóða- glæpadómstól Að sjálfsögðu erum við sammála íbúunum að það er alveg óþolandi að þessar línur séu ekki farnar … Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar. DÓMSMÁL Maður á fertugsaldri, sem hefur verið ákærður fyrir að nema unga stúlku á brott í Vest- urbænum og brjóta gegn henni kynferðislega, neitar sök og ber við minnisleysi. Málið var þing- fest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Hann huldi sig með teppi þegar hann mætti fyrir dómara. Manninum er gert að sök að hafa þvingað tíu ára stúlku upp í bíl sinn þegar hún var á leið heim úr skóla í vor. Talið er að hann hafi keyrt með hana á afvikinn stað við borgarmörkin og brotið gegn henni kynferðislega. Aðal- meðferð fer fram í október. Þing- hald verður lokað til að vernda hagsmuni stúlkunnar. - hþ Kynferðismál í Vesturbæ: Neitar að hafa níðst á stúlku Í HÉRAÐSDÓMI Í GÆR Maðurinn huldi sig þegar hann kom í fylgd fangavarða. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Í HAAG Uhuru Kenyatta sést hér yfir- gefa hús Alþjóðaglæpadómstólsins. Þingið í Kenía samþykkti í gær tillögu um að landið segði sig frá dómstólnum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP 904 Íslendingar eiga af-mæli í dag samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Í gær áttu 846 Íslendingar afmæli og á morgun eiga 862 afmæli. AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sigurður Helgi Grímsson sigurdurhg@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Soff ía Sveinsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Sunnudagur 3-10 m/s, hvassast NV-til. BEST AUSTANTIL Í dag og á morgun verður nokkuð bjart og ágætlega hlýtt miðað við árstíma á austanverðu landinu. Vestanlands verður fremur skýjað í dag og á morgun hvessir af suðaustri með rigningu síðdegis. 9° 12 m/s 10° 10 m/s 12° 6 m/s 11° 7 m/s Á morgun Strekkingur vestantil. Gildistími korta er um hádegi 11° 8° 11° 11° 10° Alicante Aþena Basel 29° 30° 29° Berlín Billund Frankfurt 24° 23° 28° Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn 28° 20° 20° Las Palmas London Mallorca 26° 19° 30° New York Orlando Ósló 21° 31° 21° París San Francisco Stokkhólmur 28° 24° 20° 9° 4 m/s 10° 4 m/s 13° 5 m/s 14° 7 m/s 11° 8 m/s 12° 10 m/s 4° 7 m/s 11° 8° 10° 16° 11° ÚTSAL A ÚT S A Ú TSALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SALA A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A LA Ú TSALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A SALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SA TSALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT Ú SAL A ÚT S ATH. eingöngu í Faxafeni 8 LOKADAGAR TSÖLUNNAR lÍs en ku ALPARNIR s 20% til 70% afsl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.