Fréttablaðið - 06.09.2013, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 06.09.2013, Blaðsíða 50
6. september 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 30 BÆKUR ★★★ ★★ HEIMSINS BESTI BÆR Arto Paasilinna Þýðing: Þórður Skúlason Skrudda Finnski rithöfundurinn Arto Paa- silinna er með skemmtilegri höf- undum og honum bregst ekki bogalistin í skáldsögunni Heims- ins besti bær sem nýlega kom út í íslenskri þýðingu hjá Skruddu. Bókin er reyndar frá 1992 og ber þess nokkur merki. Hnignun hins vestræna heims hefur ekki gengið alveg jafn hratt fyrir sig og Paa- silinna sá fyrir sér á þeim tíma, þótt ýmislegt hafi farið úrskeiðis á þessum rúmu tuttugu árum. Sagan segir frá erki finnanum Eemeli Toropainen sem sam- kvæmt síðustu ósk afa síns tekur sér fyrir hendur að reisa kirkju nánast úti í óbyggðum. Smám saman rís svo heilmikil byggð í kringum kirkjuna og íbúum fjölgar jafnt og þétt. Þetta er fyr- irmyndarsamfélag þar sem menn lifa af landsins gæðum, stunda vöruskipti og eru almennt til fáséðrar fyrirmyndar. Annars staðar í heiminum hallar undan fæti, New York sekkur í sorp, þriðja heimsstyrjöldin skellur á sumarið 2014 og í lok sögu eru það eiginlega bara íbúarnir í byggð- inni í kringum óbyggðakirkjuna sem nokkurn veginn hafa í sig og á, enda heimsendir nýlega yfir- staðinn. Finnsk náttúra leikur stórt hlut- verk í sögunni og villt dýr koma mikið við sögu. Sögurnar af björn- unum þremur gefa ádeilunni á meðferð mannsins á umhverfi sínu og óvirðingu hans fyrir nátt- úrunni aukna vídd, auk þess að vera dásamlega vel skrifaðar og skemmtilegar. Aðall Paasilinna er þó hversu leiftrandi góður sögumaður hann er og hversu vænt honum þykir um persónurnar sem hann skapar. Eemeli er harður í horn að taka, þrjóskari en fjandinn sjálfur og bregst sérlega illa við hvers kyns átroðningi yfirvalda, en um leið er hann svo yfirmáta „eðli legur“ og mannlegur að það er ekki nokkur leið að láta sér ekki þykja vænt um hann. Aðrar persónur eru hver annarri sérstakari og þetta fyrirmyndarsamfélag morar af skemmtilegum uppákomum sem fá lesandann til að veltast um af hlátri. Framtíðartryllirinn sem vafið er inn í söguna af þessum land- nemum í kringum kirkjuna góðu er hins vegar mun verr lukkaður. Það er til dæmis frekar skondið að lesa um það árið 2013 að fólk fái engar fréttir því útvarps- og sjónvarpsstöðvarnar hafi verið lagðar niður. Framsýni Paasilinna náði greinilega ekki svo langt að ímynda sér að internetið yrði almannagagn. Leiði maður hins vegar slíka smámuni hjá sér og einbeiti sér að frásögninni af hinu óvenjulega samfélagi sem hún lýsir er sagan allt í senn bráðskemmtileg, hjart- næm og hugvíkkandi. Þýðing Þórðar Skúlasonar er víst úr sænsku en virkilega vel unnin, málfarið sérstætt og skemmtilegt og fyrir íslenskan lesanda er eiginlega óhugsandi að þessar persónur gætu talað á annan veg. Friðrika Benónýsdóttir NIÐURSTAÐA: Bráðskemmtileg saga af enn skemmtilegri persónum, en líður örlítið fyrir að hafa elst illa eins og títt er um framtíðarsögur. Að rækta bæinn sinn „Ég er hér að góna á myndirnar mínar og spá í hvernig þær spili best saman,“ segir Sigrún Eldjárn, rithöfundur og myndlistarmaður, glaðlega, stödd í Listasafni ASÍ vegna sýningar sem hún opnar þar 7. september. „Titill sýningarinnar, Teiknivísindi – sjö níu þrettán kann að vekja upp spurningar,“ segir hún hlæjandi. „Það er vitaskuld ekki til neitt sem kallast teiknivísindi. Álíka gáfulegt er að tala um slík vísindi og að banka í tré og segja: „sjö níu þrettán“ til að koma í veg fyrir að eitthvað óheppi- legt hendi mann. En sjö níu þrettán er dagsetning opnunarinnar og frá og með þeim degi eru teikni- vísindi orðin til!“ Sigrún bendir á að teikningar séu ríkjandi á sýningunni. „En af því að hér í Listasafni ASÍ eru margar vistarverur og ég legg undir mig allt húsið, þá skipti ég þessu upp,“ segir hún og lýsir nánar. „Í Ásmundarsal er ég með blýantsteikningar sem er raðað upp eins og þær séu myndasaga en þó er enginn þráður í þeirri sögu. Í arinstofunni eru myndskreytingar úr barnabókunum, meðal annars úr nýrri og æsispennandi bók sem heitir Stroku- börnin á Skuggaskeri og kemur út í lok september. Þar er líka fullt af bókum til að skoða og í Gryfjunni er ég með innsetningu. Hún er gerð úr hekluðum dýrum sem verða fest á vegginn og látin passa inn í gullinsniðsformið.“ Blýantar koma mikið við sögu á sýningunni, ekki bara gegnum teikningarnar heldur líka blýantarnir sjálfir. „Þetta er óður til blýantsins sem hefur verið mitt atvinnutæki alla tíð,“ útskýrir Sigrún. En skyldi hún mikið hafa heklað? „Ég hef gegnum árin haft svolítið gaman af að hekla, að byrja á einni lykkju og láta svo hugmyndaflugið leiða mig áfram.“ gun@frettabladid.is Þetta er óður til blýantsins Teiknivísindi – sjö níu þrettán er heiti sýningar sem Sigrún Eldjárn opnar á laugardaginn klukkan þrjú í Listasafni ASÍ að Freyjugötu 41. Þar er margt að sjá. Í ÁSMUNDARSAL Ég er hér með teikningar sem er raðað upp eins og þær séu myndasaga en þó er enginn þráður í þeirri sögu,“ segir Sigrún. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR MENNING Fjölskylduguðsþjónusta, sunnudaginn 8. september kl. 14 Upphaf barnastarfsins Barnastarf Fríkirkjunnar í Reykjavík hefst á ný með fjölskylduguðsþjónustu sunnudaginn 8. september kl. 14. Erla Björk Jónsdóttir, guðfræðingur, leiðir stundina. Fermingarbörn taka þátt. Sönghópur Fríkirkjunnar í Reykjavík leiðir tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista. Á hverjum sunnudegi í vetur meðan á guðsþjónustu stendur munu þær Rósa Margrét og Rósmary, umsjónarmenn barnastarfsins, bjóða börnunum með sér upp á kórloft eða í safnaðarheimilið þar sem farið verður í leiki, sungið og föndrað. Í guðsþjónustunni verður kynnt æskulýðsstarf sem fram mun fara í vetur í Fríkirkjunni í Reykjavík á vegum KFUM & K. Nánar auglýst síðar. Barnakór við Tjörnina! Viltu vera með? Barnakór Fríkirkjunnar hefur starfsemi sína á ný eftir sumarfrí. Allir ungir og áhugasamir söngfuglar eru velkomnir og hvattir til að mæta. Æft verður á fimmtudögum frá klukkan 16:15-17:15. Fyrsta æfing verður fimmtudaginn 12. september. Nánari upplýsingar gefur Álfheiður Björgvinsdóttir kórstjóri í síma 849-8660 og skrifstofa Fríkirkjunnar í Reykjavík í síma 5527270. FRÍKIRKJAN Í REYKJAVÍK Fyrsta verkið sem frumflutt verður fer í loftið sunnudaginn 29. september,“ segir Viðar Egg- ertsson, stjórnandi Útvarpsleik- hússins, spurður hvenær hin metnaðarfulla vetrardagskrá hefjist. „Síðan dreifast þessi nýju verk tiltölulega jafnt yfir vetur- inn og fram í maí á næsta ári.“ Er ekki Útvarpsleikhúsið undir þinni stjórn í fararbroddi hvað varðar það að fá íslenska höf- unda til að skrifa leikrit? „Það má segja að við höfum gert það að aðalmarkmiði Útvarpsleik- hússins núna á síðari árum að frumflytja ný íslensk verk,“ segir Viðar. „Við höfum leitað til höfunda um að skrifa fyrir þennan miðil, auk þess sem við höfum verið í mjög gjöfulu sam- starfi við tvær síðustu Listahá- tíðir í Reykjavík. Þar hafa verk verið flutt í sviðsettum leik- lestrum og síðan hafa höfundar og leikstjórar fengið svigrúm til að vinna þau áfram og við frum- flutt þau veturinn á eftir. Þessi aðferð hefur gefið mjög góða raun og verið lærdómsrík fyrir höfundana og leikstjórana og skilað okkur tíu athyglisverðum leikritum, bæði frá nokkrum af okkar ástsælustu skáldum og björtustu vonum framtíðarinnar, ef svo má segja. Og það er rétt að ekkert íslenskt leikhús frum- flytur jafn mörg íslensk verk og Útvarpsleikhúsið, sem er sérlega ánægjulegt.“ Hátt hlutfall kvenna í flokki höfunda og leikstjóra vekur athygli, var það meðvitað átak? „Já, það hefur hallað á konur í þessum geira, en það var lítið mál þegar við settumst niður til að ákveða til hvaða höfunda við vildum leita að finna konur til að skrifa leikrit. Þær sem ég leitaði til brugðust allar fljótt og vel við þannig að þetta er bara spurning um að hafa áhrif á fólk og vekja áhuga þess á þessum miðli.“ Nýtt fjárhagsár Ríkisútvarps- ins hefst í september, óttastu að það verði þyngri róður næsta ár í ljósi umræðu um niðurskurð til RÚV? „Við skulum vona að það verði skilningur á mikil- vægi Útvarpsleikhússins því þótt útvarpsleikrit séu dýrasta efnið sem framleitt er fyrir útvarp er það ódýrasta leikhús sem til er og við náum til mun fleiri gesta en önnur leikhús. Við höfum því ákveðnu menningarhlutverki að gegna sem felst í því að vinna með miðilinn, skoða samtíma okkar og líf og fá til þess margt af okkar áhugaverðasta leikhús- fólki.“ Útvarpsleikhúsið sendir út á hverjum sunnudegi klukkan 13 og eins og Viðar orðar það: „Það eru allir velkomnir og hjá okkur sitja allir í bestu sætum.“ fridrikab@frettabladid.is Aðalmarkmiðið að fl ytja ný íslensk verk Útvarpsleikhúsið frumfl ytur í vetur tíu ný íslensk leikverk, bæði eft ir vel þekkta og minna þekkta höfunda. Viðar Eggertsson, stjórnandi Útvarpsleikhússins, segir það sérlega ánægjulegt að frumfl ytja fl eiri íslensk verk en nokkurt annað leikhús landsins. ■ Best í heimi eftir Maríu Reyndal í leikstjórn höfundar ■ Árshátíð Vatnsveitunnar eftir Gunnar Gunnarsson í leikstjórn Guðmundar Inga Þorvaldssonar ■ Hér eftir Kristínu Ómarsdóttur í útvarpsleikgerð og leikstjórn Bjarna Jóns- sonar ■ Páfuglar heimskautanna eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur í leikstjórn Mörtu Nordal ■ Gestabókin eftir Braga Ólafsson í leikstjórn Stefáns Jónssonar ■ Slysagildran eftir Steinunni Sigurðardóttur í leikstjórn Hlínar Agnarsdóttur ■ Blinda konan og þjónninn eftir Sigurð Pálsson í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur ■ Lán til góðverka eftir Auði Övu Ólafsdóttur í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur ■ Rökrásin eftir Ingibjörgu Magnadóttur í leikstjórn Hörpu Arnardóttur ■ Söngur hrafnanna eftir Árna Kristjánsson í leikstjórn Viðars Eggertssonar Tíu ný íslensk leikrit frumflutt Í FARARBRODDI Viðar Eggertsson, stjórnandi Útvarpsleikhússins, er stoltur af þeim árangri sem það hefur náð í að efla nýsköpun í íslenskri leikritun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.