Fréttablaðið - 06.09.2013, Blaðsíða 44
Lífi ð
FRÉTTABLAÐIÐ Spjörunum úr og helgarmaturinn.
HELGAR MATURINN HOLL OG GÓÐ SPÍNATBAKA
Nína Rut Óladóttir
er nemi í Kvennaskólanum og
hefur gaman af ljósmyndun og
innanhússhönnun. Hún fer reglu-
lega í ræktina og hefur einstak-
lega mikinn áhuga á matargerð.
Hér deilir hún með Lífi nu hollri
uppskrift að spínatböku með
hvítlauk, grænmeti og osti.
Hvern faðmaðir þú síð-
ast? Ég skellti mjúku faðm-
lagi á Glanna glæp.
En kysstir? Kærustuna.
Hver kom þér síðast á
óvart og hvernig?
Kærastan kom mér á óvart
með því að gefa mér olíu í
skeggið til að vernda húðina,
sem er mjög karlmannlegt,
og vax til að móta yfirvara-
skeggið.
Hvaða galla í eigin fari
ertu búin að umbera allt
of lengi? Frestunaráráttuna.
Ertu hörundsár? Aðeins
ef ég er illa sofinn um miðja
viku.
Dansarðu þegar enginn
sér til? Á það til að skella
mér í smá breikdans, þótt tími
ormsins sé liðinn, myndi ef-
laust brjóta einhver bein ef ég
geri það.
Hvenær gerðirðu
þig síðast að fífli og
hvernig? „Ef ég geri eitt-
hvað, þá gerist það ef ég
geri það.“ Háfleyg setning
sem ég lét út úr mér eitt sinn í
sjónvarpsupptökum.
Hringirðu stundum í
vælubílinn? Er stundum
með hann á „speed-dial“.
Tekurðu strætó? Hef
stokkið af og til í strætó. Ég
skellti mér á Selfoss í strætó
og nýtti mér internetaðgang-
inn sem var helvíti mikið fjör.
Allt „live“ á fésbók.
Hvað eyðirðu miklum
tíma á Facebook á dag?
Örugglega of miklum tíma,
sérstaklega í strætó.
Ferðu hjá þér þegar þú
hittir fræga eða heils-
arðu þeim? Ég fór hjá mér
þegar ég heilsaði Jude Law.
Hann er þvílíkt fagur maður
en ég fór ekki svo mikið hjá
mér þegar ég hitti Quentin
Tarantino. Það var eins og að
hitta viskílyktandi órangútan.
Lumarðu á einhverju
sem fáir vinir þínir vita
um þig? Nei, ég er alveg
ömurlegur í að þegja um
leyndarmál.
Hvað ætlarðu alls ekki
að gera um helgina? Ekki
að fá mér bjór.
Þórir Karl
Bragason Celin
ALDUR: 42
STARF: Grafískur hönnuður
og myndskreytir
...SP
JÖ
R
U
N
U
M
Ú
R
Deig
1,5 dl hveiti
1,5 dl heilhveiti
125 g smjör
3 msk. vatn
Fylling
250 g frosið spínat
2-3 hvítlauksrif
1 msk. olía
175 g fetaostur
4 egg
1 tsk. salt
Pipar eftir smekk
1 msk. jurtakrydd
1 dós tómatar
1 Deigið er hnoðað
saman og látið hvíla í kæli
á meðan fyllingin er gerð.
Síðan er deigið sett í eld-
fast form og pikkað með
gaffli. Deigið skal forhita
í 10 mínútur við 200°C í
ofninum.
2 Spínat og hvítlaukur eru
bæði mýkt í olíunni, þar
til mesti vökvinn er farinn
úr spínatinu og síðan látið
kólna.
3 Eggin eru léttpískuð
í skál og síðan er öllu
blandað saman og hellt
í formið. Bökuna skal
baka í ofninum í 45 mín-
útur við 200°C hita.
4 Spínatbakan er að
lokum borin fram með
fersku salati, sem geta
verið tómatar, vínber og
ýmislegt annað gómsætt.
Save the Children á Íslandi