Fréttablaðið - 06.09.2013, Side 6

Fréttablaðið - 06.09.2013, Side 6
6. september 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hver er að opna veitingastaðinn K-bar á Laugavegi? 2. Hvað heitir safnstjóri Listasafns Ís- lands? 3. Hvað hefur plata Ásgeirs Trausta, Dýrð í dauðaþögn, selst í mörgum eintökum? SVÖR 1. Ólafur Örn Ólafsson veitingamaður. 2. Halldór Björn Runólfsson. 3. Um 30 þúsund einstökum. Prófaðu Sensodyne vörurnar og finndu muninn. Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur D Y N A M O R E Y K JA V ÍK NÝ OG BE TRI HÖNNUN ! TANNBURSTAR OG TANNKREM FYRIR VIÐKVÆM SVÆÐI VIÐSKIPTI „Björn og hans ágæta kona, Hafdís, náðu samkomulagi um að þau fengju fyrirtækið til baka. Inni í því voru 70 milljónir, skiptastjórinn tók hins vegar 50 milljónir,“ segir Sigurður G. Guð- jónsson lögmaður en hann sakar kollega sína um að maka krókinn þegar kemur að þrotabúum. Þrotabússtjóri Þreks höfðaði rift- unarmál gegn Birni Leifssyni, eig- anda World Class, sem kom upp í kjölfar sölu á rekstri líkamsræktar- stöðvarinnar eftir að eignarhalds- félagið fór í þrot. Eftir að sam- komulag náðist var niðurstaðan sú að Björn leysti félagið aftur til sín. „Mín tilfinning er sú að það er verið að höfða helst til mikið af málum og verið að reyna að búa til mikið af málum sem eru algjörlega tilgangslaus og engan pening út úr þeim að fá, nema að það séu pen- ingar í búinu. Þá geta menn lifað sæmilegu lífi á meðan þeir eru með búin,“ segir Sigurður. Fréttablaðið hafði samband við skiptastjórann, Sigurbjörn Þor- bergsson, og bar undir hann upp- hæðina. „Ég ætla ekki að tjá mig um það,“ svaraði hann. -vg Lögmaður segir skiptastjóra hafa tekið nær allt fé úr út þrotabúi: Skiptastjórinn tók 50 milljónir ALÞINGI Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður umhverfis- og sam- göngunefndar Alþingis, hyggst á haustþingi leggja fram frumvarp þess efnis að skipulagsvald yfir Reykjavíkurflugvelli færist frá Reykjavíkurborg til ríkisins. „Reykjavíkurflugvöllur er flug- völlur allra landsmanna og landið sem hann situr á er jafnt í eigu Reykjavíkurborgar og íslenska ríkisins. Það var tekin ákvörðun um það á sínum tíma að skipu- lagsvald yfir Keflavíkurflug- velli yrði hjá ríkinu, og þar með Alþingi. Að sama skapi tel ég eðlilegt að það sé Alþingi Íslendinga sem fjallar um skipulagsmál á Reykjavíkurflug- velli,“ segir Höskuldur. Frumvarpssmíðin er langt komin og að sögn Höskuldar ætlar hann að kynna það fyrir þingflokkum stjórnarflokkanna á næstu dögum. Þar vonast hann til að afla meðflutningsmanna. „En ég vonast fyrst og fremst til þess að málið fái málefnalega og góða umfjöllun inni á Alþingi og verði rætt þar í rólegheitum.“ Höskuldur segir að það sé skýrt í stjórnarskránni að sjálfs- ákvörðunarvaldið sé hjá sveitarfé- lögunum nema lög kveði á um annað. „Þannig að það er hægt að takmarka þetta vald með laga- setningu og ég tel að fordæmin séu mjög skýr.“ Auk Keflavíkurflugvallar bendir hann á þjóðgarðinn á Þing- völlum og sömuleiðis frumvarp sem Ásta Ragnheiður Jóhannes- dóttir lagði fram í mars síðast- liðnum um að skipulagsvald á alþingisreitnum við Austurvöll flyttist til þingsins. Það komst þó aldrei til umræðu. „Ég set Reykjavíkurflugvöll undir sama hatt og Keflavíkur- flugvöll, þjóðgarðinn á Þing- völlum og alþingisreitinn. Þetta eru einfaldlega staðir sem snúa að öllum landsmönnum, hvar sem þeir búa. Þess vegna er eðlilegt að það séu kjörnir fulltrúar alls landsins sem hlutast til um það hvernig skipulagsmálum er háttað þar,“ segir Höskuldur Þórhallsson. stigur@frettabladid.is Ríkið ráði skipulagi flugvallarsvæðisins Stjórnarþingmaður undirbýr frumvarp um að skipulagsvald yfir flugvallar svæðinu í Reykjavík flytjist frá borginni til ríkisins. Bendir á Keflavíkurflugvöll og Þingvalla- þjóðgarð sem fordæmi. Kynnir frumvarpið fyrir stjórnarliðum á næstu dögum. SVÍÞJÓÐ Starfsmenn Hilton-hótels- ins við Slussen í Stokkhólmi fundu nýlega hlaðna byssu á einu salerna hótelsins. Á vef sænska ríkisútvarpsins er haft eftir upplýsingafulltrúa lög- reglunnar að lögreglumaður hafi gleymt skotvopni sínu. Að sögn upplýsingafulltrúans lítur lögreglan málið alvarlegum augum. Greint var frá því að at- vikið hafi ekki haft áhrif á öryggis- gæslu vegna heimsóknar forseta Bandaríkjanna til Stokkhólms. - ibs Hilton-hótel í Svíþjóð: Lögga gleymdi byssu á salerni SAMGÖNGUR Flugvélaframleið- andinn Airbus og flugumferðar- stjórn Kína hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um samstarf við að nútímavæða flugum- ferðarstjórn í Kína og innleiða nýjustu tækni við flugumferðar- stjórn. Samkvæmt tilkynningu Air- bus verður áhersla lögð á að bæta flugumferð, auka bæði þol og skilvirkni, um leið og sjálf- bærniviðmið séu höfð að leiðar- ljósi. Eins á að hjálpa til við að samstilla flugumferðarstjórn í Kína, bæði fyrir innan- og utan- landsumferð. Airbus ProSky, flugumferðar- stjórnarfyrirtæki Airbus, annast innleiðingu nýrrar tækni. - óká Kína semur við Airbus: Taka höndum saman um flug- umferðarstjórn FINNLAND Petri Juurakko, bæjar- fulltrúi Sannra Finna í Alavo í Finnlandi, hefur verið dæmdur fyrir atkvæðakaup. Er honum gert að greiða 30 dagsektir upp á 1.350 evrur, jafngildi um 216 þús- unda íslenskra króna. Í prófkjöri í fyrrahaust hafði Juurakko sett límmiða með fram- boðsmynd af sér og listanúmer á að minnsta kosti sjö vodka flöskur og gefið þær, að því er kemur fram á vef Hufvudstadsbladet. Ljóst þótti að um ólöglega kosn- ingabaráttu hefði verið að ræða. Bæjarfulltrúinn lýsti því hins vegar yfir að tiltækið með því að skreyta flöskurnar með mynd og listanúmeri hefði verið grín. - ibs Ólögleg kosningabarátta: Setti mynd af sér á vínflöskur UMDEILT SVÆÐI Reykjavíkurflugvöllur hefur lengi verið umdeildur. Nú vill Höskuldur Þórhallsson svipta Reykvíkinga forræði yfir skipulagsmálum á svæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR HÖSKULDUR ÞÓRHALLSSON VEISTU SVARIÐ? Mín tilfinning er sú að það er verið að höfða helst til mikið af málum … Sigurður G. Guðjónsson Ég set Reykjavíkur- flugvöll undir sama hatt og Keflavíkurflugvöll, þjóð- garðinn á Þingvöllum og alþingisreitinn. Þetta eru einfaldlega staðir sem snúa að öllum lands mönnum, hvar sem þeir búa. Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins BRETLAND, AP Fornleifafræðingar sem rannsakað hafa leifar Rík- harðs þriðja Englandskonungs segja hann hafa þjáðst af völdum njálgs, þráðorma sem geta orðið rúmlega þrjátíu sentimetrar að lengd. Beinagrind hans fannst í gröf undir bílastæði í borginni Lei- cester á síðasta ári. Töluvert af eggjum þráðorma fannst í jarðveg- inum við mjaðmir hans, en ekkert nálægt hauskúpunni og sáralítið í jarðveginum í kring, sem kannað- ur var til samanburðar. Stundum veldur njálgur alvar- legum skaða á líkamanum en mannfræðingurinn Piers Mitch- ell segir að konungurinn hafi lifað í vellystingum og það hafi verið heppilegt: „Ríkharður fékk lík- lega alveg nóg af mat sem hann gat deilt með ormunum sínum.“ - gb Beinagrindin rannsökuð: Ríkharður III var með njálg REYKJAVÍKURBORG Kjartan Magn- ússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, hefur enn lagt fram fyrirspurn í borgarstjórn um heild- arkostnað við byggingu Hörpu. Kjartan segir að svar borgar- stjóra í janúar við fyrirspurn Kjartans frá því í september í fyrra hafi eingöngu sýnt kostnað frá því verkefnið var yfirtekið árið 2009. Viðhlítandi svör hafi ekki enn fengist. „Um leið og furðu er lýst yfir þessari undarlegu töf er fyrirspurnin nú lögð lögð fram í þriðja sinn,“ bókaði Kjartan í borgar stjórn. - gar Enn spurt í borgarstjórn: Hvað kostaði að byggja Hörpu? KJARTAN MAGNÚSSON Lýsir furðu yfir undarlegri töf. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.