Fréttablaðið - 06.09.2013, Page 10
6. september 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR |
FRAMKVÆMDIR „Við vorum að rjúfa 500
metra múrinn og hér gengur allt sam-
kvæmt áætlun,“ segir Jón Leví Hilmars-
son, verkefnisstjóri hjá Íslenskum
aðalverktökum, sem stýrir vinnu við
framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng í
Eyjafirði.
Rúmir tveir mánuðir eru liðnir síðan
sprengingar hófust og hafa göngin lengst
um 60 metra á viku. Hver sprenging leng-
ir göngin um fimm metra að meðaltali.
Jón segir aðstæður í fjallinu góðar.
„Bergið er gott og það er lítið sem ekk-
ert vatn. Við erum með starfsmenn á
vöktum allan sólarhringinn, alla daga
vikunnar, og hingað til hefur þetta gengið
án áfalla.“
Undirbúningsvinna er nú hafin
Fnjóskadalsmegin. Að sögn Jóns er gert
ráð fyrir að vinna þar hefjist næsta vor.
Vaðlaheiðargöng verða fullkláruð 7,2
kílómetrar að lengd og stefnt er að gegn-
umbroti í september 2015. - hg
– Lifið heil
15%
Nicorette
afsláttur af
Nicorette innsogslyfi og
Nicorette QuickMist munnholsúða
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
6
54
16
0
8/
13
Gildir út september
Lægra
verð
í Lyfju
ALHLIÐA
SÓTTHREINSIR
500 ml úðabrúsi
VERÐ 539 KR.
Skeifunni 11 | Sími 515 1100 www.rekstrarland.is
A
45 cm x 300 m
Verð frá 1.830 kr.
FÖST SÁPA
í sjálfvirkar uppþvottavélar, 5 kg
Stóreldhús
Í Rekstrarlandi býðst fjölbreytt
úrval af þaulreyndum
stóreldhúsvörum fyrir allar
gerðir eldhúsa.
VNR. 98145
VNR. 99607
VNR. 92674
Hafa borað 500 metra
Vaðlaheiðargöng lengjast um 60 metra á viku. Vinna Fnjóskadalsmegin hefst
næsta vor. Auðunn Níelsson tók meðfylgjandi myndir af framkvæmdunum.
MIKILVÆGAR LEIÐSLUR Borinn sem notaður er við vinnuna er tengdur við raf-
magns- og vatnsleiðslur sem liggja hér inn eftir göngunum.
ÖFLUGT SPRENGIEFNI Starfsmenn Ósafls hlaða sprengiefni í holur í berginu. Oftast er sprengt tvisvar á sólarhring og hver
sprenging lengir göngin um fimm metra að meðaltali.
TIGNARLEGUR BOR Jón Leví Hilmarsson, verkefnisstjóri hjá ÍAV, sem stýrir vinnu
við framkvæmdirnar, stendur hér við hliðina á bornum sem notaður er. Borinn er af
gerðinni Tamrock.
Á LEIÐ
ÚT Starfs-
maður
Ósafls
keyrir
vinnulyftu
út úr göng-
unum. Fyrir
ofan má sjá
loftræsti-
rörið sem
nær inn öll
göngin.
HREINT LOFT Fyrir utan
má sjá gult loftræstirör
sem nær inn öll göngin.
Það hefur þann tilgang
að blása hreinu lofti inn
í göngin þegar búið er
að sprengja og tryggja
loftgæði.
Í MYNDUM | 10
FRAMKVÆMDIR VIÐ VAÐLAHEIÐARGÖNG