Fréttablaðið - 06.09.2013, Qupperneq 22
6. september 2013 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 22
Að undanförnu hafa
stjórnarliðar fært fyrir
því kostuleg rök að auð-
legðarskattur hljóti nú
að leggjast af. Þeir telja
að sökum þess að laga-
ákvæði þar um hafi ekki
ótímabundið gildi verði
skatturinn að hverfa.
Ekki er nú hátt risið á
sl íkum málf lutningi
þegar betur er að gáð.
Nægur tími er til stefnu
út þetta ár að gera fullnægjandi
ráðstafanir hvað tekjuöflun á
þessum forsendum eins og öðrum
varðar, samhliða afgreiðslu fjár-
laga fyrir árið 2014. Ekki hef ég
heldur frétt af því að nýja rík-
isstjórn skorti þingstyrk til að
koma þeim málum fram sem hún
vill og tengjast hag ríkisins. Vilj-
inn til þess er allt annað mál og
hann virðist skorta í þessu tilviki.
Annaðhvort vilja menn eða vilja
ekki framlengja það fyrirkomu-
lag að nokkur þúsund efnuðustu
einstaklingar og fjölskyldur sam-
félagsins leggi lítils háttar auka-
lega af mörkum á þessum erfiðu
tímum og í samræmi við auð sinn.
Ekki skorti þingstyrk þegar
stjórnin kom þeim til hjálpar sl.
vor sem hún augljóslega mat í
mestri þörf fyrir íviln-
andi ráðstafanir, sem eins
og kunnugt er voru sjáv-
arútvegurinn og ferða-
þjónustan. Eins má spyrja
hvort til standi að beita
sömu röksemdum víðar
og þannig t.d. ekki upp-
færa til verðlags ýmsa
tekjupósta bundna föst-
um krónutölum í lögum
til árs í senn? Vonandi
ekki og þar með hrynur
málsvörnin. Ríkisstjórnin mun
væntanlega leggja til við Alþingi
í ráðstöfunarfrumvörpum eða
í bandormi margs konar upp-
færslur til verðlags, framleng-
ingu ráðstafana með tímabundið
gildi o.s.frv. Ábyrgðin á slíkum
ráðstöfunum og meðferð ríkis-
fjármála í heild liggur hjá sitjandi
ríkisstjórn og meirihluta hennar
hverju sinni og hvergi annars
staðar.
Margs konar ráðstafanir
með tímabundið gildi
Auðlegðarskattar, stóreigna- eða
eignaskattar eru vel þekkt fyrir-
bæri að gömlu og nýju. Skattand-
lagið er auður, þ.e. yfirleitt hrein-
ar eignir fólks umfram skuldir,
samkvæmt nánari skilgreiningu.
Hér var valin sú leið að taka upp
raunverulegan auðlegðar- eða
stóreignaskatt þar sem einungis
yrði greitt af hreinni eign ofan
við tiltölulega há fjárhæðarmörk
á íslenskan mælikvarða, enda
greiðendurnir aðeins nokkur
þúsund auðugustu einstakling-
ar og fjölskyldur landsins eins
og áður sagði. Tiltölulega hlið-
stæður skattur er við lýði í Nor-
egi svo dæmi sé tekið og nefnist
þar „formue“-skattur. Í mörgum
öðrum löndum þar sem glímt
hefur verið við efnahagserfið-
leika hafa menn að undanförnu
ýmist tekið upp einhverjar hlið-
stæður eða áforma að gera það.
Auðlegðarskatturinn var inn-
leiddur sem liður í fjölþættum og
viðamiklum aðgerðum til að forða
ríkissjóði Íslands frá gjaldþroti.
Mjög margar þessara ráðstafana
voru, a.m.k. í fyrstu, innleiddar til
eins eða nokkurra ára í senn. Gilti
það bæði um tekjuöflunaraðgerð-
ir, sparnaðarráðstafanir og íviln-
andi eða hvetjandi ráðstafanir. Má
í þeim hópi nefna; kolefnisgjald
(sem seinna var gert ótímabund-
ið), auðlindagjald á orku, fjár-
sýsluskatt á fjármálaþjónustu,
100% endurgreiðslu virðisauka-
skatts vegna viðhalds og endur-
bóta á íbúðarhúsnæði og húsnæði
sveitarfélaga („allir vinna“ átak-
ið), heimild til úttektar séreigna-
sparnaðar, minni frádráttarbærni
vegna inngreiðslna í séreignar-
sjóði og þannig mætti áfram telja.
Ýmsar ástæður voru fyrir þessu.
Sumar voru nýmæli og því líklegt
að einhverjar breytingar kynnu
að vera gerðar samhliða fram-
lengingu. Stundum var verið að
innleiða breytingar í áföngum. Í
öðrum tilvikum þótti með tíma-
bundnu gildi ástæða til að und-
irstrika að viðkomandi ráðstöf-
unum væri ekki endilega ætlað
að standa óbreyttum að eilífu og
allt þetta auðvitað háð framvindu
efnahags- og ríkisfjármálanna.
Afnám auðlegðarskatts = 8 til 9
milljarða niðurskurður?
Aðalatriði málsins er þó að allar
þessar víðtæku aðgerðir voru og
eru hluti af áætlun í ríkisfjár-
málum til meðallangs tíma. Fyrst
áætlun í ríkisfjármálum 2009-
2013, svo 2012-2015 (Herðubreið)
og loks 2013-2016 (Keilir). Í þess-
um áætlunum eða ritum, sem og í
greinargerðum með fjárlagafrum-
vörpum og víðar, hefur alltaf verið
gerð grein fyrir því að viðkomandi
ráðstafanir séu hluti af forsendum
ríkisfjármálaáætlunarinnar. Með
öðrum orðum, taki þær breyting-
um til lækkunar eða hverfi, þurfa
aðrar jafngildar ráðstafanir að
koma til á móti svo forsendur áætl-
unarinnar haldi.
Það er undan þessum veruleika
sem núverandi ríkisstjórn kemst
ekki með útúrsnúningum. Ef mikil-
vægur tekjupóstur eins og auðlegð-
arskatturinn hverfur á einu bretti,
tekjur upp á átta til níu milljarða
króna, er stórt skarð höggvið í
ríkisfjármálaáætlun næstu ára í
viðbót við það sem fór fyrir borð
í vor. Með því að breyta einu ein-
asta ártali í lögum um tekju- og
eignaskatt má framlengja auð-
legðarskattinn til eins eða fleiri
ára í senn. Ef stjórnarmeirihlut-
inn ræður ekki við það tæknilega
má vera honum innan handar.
Pólitíska ábyrgðin er meirihlutans
hvernig sem fer. En hér er fyrst og
fremst lýst eftir ábyrgð almennt.
Ábyrgð og aftur ábyrgð í ríkisfjár-
málum er það sem gildir. Annað er
landinu stórhættulegt.
Auglýst eftir ábyrgð!
Það er góður og sem betur fer
útbreiddur siður að foreldrar
lesi fyrir börnin sín áður en þau
sofna á kvöldin. Sögustundin er
einn dýrmætasti tími dagsins
hjá önnum köfnum foreldrum og
útkeyrðum fjörkálfum. Hún styrk-
ir tengsl foreldra og barna, skap-
ar kyrrð og ró og kastar töfrum
slunginni værð yfir börnin. Um
leið örvar hún ímyndunarafl og
málþroska barnanna, veitir þeim
innsýn í önnur lönd og ævintýra-
heima; kennir þeim að setja sig í
spor annarra og skipta um sjónar-
hól. Börn og unglingar sem alast
upp við reglubundinn lestur eru
lánsöm, þau munu búa að því alla
ævi. Einhvern tímann munu þau
taka börnin sín, frændsystkini
eða barnabörn í fangið, segja þeim
sögur og lesa fyrir þau og halda
þannig hefðinni áfram.
Börn hafa alltaf notið þess að
hlusta á sögur og þau munu njóta
þess áfram, hvar sem þau eru í
heiminum. Við njótum þess reynd-
ar öll að hlusta á vel sagða sögu
eða áhugaverðan upplestur, hvort
sem við erum lítil eða stór. Hús-
lestur hafði ofan af fyrir þjóðinni
öldum saman. Einn úr hópnum las
upphátt fyrir hina eða sagði sögur
og skipti þá engu hvort áheyrend-
ur voru börn, unglingar eða full-
orðnir. Fólk naut þess að hlusta
saman og ræða saman um söguna.
Ósjaldan voru það afi eða amma
sem sögðu sögur; gjarnan þjóð-
sögur, ævintýri eða minningar úr
eigin æsku. Með minnkandi sam-
skiptum kynslóðanna gefast börn-
um æ sjaldnar tækifæri til að biðja
ömmu og afa að segja sér sögu og
upplifa með þeim þá ró og ánægju
sem fylgir því. Það er því mikils
virði að nýta þau tækifæri sem
gefast til að styrkja tengsl milli
kynslóða með lestri, frásögnum,
samræðum og samveru.
Dagur læsis
Sunnudagurinn 8. september er
alþjóðlegur dagur læsis. Í þetta
sinn er dagurinn hér á landi helg-
aður lestri yngri og eldri kynslóð-
anna. Í tilefni dagsins viljum við
minna á gildi gamla góða húslestr-
arins; að kynslóðirnar sameinist
yfir góðu lesefni og njóti þess að
ferðast saman á sagnaslóðir. Það
er svo mikilvægt að lesið sé fyrir
börn og með börnum, að börn fái
lestraruppeldi, læri að njóta lestrar
og leggja við hlustir. Afi og amma
tekið þátt í að kenna það. Með eldri
börnum eykst fjölbreytileiki les-
efnis í takti við áhugasvið þeirra og
fjölskyldumeðlimir geta allt eins
lesið upphátt hver fyrir annan af
spjaldtölvum, snjallsímum eða úr
fréttablöðum og tímaritum. Leggj-
um ekki sögustundirnar af þó að
börnin séu orðin læs. Þau þurfa á
þeim að halda. Notum bækur til að
brúa kynslóðabilið, hvort sem þær
eru úr pappír eða birtast á skjáum.
Fáum unglingana til að kenna afa
og ömmu að nota lesbretti, spjald-
tölvur og hljóðbækur. Það er öldr-
uðum mikils virði að geta áfram
notið bókmennta og lesið fréttablöð
þó að erfiðara sé orðið að lesa af
prenti. Umfram allt, njótum lestrar
og samvista á degi læsis.
Dagskrá alþjóðadags læsis má
finna á síðunni: http://www.unak.is/
bokasafn/moya/page/dagur-laesis
Lestur brúar kynslóðabil
Í fyrri grein fjallaði ég
um hlutfallslega háan
kostnað við grunnskóla
á Íslandi og góðan náms-
árangur nemenda. Hér
á eftir mun ég benda á
hvað fleira við berum úr
býtum en góðan námsár-
angur.
HBSC-könnunin sýnir
að íslenski grunnskólinn
er í fremstu röð þegar
nemendur eru spurðir
hvernig þeim líkar í skól-
anum (sjá t.d. www.hbsc.
is). Sem foreldri finnst
mér það ómetanlegt og sem fag-
manni er mér það keppikefli.
Um þetta atriði hefur enda ríkt
samhljómur í samfélaginu; bæði
skólafólk, foreldrar og mennta-
yfirvöld hafa líðan nemenda í
forgangi. Vonandi særi ég hér
engan, því vitaskuld gengur sam-
veran ekki hnökralaust fyrir sig í
íslenskum skólum.
OECD leggur mikið upp úr
jöfnuði í samanburði á gæðum
menntakerfa. PISA-niðurstöð-
urnar segja íslenska grunnskól-
ann í fremstu röð þegar kemur
að jöfnum tækifærum til náms og
jöfnuði í skólakerfinu almennt.
Sem dæmi hefur efnahagsstaða
foreldra lítið forspárgildi fyrir
námsárangur og búseta nem-
enda sömuleiðis. Ekki þarf að
fara langt til að sjá miklu dapur-
legri mynd. Við skerum okkur
einnig úr varðandi blöndun nem-
enda. Víða virðist algengt að
nemendum í skyldunámi sé gert
að skipta um skóla ef námsár-
angri eða hegðun er ábótavant,
eða ef nemandinn þarf sérstakan
stuðning í námi. Á Íslandi í dag
þekkjast ekki flutningar af þessu
tagi og OECD bendir sértaklega
á að minni flutningar ýti undir
betri námsárangur. Mjög víða
erlendis er jafnöldrum sundrað
eftir prófaniðurstöðum snemma
á skólagöngunni, þeim dreift í
ólíka skóla og ólíka árganga. Hér
leggjum við áherslu á félagslega
blöndun, blessunarlega.
Árangur Íslands er einkar
athyglisverður í ljósi þess að
íslenski grunnskólinn er ungur
skóli. Átta ára dóttir mín fær
tvöfalt fleiri kennslustundir en
ég fékk á hennar aldri. Eftir
skóladaginn tekur við frábær
menntun í frístundaheimili og
tónlistar skóla. Átta ára fékk ég
þrjár kennslustundir í bítið hvern
dag og kom heim áður en birti af
degi. Þá stóðum við langt
að baki nágrannalöndun-
um tel ég víst.
Í skýrslu OECD segir
að nemendur sem hafa
sótt leikskóla nái betri
námsárangri á unglinga-
stigi grunnskóla. Lengri leikskóli
kallar einnig á betri námsárang-
ur sem og lágt hlutfall barna á
hvern leikskólakennara. OECD
segir beint út að auknir fjár-
munir á leikskólastigi skili betri
námsárangri á unglingsárum.
Íslenski leikskólinn er talinn frá-
bær í öllum samanburði en við
getum enn lengt hann í mörgum
sveitarfélögum.
En eins og ég sagði hér áður
eru sóknarfærin líka mörg, það
er margt sem má bæta. Í alþjóð-
legum samanburði náum við t.d.
ekki góðum árangri með nýjum
Íslendingum – nýbúum – sem
vonandi er öllum áhyggjuefni.
Hvernig menntun viljum við?
Varast þarf ofureinfaldanir í allri
umræðu um flókin fyrirbæri eins
og skólakerfi. Þessar tvær grein-
ar eru einnig einföldun á veru-
leikanum, því þrátt fyrir að hér
sé engu logið er samhengið flók-
ið. Fyrir okkur á Íslandi er mik-
ilvægt að taka áfram þátt í enn
fleiri alþjóðlegum rannsóknum
og skoða hlutina í víðu samhengi
áður en stórar ákvarðanir eru
teknar. Vonandi er sem flestum
ljóst að sú fullyrðing að enn megi
skera niður án þess að það komi
niður á gæðum er afar illa grund-
uð, jafn illa og að stórfættir geti
troðið sér í meðalskó.
Mikilvægast af öllu er þó að
ræða vel hvernig æsku og hvernig
menntun við viljum fyrir börnin
okkar. Sú umræða kallar síðan á
spurninguna um hvernig árangri
við viljum ná. Á þeim grunni
getum við síðan vegið og metið
árangurinn og hagtölurnar líka.
Við eigum eitt albesta grunnskóla-
kerfi í heiminum og ungmennin
sem útskrifast eru mjög hæf. Ef
við viljum – og erum þolinmóð –
mun skólinn enn vaxa og dafna.
Gleðilegt nýtt skólaár.
Af gæðum
grunnskólans
FJÁRMÁL
Steingrímur J.
Sigfússon
alþingismaður
➜ Auðlegðarskattar, stór-
eigna- eða eignaskattar eru
vel þekkt fyrirbæri að gömlu
og nýju.
➜ Mikilvægast af
öllu er þó að ræða
vel hvernig æsku og
hvernig menntun við
viljum fyrir börnin
okkar.
➜ Notum bækur til að
brúa kynslóðabilið, hvort
sem þær eru úr pappír eða
birtast á skjáum. Fáum
unglingana til að kenna afa
og ömmu að nota lesbretti,
spjaldtölvur og hljóðbækur.
MENNTUN
Jón Páll
Haraldsson
aðstoðarskólastjóri
Laugalækjarskóla í
Reykjavík
Seinni grein
MENNING
Brynhildur
Þórarinsdóttir
dósent við
Háskólann
á Akureyri
Ragnheiður Lilja
Bjarnadóttir
sérfræðingur
á Miðstöð skólaþró-
unar við Háskólann
á Akureyri