Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.09.2013, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 06.09.2013, Qupperneq 26
6. september 2013 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 26TÍMAMÓT Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSGERÐAR INGIMARSDÓTTUR Fróðengi 7 (áður Sigluvogur 3). Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki Landspítalans deild 11G. Victor Ágústsson Sólveig Victorsdóttir Ágúst Victorsson Ólöf Alfreðsdóttir Ingimar H. Victorsson Sonja Jónasdóttir Victor Örn Victorsson Rúna Stína Ásgrímsdóttir barnabörn og langömmubörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu hlýju og samúð vegna veikinda, andláts og útfarar okkar ástkæra SVANBJÖRNS SIGURÐSSONAR fyrrverandi rafveitustjóra, Hringteigi 5, Akureyri. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki Sjúkrahússins á Akureyri og starfsfólki Heimahlynningar á Akureyri. Reine Margareta Sigurðsson Birna María Svanbjörnsdóttir Gunnar Þór Gunnarsson Geir Kristján Svanbjörnsson Jakobína Guðmundsdóttir Guðrún Nýbjörg Svanbjörnsdóttir Oddný og Sóley Gunnarsdætur Bríet Reine og Karvel Geirsbörn Elskulegi eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, JÓHANN ANTONÍUSSON fyrrverandi útgerðarmaður, frá Fáskrúðsfirði, lést á Landspítalanum Fossvogi miðviku- daginn 4. september. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Guðný Kröyer Bróðir okkar, GUÐJÓN JÓNSSON frá Fagurhólsmýri, sem lést laugardaginn 31. ágúst, verður jarðsunginn frá Áskirkju mánudaginn 9. september klukkan 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Guðrún Jónsdóttir Þuríður Jónsdóttir Sigurgeir Jónsson Sigríður Jónsdóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR AÐALHEIÐUR JÓNSDÓTTIR sjúkraliði, hjúkrunarheimilinu Eir, áður Ljósheimum 6, lést miðvikudaginn 4. september. Jarðarförin verður auglýst síðar. Jóhann Jónasson Sigríður Bjarney Jónsdóttir Benedikt Jónasson María Björk Jóhannsdóttir Björk Elva Jónasdóttir Kjartan Kjartansson Atli Viðar Jónasson Þórunn Brandsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÚN Þ. MATHIESEN Hjallabraut 33, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 3. september. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 12. september kl. 13.00. Árni M. Mathiesen Steinunn K. Friðjónsdóttir Halldóra M. Mathiesen Frosti Bergsson Þorgils Óttar Mathiesen Matthías Árni, Bergur, Sigrún, Kristín Unnur, Halla Sigrún, Einar Páll og Arna Steinunn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, PÉTUR FILIPPUSSON Aðalstræti 9, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju kl. 13.00 mánudaginn 9. september. Guðjóna Guðjónsdóttir börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við fráfall og útför ástkærs föður, tengdaföður, afa og langafa, AÐALSTEINS STEINDÓRSSONAR Lækjarbrún 3, Hveragerði. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Dvalarheimilisins Bæjaráss í Hveragerði fyrir elskusemi og umönnun Aðalsteins á ævikvöldi hans. Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir Kristín Aðalsteinsdóttir Kristinn Sigurjónsson Auður Aðalsteinsdóttir Þórkatla Aðalsteinsdóttir Hörður Lúðvíksson Sveinn Aðalsteinsson Helga Pálmadóttir og fjölskyldur þeirra. Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTA NÍNA SIGURÐARDÓTTIR leiðsögumaður, verður jarðsungin þann 9. september frá Fríkirkjunni í Reykjavík klukkan 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð líknardeildar LSH í Kópavogi. Börkur Helgi Sigurðsson Ingólfur Torfason Ellert Helgi Sigurðsson Díana Ármannsdóttir Hlynur Helgi Sigurðsson Sari Maarit Cedergren Auður Herdís Sigurðardóttir Móðir mín, ARNÞRÚÐUR KARLSDÓTTIR handavinnukennari, Furugerði 1, Reykjavík, lést á öldrunardeild Landspítalans 4. september. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurveig Kristjánsdóttir „Ég er allur að koma til, er á fyrsta kaffibolla dagsins af mörgum í dag. Maður þarf að drekka mjög marga kaffibolla til að halda sér vakandi hérna á klakanum,“ segir tónlistar- maðurinn Sverrir Stormsker, sem fagnar fimmtugsafmæli sínu í dag. „Það er ekki mér að kenna að ég sé fimmtugur,“ bætir hann við þegar blaðamaður minnir hann á stór- afmælið og segist hreint ekki viss hversu vel tímamótin leggist í hann. „Þetta er nú í fyrsta sinn sem ég verð fimmtugur, þótt ótrúlegt megi virð- ast, og ætli ég verði ekki að venjast því aðeins? Ég hélt nú alltaf að ég yrði aldrei eldri en þrítugur, þannig að þetta er ágætis áfangi.“ Aðspurður segist Sverrir ætla til Portúgal á háhyrningaveiðar og svo þaðan til Færeyja á ljónaveiðar í til- efni dagsins. „Er það ekki ágætis byrjun á góðum afmælisdegi? En að öllu gríni slepptu þá verð ég með 1.200 manna veislu í Perlunni þar sem verð- ur boðið upp á koníakslegna panda- birni og marineraða sebrahesta með kokteilsósu og hamstratólg. Í eftir- rétt verður náttúrlega heilsteiktur gullkryddaður nashyrningur. Og svo ætla ég að fá Paul McCartney eða einhvern svoleiðis dúdda til að spila létta dinnermúsík á harmóníku til að hafa á bak við. Þetta verður sem sagt mjög látlaust og fínt,“ segir Sverrir og útskýrir að hann hyggist bíða með almennileg hátíðahöld fram á næsta ár, en þá fagnar hann þrjátíu ára tón- listarafmæli sínu. „Þá er ætlunin að gefa út ferfaldan safndisk í hand- hægum umbúðum, þótt auðvitað væri betur við hæfi ef hann væri fimmfald- ur, með um það bil áttatíu laga sýnis- horni af ferlinum. Ég er að hugsa um að kalla diskinn The Very Very Skást of Greatest Shits.“ Tónlistarmaðurinn vinnur einnig að nýrri plötu með frumsömdum jólalög- um sem kemur þó ekki út fyrir næstu jól. Á plötunni fær Sverrir ýmsa nafn- togaða söngvara með sér í lið og nefn- ir meðal annarra Ladda og Öldu Björk Ólafsdóttur til sögunnar. „Svo er ég búinn að tala við Eyþór Inga frænda minn og hann er til í tuskið. Það væri líka gaman að fá Björgvin Halldórs- son til að syngja á jólaplötunni, því hann er nú einu sinni sérfræðingur á þessu sviði sem og mörgum öðrum. Þetta verður mjög hátíðleg plata og alls ekkert klám, femínistum eflaust til mikillar gremju,“ segir Sverrir. Spurður um minnisstæðasta stór- afmælisdaginn nefnir Sverrir þrí- tugsafmælið sitt. „En sá dagur er aðallega minnisstæður eftir á vegna þess að ég man ekkert eftir honum. Ég hef greinilega tekið mjög kröftug- lega á því, en svona er þetta stundum í rokkinu.“ kjartan@frettabladid.is Man ekki eft ir minnis- stæðasta afmælinu Tónlistarmaðurinn Sverrir Stormsker er fi mmtugur í dag. Hann býst ekki við að blása til veislu í tilefni dagsins, enda segir hann að stórafmæli séu engar stórhátíðir. STORMSKER Sverrir Stormsker vinnur að nýrri jólaplötu þar sem ýmsir söngvarar verða í gestahlutverki. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.