Fréttablaðið - 06.09.2013, Blaðsíða 30
FRÉTTABLAÐIÐ Fólk og fegurð. Heimilisblogg og hugmyndir. Hera Hilmarsdóttir. Heilsudrykkir Hildar. Snyrtibuddan. Götutískan og innblástur. Helgarmaturinn.
2 • LÍFIÐ 6. SEPTEMBER 2013
HVERJIR
HVAR?
Umsjón blaðsins
Marín Manda Magnúsdóttir
marinmanda@frettabladid.is
Umsjón Lífsins á Vísir.is
Ellý Ármanns
elly@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Forsíðumynd
Íris Björk ljósmyndari
Auglýsingar
Atli Bergmann
atlib@365.is
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
Lífið
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
www.visir.is/lifid
Stílisti
Íris Björk
Marín Manda
Lífi ð
Hamingja, fólk og
annað frábært
L
oksins lét ég verða af því að skrifa
förðunarbók en þessi er ætluð
konum á öllum aldri. Þarna er ég
að kenna förðun og umhirðu húðar-
innar á einfaldan og skilmerkilegan
hátt og hvernig við förum í þessa grunn-
förðun sem ég er alltaf að predika að allar
konur eigi að sinna,“ segir Kristín Stef-
ánsdóttir, snyrti-og förðunarmeistari og
rithöfundur bókarinnar Förðun – skref
fyrir skref. Kristín er með 30 ára reynslu
innan förðunarbransans og segir að öll
förðunarflóran sé tekin fyrir í þessari ís-
lensku bók. Bókin er væntanleg í október
en í henni er kennd fimm mínútna förð-
unin, sem ætti að gagnast flestum konum,
kvöldförðun, brúðarförðun, „smokey“ og
fleira mætti telja. „Silla Páls tók mynd-
irnar en þetta eru yfir 200 myndir og það
liggur gríðarleg vinna í bókinni. Ég var
með æðislegt samstarfsfólk í þessu; hár-
greiðslufólk og stílista. Mörg módelin
hafa aldrei setið fyrir áður og útkoman er
mjög fjölbreytt og skemmtileg.”
BAK VIÐ TJÖLDIN
FÖRÐUN SKREF FYRIR SKREF
Kristín Stefánsdóttir hefur skrifað förðunarbók og Lífi ð fékk að skyggnast
á bak við tjöldin.
Sigga Kling var
einnig módel í bókinni.
Una Rúnarsdóttir hárgreiðslukona lagar hárið.
Fallegt módel að
verða tilbúið.
Kristín
farðar
Lindu Péturs-
dóttur.
Á tónleikum Snorra Helgasonar á
Kexi Hosteli við Skúlagötu á mið-
vikudaginn var margt um manninn
og mikil gleði. Örn Tönsberg, betur
þekktur sem 7berg, mætti á svæðið
og Guðrún Bjarnadóttir leikkona.
Þá létu sjá sig Diljá Ámundadóttir, varaborgarfulltrúi Besta
flokksins, Bergur Ebbi Benediktsson, uppistandari og skáld,
og Heiða Kristín Helgadóttir í Bjartri framtíð, ásamt kærasta
sínum Guðmundi Kristjáni Jónssyni, en þess ber að geta að
Heiða Kristín er systir Snorra.
Þá mætti Krummi Björgvinsson til að hlýða á ljúfa tóna Snorra.
Vantar kraftinn í þig!
Sjónvarpsstjarnan, læknirinn og heilsu-
gúruinn Dr Oz hefur mælt með Garcinia
Cambogia fyrir þá sem vilja grenna sig
á öruggan máta án öfga eða örvandi
efna. Hann segtir að efnið virki hratt og
sé alveg öruggt.
Garcinia cambogia hefur ekki sýnt sig
að hafa neinar aukaverkanir ef að fólk
fer eftir leiðbeiningum á umbúðum
og tekur hylkin inn hálftíma fyrir
máltíð. Garcini Cambogia er talið auka
serótónin magn líkamans sem hjálpar
gegn depurð, ofáti og eykur orkuna.
Solaray notar besta mögulega hráefni
og er framleitt undir ströngum GMP
stöðlum. Nánar á facebook síðu Solaray
Ísland.
Fæst aðeins í apótekum og
heilsuvöruverslunum.
Body lean er frábær bætiefna blanda frá Solaray sem hjálpar til að ná þeim
árangri sem fólk villl fá út úr aukinni hreyfingu, hvort sem það er að byggja upp
og móta vöðva, minnka sykurlöngun eða til að léttast. Body lean inniheldur
L-Carnitine sem eykur brennslu við æfingar, króm til að draga úr sykurlöngun,
hydrocitic acid HCA náttúrulegt efni sem er fengið úr Garcinia Camboogia ávext-
inum öðru nafni Tamarind en það hefur verið talið hjálpa við að örva efnaskipti
líkamans og um leið draga úr matarlyst og fituframleiðsu líkamans. Rannsóknir
hafa sýnt fram á það að þeir sem neyta HCA borði minna og geymi einnig minni
fitu í líkamanum. Best og áhrifaríkast er að neyta Body lean hálftíma fyrir máltíð.