Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.09.2013, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 06.09.2013, Qupperneq 32
FRÉTTABLAÐIÐ Heimilisblogg og hugmyndir. Hera Hilmarsdóttir. Heilsudrykkir Hildar. Snyrtibuddan. Götutískan og innblástur. Helgarmaturinn. 4 • LÍFIÐ 6. SEPTEMBER 2013 Soffía Dögg hefur verið dugleg að breyta heimilinu sínu en kökudiskarnir hafa meðal annars vakið mikla athygli á blogginu hennar. S umir segja að ég sé svo- lítið eins og Monica í Friends því þegar ég kem í heimsóknir kitlar mig í fingurna ef púðarnir eru í ólagi. Ég hef alltaf verið að breyta og skreyta og er þetta mitt aðal- áhugamál,“ segir Soffía Dögg Garðarsdóttir sem er blóma- skreytir að mennt. Soffía Dögg heldur úti blogginu skreytum- hus.is en þar skrifar hún um snið- ugar hugmyndir fyrir heimilið og breytingar á ýmsum munum, hvort sem það eru húsgögn, smá- munir eða heilu herbergin. „Það er ekki nauðsynlegt að fara inn í einhverja hönnunarbúð til að gera fallega hluti og mér finnst skemmtilegast að gera mikið úr litlu. Sumir eru mjög vana fastir en það er mikil rómantísk endur- vakning á heimilunum og fólk er að uppgötva að gefa gömlum munum nýtt líf.“ Hún segir köku- diska meðal annars vera sniðuga til annarra nota og fólk þurfi því að hugsa örlítið út fyrir kassann til að sjá möguleikana. „Ein kona getur fært öll húsgögnin í húsinu ef hún er með handklæði undir þau. Þá er einnig mjög gott að fara úr sokkunum,“ segir hún hlæjandi að lokum. BLOGG GEFÐU GÖMLUM MUNUM NÝTT LÍF Soffía Dögg Garðarsdóttir heldur úti heimilisblogginu skreytumhus.is. Soffía Dögg hefur í nógu að snúast og er oft fengin heim til vin- kvennanna til að raða upp á nýtt. Myndirnar tala sínu máli á blogg- inu sarasjofn.com en síðan inni- heldur margar skemmtilegar hug- myndir fyrir heimilið, myndir af fallegum barnaherbergjum og matar uppskriftum. „Þetta er al- gjört áhugamál og ég sæki inn- blástur til hinna Norðurlandanna. Ég stofnaði bloggið í fyrra og átti mitt fyrsta barn í febrúar. Ég ákvað að ef hann yrði meðfærilegur og þægur þá gæti ég dundað mér við þetta með. Svo varð að sóknin á síðuna meiri og meiri og það var svo hvetjandi að halda áfram,“ segir Sara Sjöfn Grettisdóttir, sem stundar viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Sara Sjöfn bloggar aðallega um hönnun og innlit á heimili en segist stundum setja inn matarupp- skriftir. „Ég fæ margar fyrir spurnir í tölvupósti frá fólki og get fylgst með flettingum og reyni að sinna því sem er vinsælast. Fólk er al- mennt forvitið í eðli sínu og því vekur persónulegur póstur mestan áhuga fólks.“ Sjálf segist Sara Sjöfn heillast mest af einföldum, klassískum, skandinavískum stíl blönduðum við örlitla rómantík. BLOGG INNBLÁSTUR SÓTTUR TIL NORÐUR- LANDANNA Sara Sjöfn Grettisdóttir heldur úti hinu fl otta hugmynda- bloggi sarasjofn.com. Sara Sjöfn er hrifin af einföldum stíl. Bloggið inniheldur margar sniðugar hugmyndir eins og blaðastandinn hér. Meira blóðflæði Betri líðan betri heilsa SUPERBEETS Rauðrófukristall 100% lífrænt og því fullkomlega öruggt 30 daga skammtur. 1 teskeið daglega (2 tsk. fyrir æfingar) blandað í 150 ml af vatni. Bætt blóðflæði 30 min eftir inntöku. Nitric Oxide Nóbelsverðlaun 1998 Sameind ársins 1992 700 600 500 400 300 200 100 0 N -O In de x BEET ELITE BeetIt BiottaSUPERBEETS Stingur keppinautana af yfir 500 sinnum öflugra. Eftir fertugt framleiðir líkaminn mun minna Nitric Oxide SUPERBEETS örvar Nitric Oxide framleiðslu strax. Betra blóðflæði, 30% æðaútvíkkun, 30% meiri súrefnisupptaka, réttur blóðsykur, aukin fitubrennsla, 20% meira þrek orka og úthald, hraðar bata eftir æfingar. Bætt ris hjá körlum, aukin kynörvun kvenna. Hefur áhrif á og bætir: Blóðþrýsting, kólesteról, hjarta- æða- og taugakerfi, þvagblöðru og ristil, lifur, nýru, ofnæmiskerfi, heila, skapferli, Þynnku, astma, lungnaþembu. Ríkt af andoxunarefnum. Náttúruleg kynörvun fyrir karla og konur Hvað gerir VIAGRA - SILDENAFIL The release of nitric oxide molecules causes erection. Fæst í apótekum, heilsubúðum, World Class og Sportlíf Umboð: www.vitex.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.