Fréttablaðið - 06.09.2013, Side 37
KYNNING − AUGLÝSING Bólstrun6. SEPTEMBER 2013 FÖSTUDAGUR 3
Klæðskerasniðin húsgögn
Hjá G.Á. húsgögnum fást sérsmíðuð húsgögn sem hægt er að klæðskerasníða inn í það rými sem þeim er ætlað.
G. Á. húsgögn sérhæfa sig í framleiðslu á húsgögnum og bólstrun fyrir heim-
ili, stofnanir, hótel, veitinga-
hús, skip og báta. Fyrirtæk-
ið var stofnað árið 1975 og er
eitt elsta starfandi húsgagna-
fyrir tæki landsins. Starfs-
menn G.Á. húsgagna sér-
smíða húsgögn eftir óskum við-
skiptavina og bjóða lausnir sem
ekki fást annars staðar. Hægt er
að klæðskerasníða húsgögn inn í
ákveðin rými. Fólk þarf því ekki að
velja hér um bil rétta stærð af sófa
eða hér um bil réttan lit heldur fær
nákvæmlega það húsgagn sem
það vill, sem passar nákvæmlega
í það pláss sem því er ætlað.
Notast er við grunna G.Á. hús-
gagna en viðskiptavinir velja
liti, stærðir og efni með aðstoð
meistara, sveina og annarra
starfsmanna verslunarinnar.
Unnið er náið með arkitektum
auk þess sem starfsmenn fyrir-
tækisins eru duglegir að viða að
sér nýrri þekkingu, straumum
og stefnum á sýningum erlendis.
Allar grindur eru smíðaðar
á staðnum og fyrirtækið flytur
sjálft inn alla fylgihluti, leður og
áklæði.
Starfsmenn G.Á. húsgagna
fylgjast vel með ríkjandi tísku-
straumum í húsgagnahönnun.
Sem stendur má greina umtals-
verða fortíðarhyggju í hönnun-
inni og minnir form og efnisval
um margt á tísku sjöunda ára-
tugarins. Nýi sófinn Geitir ber
þess merki, en hann var frum-
sýndur á Hönnunarmars í fyrra
og svo aftur örlítið breyttur í ár.
Hann ber gamalt íslenskt karl-
mannsnafn en öll hönnun G.Á
húsgagna ber íslensk nöfn.
Perla hentar mjög vel
sem sjónvarpssófi en passar líka vel í
setustofuna.
Hreiður er dýpsti sófi
G.Á. húsgagna. Hann
tekur vel á móti þeim
sem í hann sest með
mjúkri setu og baki.
Fæstir vilja standa upp
úr þessum sófa.
Án bólstrunar sæti fólk á grindum og
gormum. Bólstrun er gríðarlega mikil-
vægur hlekkur í nútímaþægindum.
Starfsmenn G.Á.
húsgagna
fylgjast vel með ríkjandi
tískustraumum í
húsgagnahönnun. Sem
stendur má greina
umtalsverða
fortíðarhyggju í
hönnuninni og minnir
form og efnisval um
margt á tísku sjöunda
áratugarins.
GÁ húsgögn ehf. er traust fyrirtæki sem hefur veri á íslenskum markaði um
árabil. Við leggjum áherslu á stílhrein, vönduð húsgögn og fljóta og góða
þjónustu. Ef þig vantar falleg húsgögn fyrir heimilið eða fyrirtækið þá eigum við
réttu húsgögnin fyrir þig.
Ármúla 19 | S: 553-9595 | gahusgogn@gahusgogn.is | www.gahusgogn.is
Við tökum málin þín í okkar hendur
Sérsmíðum fyrir heimili og fyrirtæki