Fréttablaðið - 28.09.2013, Side 22
28. september 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 22
Miklar öfgar í allri umræðunni
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi ráðherra, segir algerlega vanhugsað hjá ríkisstjórninni að slíta aðildar viðræðunum
við ESB. Hún er í nýju starfi innan Samtaka atvinnulífsins og kveðst frjálsari þar en í landsmálapólitíkinni. Þorgerður telur konur
harðar dæmdar á þingi en karla og kveðst tilfinningavera en vonar að það nýtist henni í Ísland Got Talent.
Nýju starfi fylgir allt-af eftirvænting en líka pínulítill kvíða-hnútur. Þótt ég hafi reynslu á ákveðnum sviðum er ekki eins og
ég hafi höndlað heiminn allan. Það
mætir manni alltaf eitthvað nýtt,“
segir Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir, fyrrverandi menntamála-
ráðherra, sem er í nýrri stöðu sem
forstöðumaður mennta- og nýsköp-
unar innan Samtaka atvinnulífsins.
Hún kveðst kunna mjög vel við sig.
„Það sem ég fann strax fyrsta dag-
inn og skiptir mig miklu máli er að
hér er gott fólk, kraftmikið og ekki
skoðanalaust. Svo er haldið vel utan
um hlutina, sem er mikilvægt upp á
alla skipulagningu og stefnumótun.“
Var þessi staða búin til fyrir þig?
„Nei, en hún er meðal þeirra
breytinga sem fylgja nýju fólki
með nýjar áherslur sem nú er við
stjórn SA. Mér finnst frábært að
þessi samtök, sem hafa mikilvæga
rödd í íslensku samfélagi, ætli að
leggja aukna áherslu á mennta- og
nýsköpunarmál. Þá er ég ekki að
segja að ekki hafi verið unnið vel að
þeim áður. Hér er dýrmæt þekking
á sviði menntamála hjá þeim starfs-
mönnum sem fyrir eru. Stór þáttur í
starfi samtakanna er að veita fyrir-
tækjunum greiðan aðgang að því að
mennta starfsmennina sína enda er
hagur fyrirtækja að hafa ánægða
starfsmenn með aukna þekkingu
og hæfni. En nú á að hnykkja frek-
ar á stefnu og skoðun samtakanna
á þessu sviði. Staðan var ekki búin
til fyrir mig en ég er mjög þakklát
fyrir að leitað var til mín.“
Hverjar eru stærstu áskoranirn-
ar í menntamálum, að þínu mati?
„Höfum í huga að árið 2008, eftir
ríflega fimm ára vinnu og mikil
samskipti við sveitarfélög, kennara-
samtökin og Heimili og skóla, var
lögð fram ný skólastefna, með aukn-
um sveigjanleika milli skólastiga,
nýrri nálgun í kennaramenntun, efl-
ingu iðn- og starfsmennta, minnk-
un brottfalls í framhaldsskólum og
auknum kröfur til háskóla. Flest-
ir gengu í takt. Síðan varð hrunið
og nýja ríkisstjórnin ákvað að slá
breytingunum á frest, sem ég tel að
hafi verið mistök því uppstokkunar
er þörf. Samtök atvinnulífsins hafa
ályktað um árabil um að stytta eigi
nám til stúdentsprófs, hvort sem það
er gert í gegnum grunnskólann eða
framhaldsskólann. Þau vilja einnig
gera auknar kröfur til kennsluhátta,
rekstrar og rannsókna. Við verðum
alltaf að vera á tánum þegar kemur
að menntamálum, rannsóknum og
nýsköpun. Ég vil líka draga fram,
af því ég var að gagnrýna vinstri-
stjórnina, að hún gerði margt gott
á sviði nýsköpunarmála, með betra
skattalegu umhverfi fyrir litlu
frumkvöðlafyrirtækin sem hafa
alveg ótrúlegan sköpunarkraft og
hugmyndir sem manni finnst verða
að njóta framgangs. En þá komum
við að gjaldeyrishöftunum, sem í
dag eru helsti Þrándur í Götu frum-
kvöðlastarfsemi á landinu. Það er
gríðarlega stórt og mikilvægt mál
fyrir okkur til lengri og skemmri
tíma að unnið verði hratt og örugg-
lega á höftunum. Að hætta viðræð-
unum við Evrópusambandið er hér
ekki hjálplegt né það að skýr fram-
tíðarstefna í peningamálum er ekki
í augnsýn.
Það hefði síðan verið smart hjá
ríkisstjórninni að taka því fagn-
andi að fara í sameiginlega og
faglega skýrsluúttekt á stöðunni
í viðræðunum með aðilum vinnu-
markaðarins í stað þess að slá í
útrétta hönd þeirra og viðleitni til
uppbyggilegrar umræðu. Ég var
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
nú að vona að þessi ríkisstjórn tæki
ekki upp slagsmálaþráð gömlu ríkis-
stjórnarinnar við þessa mikilvægu
aðila því hagsmunir allra liggja
fremur saman en í sundur.“
Pólitíkin skemmtilegust
Hefðir þú viljað halda áfram í lands-
málapólitíkinni? „Ég dreg ekki dul
á það að hún er það skemmtilegasta
sem ég hef gert fram að þessu. Ég
átti dýrmætan tíma í henni með
ótrúlega skemmtilegu fólki sem er
vinir mínir og ég held sambandi
við. Ég kynntist líka fólki sem mig
langar að gleyma. Pólitíkin er að
mínu mati vanmetið fyrirbæri en
mér finnst vont að sjá suma ein-
staklinga í henni verða fyrir óvæg-
inni umræðu sem þeir eiga ekkert
endilega skilið. Enn sárara er að sjá
á eftir fólki úr pólitík með bullandi
hæfileika eins og Gísli Marteinn.
Það er eitthvað að ef Sjálfstæðis-
flokkurinn leyfir ekki fleiri en eina
skoðun, hvað þá umræðu á tiltekn-
um sviðum. Hin breiða skírskotun
flokksins í gegnum söguna verður
þá einhvern veginn svo víðs fjarri.“
Þú fékkst nú aldeilis að finna
fyrir umræðunni eftir hrun og
það var umsátur um heimilið þitt.
Hvernig leið þér þá og hvernig líður
þér með þá reynslu? „Þetta er tími
sem er liðinn. Hann var erfiður
og hann var sár en það þýðir ekki
að dvelja of mikið við hann. Það á
samt eftir að gera hann upp. Eitt er
að skoða aðdraganda hrunsins, sem
var nauðsynlegt. Hitt er að skoða
eftirfylgnina og hvort við Íslend-
ingar séum stoltir af öllu því sem
við gerðum þá. Efst í mínum huga
þar er svívirðan með lands dóminn.
Þar var pólitíkin í sinni ljótustu
mynd að mínu mati. Hvernig hún
birtist í ákveðinni friðþægingu af
hálfu þeirra sem tóku við. Ég fæ
kökk í hálsinn þegar ég hugsa um
þetta. Þetta var erfiður tími og hann
mátti alveg vera það fyrir okkur
sem höfðum staðið í pólitíkinni.
Ég er alls ekki að hlífa okkur. En
hann var ekki endilega sanngjarn.
Uppgjörið mun koma einn daginn.
En ég er bara stödd á öðrum stað
núna, komin í nýtt starf þar sem
ég fæ tækifæri til að styðja við
góð mál í þágu atvinnulífsins sem
ríkis stjórnin er að berjast fyrir, nú
eða stjórnar andstaðan. Ég er mun
frjálsari en á þingi. Ég þarf ekki
lengur að taka tillit til þeirra sjón-
armiða sem ég var ekki sammála
innan flokksins míns en samþykkti
með stóru heildar myndina í huga.
Ég hef alltaf treyst á að fyrirmynd-
arríkið væri þetta opna og umburð-
arlynda samfélag, sem byggði á
frjálsum alþjóð legum markaði,
frelsi í viðskiptum og trúna á ein-
staklinginn. Mér finnst ekkert endi-
lega þau baráttumál vera á oddin-
um þegar pólitíkin er annars vegar,
ekki einu sinni hjá þeim flokki sem
ég hef alltaf treyst og styð enn.“
Já, styður enn? „Já. Ég treysti
Bjarna, ég hef unnið með honum
og veit hvaða mann hann hefur að
geyma. Ég segi við fólk sem er að
gagnrýna hann og Sigmund Davíð:
Gefið þeim svigrúm, sýnið þeim
sanngirni. En þeim verður ekki
hlíft ef þeir vinda sér ekki í verk-
efnin sem fólk er að kalla eftir.
Ég hef trú á þeim þótt þeir hafi
gert stór mistök með því að hætta
aðildar viðræðum við ESB. Það var
heimskulegt og ekki í þágu íslenskra
hagsmuna. Ætli það væri ekki tölu-
vert hægara að aflétta gjaldeyris-
höftunum í samstarfi við Evrópu-
sambandið og Alþjóða bankann og
fleiri stofnanir en að vera einangr-
uð? Nú, eða hafa svigrúm og stuðn-
ing við mótun nýrrar peningamála-
stefnu.
Hvað þýðir það fyrir íslensk
heimili eða fyrirtæki að vera 10-12
ár í höftum eins og merkir hagfræð-
ingar hafa leitt líkur að? Það er tipl-
að á tánum í kringum það hvaða
vaxtabyrði íslensk heimili þurfa að
þola. Ég var að lesa að herkostnaður
við gjaldmiðilinn eins og hann er í
dag væri 120-150 milljarðar á ári.
Svo lætur fólk eins og það sé bara
fínt að slíta aðildarviðræðunum og
henda mikilvægum valkosti fyrir
okkur út af borðinu. Þetta er bara
fáránlegt.“
Hefurðu engar áhyggjur af stöðu
sjávarútvegs og landbúnaðar ef
Ísland gengur í Evrópusambandið?
„Ég er talsmaður öflugs íslensks
sjávarútvegs og íslensks land-
búnaðar. En ég vil forðast umræð-
ur eins og: Annaðhvort ert þú á móti
Evrópusambandinu eða þú ert ekki
sannur Íslendingur. Annaðhvort
viltu landbúnaðarkerfi eins og það
er nú eða þú ert á móti bændum.
Annaðhvort ertu með flugvellin-
um eða á móti allri landsbyggð-
inni. Það eru svo miklar öfgar í
allri umræðunni. Sjálf hef ég alltaf
verið á móti því að færa flugvöllinn
en það má alveg hlusta á röksemd-
ir hinna sem vilja hann burt. Það
er auðvitað fullt af verð mætum í
Vatnsmýrinni. Við sem styðjum
flugvöll þar verðum að minnsta
kosti að geta svarað því hvert við
viljum að byggðin þróist á höfuð-
borgarsvæðinu og hver eigi að bera
kostnaðinn af því. Þessi öfgakennda
umræða á öllum málasviðum finnst
mér skemma mest í íslensku sam-
félagi. Það er allt „annaðhvort eða“.
Ég er orðin pínu þreytt á því.“
Önnur krafa til kvenna en karla
Nú var Bjarni þátttakandi í vafa-
samri fjármálastarfsemi en
ÞORGERÐUR KATRÍN
„Mér fannst afskaplega vont þegar
ég var í ríkisstjórn þegar Sigríður
Anna fór úr stjórninni og ég varð
ein eftir með sjálfstæðisstrákunum,
eins og þeir eru indælir. Hver rödd
skiptir svo miklu máli.“
STJÓRNMÁLAMENN
Enn sárara er að sjá á eftir
fólki úr pólitík með
bullandi hæfileika eins
og Gísla Marteini. Það er
eitthvað að ef Sjálfstæðis-
flokkurinn leyfir ekki fleiri
en eina skoðun, hvað þá um-
ræðu á tilteknum sviðum.
GERUM ÖLL MISTÖK
Ég hef stundum sagt
dómadagsdellu eins og
þegar ég sagði blessaða
danska sérfræðingnum
hjá Merrill Lynch að fara í
endurmenntun þegar hann
var með ábendingar varð-
andi íslenskt efnahagslíf.
EVRÓPUSAMBANDIÐ
Svo lætur fólk eins og það
sé bara fínt að slíta aðildar-
viðræðunum og henda
mikilvægum valkosti fyrir
okkur út af borðinu. Þetta
er bara fáránlegt.
STAÐA KVENNA
Mér finnst skipta máli að
hlustað sé á konur á þeirra
eigin forsendum og að þær
séu ekki alltaf viðhengi
einhvers annars.
ÞORGERÐUR KATRÍN