Fréttablaðið - 01.10.2013, Page 28

Fréttablaðið - 01.10.2013, Page 28
1. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 20 TÓNLIST: ★★★★ ★ Fyrstu tónleikar Kammer- músík klúbbsins í vetur. Verk eftir de Arriaga, Beethoven og Brahms. Sigrún Eðvaldsdóttir, Zbigniew Dubik, Ásdís Valdimarsdóttir og Bryndís Halla Gylfadóttir léku. Juan Cristostomo de Arriaga hét maður. Tónlist eftir hann var á dagskrá Kammermúsíkklúbbs- ins á sunnudagskvöldið. Ég býst ekki við að margir tónleikagesta hafi vitað hver hann var. Samt var hann undrabarn, sem samdi á tán- ingsaldri þrjá glæsilega strengja- kvartetta. En hann dó aðeins nítján ára gamall (árið 1826), sennilega úr berklum. Ef hann hefði lifað hefði hann líklega orðið eitt af stóru tón- skáldum sögunnar. Fjórir hljóðfæraleikarar hófu tón- leikana með því að flytja strengja- kvartett nr. 2 eftir tónskáldið. Þetta voru þau Sigrún Eðvaldsdóttir og Zbigniew Dubik fiðluleikarar, Ásdís Valdimarsdóttir víólu leikari og Bryndís Halla Gylfadóttir á selló. Tónlistin var létt og leikandi, en ekki frumleg nema upphafið á hæga kaflanum, sem vísaði fallega í spænska þjóðlagatónlist. Hljóðfæraleikararnir voru í bana- stuði, spiluð skýrt og af öryggi, sam- hljómurinn var í prýðilegu jafn- vægi, túlkunin lífleg. Engu að síður er ég á þeirri skoðun að þetta verk hefði ekki átt að vera á tónleikun- um. Það var hreinn óþarfi. Ástæð- an? Jú, strengjakvartett í a-moll op. 132 eftir Beethoven, sem var næst- ur á dagskrá. Þessi volduga, marg- slungna, ótrúlega hrífandi tónsmíð er svo mikilfengleg að ekkert annað hefði átt að vera á dagskránni fyrir hlé. Kvartett Beethovens krefst ein- beitingar, og það er best að flytja hann þegar áheyrendur eru ferskir. Spilamennskan var þó framúr- skarandi. Samspilið var sérlega nákvæmt, og túlkunin fyllilega í anda verksins. Hún var full af átök- um, en samt var þar auðfundin ein- hver hástemmd hugarró, sem kom við hjartað í manni. Beethoven átti bara tvö ár eftir ólifuð þegar hann samdi kvartettinn. Hann hafði verið veikur um tíma, en náð heilsu aftur. Hægi kaflinn ber yfirskrift- ina „Heilagur þakkaróður til Guð- dómsins frá manni sem hefur fengið bata á ný… “ Kaflinn var svo fallega leikinn af fjórmenningunum að ég man varla eftir öðru eins á tónleik- um Kammermúsíkklúbbsins. Það var eitthvað alveg einstakt við flutn- inginn, sem ómögulegt er að koma orðum að hér. Eftir hlé var á dagskránni strengjakvartett nr. 1 í c-moll eftir Brahms. Hann leið dálítið fyrir að vera síðastur á tónleikum sem voru óþarflega langir. En aftur var túlk- unin sannfærandi, kraftmikil og ástríðuþrungin. Tæknileg atriði voru líka á hreinu, rétt eins og fyrir hlé. Þetta var flott! Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Frábær flutningur en tónleikarnir í heild voru óþarflega langir. Minna hefði verið enn þá meira KVARTETT SIGRÚNAR EÐVALDS- DÓTTUR „…túlkunin sannfærandi, kraftmikil og ástríðuþrungin. Tæknileg atriði voru líka á hreinu… “ segir Jónas Sen. Listaverkið Ice Cliff eftir Guðlaugu Geirs- dóttur keramiklistamann er eitt af 22 umhverfisverkum sem eru tilnefnd til verðlauna á CERCO-listahátíðinni á Spáni í ár. Sýning á verkunum stendur nú yfir í Zaragoza. Guðlaug kveðst hafa sent rúm- lega 30 cm háa tillögu eða „prótótýpu“ að verkinu sínu út en fullunnið yrði verkið um tveir metrar. „Í tillögunni er bara keramik og gler en ef verkið yrði unnið í fullri stærð þyrfti að setja það á grind,“ lýsir hún. CERCO-listahátíðin er nú haldin í þrett- ánda sinn. Hún er einn stærsti viðburður Spánar á sviði keramiklistar og þetta er í annað sinn sem Guðlaug kemst þar í úrslit því hún var líka tilnefnd til verðlauna þar í fyrra. Til þessa hefur sýningin verið haldin árlega en Guðlaug segir hana vera að breytast í tvíæring með ákveðið þema hverju sinni. Í þetta sinn var þemað „keramik og umhverfi“. „Nú var líka í fyrsta sinn talsvert um að hópar sendu inn verk en það hentaði mér ekki þar sem ég vinn ein,“ segir hún. Guðlaug er Rangæingur, ólst upp að Steinum undir Eyjafjöllum, en er fyrir löngu flutt í bæinn. Hún útskrifaðist úr mótunardeild Myndlistaskólans í Reykja- vík árið 2010 og hafði þá lokið námi í hönn- un við Tækniskólann. Auk sýninganna á Spáni hefur hún haldið tvær einkasýning- ar hér á landi, aðra hjá Handverki og hönn- un á Skörinni og hina í Þjóðmenningar- húsinu. Hún selur muni sína í Listasafni Íslands, Þjóðmenningarhúsinu, Land- námssetrinu í Borgarnesi og Borgarhóli á Seyðis firði. - gun Tilnefnd til alþjóðlegra verðlauna Guðlaug Geirsdóttir listakona var tilnefnd til verðlauna á alþjóðlegu listahátíðinni CERCO, sem haldin var nýlega í Zaragoza á Spáni. LISTAKONAN „Keramiklistin hefur þróast þannig hér á landi að mikið af framleiðslunni fer fram erlendis,“ segir hún. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ICE CLIFF Umhverfisverkið sem Guðlaug sýnir í Zaragoza á Spáni. MYND/ÁSA SIF ÁRNADÓTTIR MENNING KATLA FUND Société d'Investissement à Capital Variable 14, boulevard Royal – L-2449 LUXEMBOURG R.C.S. Luxembourg B 96.002 (hereafter referred to as the “SICAV“) NOTICE TO SHAREHOLDERS The Board of Directors decides to appoint, as from 1st October 2013, BLI-BANQUE DE LUXEMBOURG INVESTMENTS S.A. (7, boulevard Prince Henri, L-1724 Luxembourg) as the Management Company of the SICAV, in replacement of CONVENTUM ASSET MANAGEMENT (9, boulevard Prince Henri, L-1724 Luxembourg). The intra-group change in management company shall not involve a fee increase for shareholders and no transfer fee will be charged. Furthermore the shareholders are informed that Arnór Gunnarsson has left STEFNIR ASSET MANAGEMENT COMPANY HF and that the name of the persons in charge of the portfolio management of the SICAV’s sub-funds with STEFNIR ASSET MANAGEMENT COMPANY HF are removed from the prospectus of the SICAV. The updated prospectus is available free of charge at the registered office of the SICAV. Luxembourg, 1st October 2013 The Board of Directors Styrkt af Stjórnandi: Sigurður Flosason Gestur: Sigríður Thorlacius Rekstrarvörur - vinna með þér

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.