Fréttablaðið - 01.10.2013, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 01.10.2013, Blaðsíða 10
1. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10 SVÍÞJÓÐ, AP „Ef þetta er afbrota- skrá, þýðir það þá að allir einstak- lingar af rómaþjóðinni séu afbrota- menn?“ spyr Marcello Demeter, 42 ára gamall Svíi, sem í síðustu viku komst að því að hann væri á skrá hjá lögreglunni. „Og barnabarnið mitt, að hvaða leyti er það afbrota- maður?“ Demeter er af rómaþjóðinni svonefndu, eða sígaunum eins og almennt tíðkaðist að nefna róma- fólkið til skamms tíma. Sænski blaðamaðurinn Niklas Orrenius upplýsti í sænska dag- blaðinu Dagens nyheter í síðustu viku að lögreglan á Skáni í Suður- Svíþjóð hefði haldið leynilegar skrár yfir fimm þúsund einstak- linga af rómaþjóðinni sem búsettir eru í Svíþjóð. Á þessum skrám sé meðal annars að finna um þúsund börn. „Það fyrsta sem mér datt í hug var Hitler og allt það sem gerst hefur í fortíðinni. Þetta er hræði- legt,“ segir Demeter. Bengt Svenson, lögreglustjóri sænsku lögreglunnar, viðurkennir að skrár af þessu tagi séu ólög legar í Svíþjóð. Dómsmála ráðherrann Beatrice Ask hefur beðist afsök- unar fyrir hönd stjórnvalda og eru rannsóknir hafnar á því hvernig á skráningunni stendur. „Þetta er skammarlegt fyrir Svíþjóð, því við höfum getið okkur orð erlendis fyrir að sinna félags- legu réttlæti af ástríðuhita og að við vinnum að jöfnum réttindum fólks,“ segir Hans Calderas, sænsk- ur rithöfundur sem á uppruna sinn að rekja til rómafólks. „Þessir lög- reglumenn hafa ekki bara valdið rómafólki skaða heldur allri Sví- þjóð.“ Talið er að rómafólkið hafi komið til Evrópu frá Indlandi á fjórtándu öld. Til Svíþjóðar kom það frá Finnlandi og Rússlandi fyrir um það bil 500 árum. Nú búa um 15 til 20 þúsund manns af rómaþjóð- inni í Svíþjóð og eru þá meðtald- ir innflytjendur frá Júgóslavíu og austan verðri Evrópu sem komið hafa þangað á síðustu árum. Rómafólk býr í flestum löndum Evrópu, flest í Rúmeníu, Búlgaríu og Ungverjalandi. Það hefur mátt sæta miklum for- dómum, mismunun og illri meðferð af ýmsu tagi. Meðal annars er talið að þýskir nasistar hafi myrt allt frá hálfri milljón til einnar og hálfrar milljónar þeirra í Helförinni ásamt gyðingum og fleiri minnihluta- hópum. gudsteinn@frettabladid.is Lögreglan á Skáni sögð skaða Svíþjóð Uppljóstranir um skráningu sænsku lögreglunnar á rómafólki hafa valdið upp- námi meðal rómafólks í Svíþjóð. Lögreglustjórinn hefur sagt skráninguna ólög- lega og dómsmálaráðherra beðist afsökunar fyrir hönd sænskra stjórnvalda. MARCELLO DEMETER Er á skrá lögreglunnar á Skáni ásamt eiginkonu sinni, tveimur dætrum og að minnsta kosti þremur af barnabörnunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP E N N E M M / S ÍA / N M 5 9 3 9 4 Opnum afturmiðvikudaginn 23. október Við breytum og bætum Vínbúðina Stekkjarbakka Lokað verður dagana 7.- 22. október. Við þökkum þolinmæðina og bendum viðskiptavinum á Vínbúðirnar Dalvegi, Smáralind og Heiðrúnu á meðan breytingarnar standa yfir. Hlökkum til að taka á móti ykkur í enn betri Vínbúð. vinbudin.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.