Fréttablaðið - 01.10.2013, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 01.10.2013, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 1. október 2013 | MENNING | 21 Sýning á ljósmyndum eftir Guð- jón Róbert Ágústsson verður opnuð föstudaginn 4. október á Bókasafninu í Hveragerði. Flest- ar myndirnar eru teknar á síð- ustu þremur árum og sýna fjöl- breytileika í íslenskri náttúru. Róbert hefur unnið við ljós- myndun síðan í maí 1965 þegar hann hóf störf á ljósmyndadeild Dagblaðsins Tímans við prent- myndagerð og blaða ljósmyndun. Hann vann á Tímanum og NT fram í júní 1984. Frá þeim tíma hefur hann unnið sjálfstætt sem ljósmyndari og blaðamaður. Róbert hefur búið í Hveragerði síðastliðin tvö ár. Sýningin verður opin á opnunar tíma bókasafnsins, virka daga frá klukkan 13 til 18.30 og laugardaga frá klukkan 11 til 14. Ljósmynda- sýning í Hveragerði SÝNIR Á BÓKASAFNI Guðjón Róbert Ágústsson opnar ljósmyndasýningu á föstudag. Eyrarrósin, viðurkenning til framúrskarandi menningar- verkefna á starfssvæði Byggða- stofnunar, verður veitt í tíunda sinn sinn í febrúar 2014. Það eru Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík sem staðið hafa saman að verðlaunun- um frá upphafi. Handhafi Eyrarrósarinnar hlýt- ur 1.650.000 krónur og flugferðir frá Flugfélagi Íslands. Aðrir til- nefndir hljóta 300.000 krónur auk flugferða. Umsækjendur um Eyr- arrósina geta meðal annars verið stofnun, tímabundið verkefni, safn eða menningarhátíð. Valnefnd til- nefnir þrjú verkefni og hlýtur eitt þeirra Eyrarrósina. Dorrit Moussaieff forseta frú er verndari Eyrar rósarinnar. Umsóknarfrest- ur um Eyrarrós- ina 2013 er til 15. nóvember 2013. Nánari upplýs- ingar eru á vef Lista hátíðar í Reykja- vík, www. listahatid. is. Opnað fyrir umsóknir Efnisskrá tónleika Stórsveitar Reykjavíkur í Kaldalóni í Hörpu annað kvöld er helguð tromm- aranum Buddy Rich. Öll tónlistin er af Big Swing Face, einni af þekktustu plötu stórsveitar hans frá 1967. Platan var tekin upp á tónleikum á Chez- klúbbnum í Hollywood, en stórsveit Buddy Rich höfðaði á þessu tíma sérstaklega til ungs fólks með þrumandi leik, kraftmiklum útsetningum og ungum, framúrskarandi hljóðfæraleikurum. Þetta eru fimmtu tónleikar Stórsveitar Reykja- víkur þar sem teknar eru fyrir ákveðnar vel þekktar plötur stórsveitasögunnar. Stjórnandi er Sigurður Flosason. Sérstakur gestur í einu lagi verður söng konan Sigríður Thorlacius. Hún mun flytja lag sem Cathy Rich, dóttir Buddy Rich, flutti á plötunni, þá tólf ára gömul. Aðgangseyrir er 3.000 krónur en 2.000 fyrir námsmenn og eldri borgara. Miðasala er á harpa. is og í miðasölu Hörpu. Tónleikar helgaðir trommara Stórsveit Reykjavíkur heldur tónleika í Kaldalóni í Hörpu 2. október klukkan 21. STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR Sveitin ætlar að leika kunn lög af miklum krafti. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ➜ Þetta eru fimmtu tónleikar Stórsveitar Reykjavíkur þar sem teknar eru fyrir ákveðnar vel þekktar plötur stórsveitasögunnar. 5 HJARTAÞRÆÐINGAR – SAMA BARNSHJARTAÐ Á hverju ári þurfa 2.400 manns á hjartaþræðingu á hjartadeild Landspítala Íslands að halda. 2.400 hjörtu sem slá fyrir okkur öll. Leggðu sjúkum lið og vertu hjartað sem þú vilt að slái þér. Greiddu valgreiðslu í heimabanka, leggðu inn á reikningsnúmer okkar eða hringdu í síma: 907-1801 fyrir 1.000 kr. framlag 907-1803 fyrir 3.000 kr. framlag 907-1805 fyrir 5.000 kr. framlag Frjáls framlög: 0513-26-1600 Kt. 511083-0369Anney Birta Jóhannesdóttir hefur farið í 5 hjartaþræðingar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.