Fréttablaðið - 01.11.2013, Blaðsíða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Föstudagur
20
M atreiðslumaðurinn Úlfar Finn-björnsson sér um sjónvarpsþátt-inn Eldað með Holta á ÍNN. Þar eldar hann ljúffenga rétti úr Holta-kjúklingi fyrir áhorfendur. Hér færir Úlfar okkur, ásamt Sævari Karli Kristinssyni yfirmat-reiðslumanni á Borg Restaurant
að marineruðum kjúklingalærum með wok-grænmeti og ljúffengri sósu. Hægt er
að fylgjast með Úlfari elda þessa girnilegu
máltíð í kvöld klukkan 21.30 á sjónvarps-
stöðinni ÍNN. Þættirnir verða svo endursýndir yfir hel i
ELDAÐ MEÐ HOLTA HOLTA KYNNIR Úlfar Finnbjörnsson er einn færasti kokkur landsins. Hann
sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Þar fáum við að fylgjast með
honum elda ljúffenga kjúklingarétti úr Holta-kjúklingi.
BRAGÐGÓÐIR KJÚKLINGALEGGIRWok-grænmeti og ljúf-feng sósa koma við sögu í rétti dagsin f á
LITLU JÓLIN Í TÚNGÖTU 7Geðhjálp tekur forskot á litlu jólin með bílskúrssölu
að Túngötu 7 á morgun, laugardag, frá klukkan 14 til
17. Hægt er að gera góð kaup á ýmsum varningi.
Gjöfin sem gefur til bakaLogy flytur inn nuddtæki frá þýska fyrirtækinu Casada.
Tækjunum kynntist eigandinn í Danmörku þar sem hún var við nám í Iðjuþjálfun og voru þau notuð í endurhæfinu þar. Fagfólk mælir með vörunum.Nýung hjá Logy er Miniwell nuddpúðinn• Hann er einstaklega öflugur og léttur.• 12 volt, hægt að nota í bíl.• Notaður á allann líkamann.• Nær einstaklega vel uppí hnakka.• Hefur reynst gigtarsjúklingum vel.Púðinn er einungis seldur á kynningum og heimssíðunni logy.is Lögð er áhersla á persónulega sölu og kúnninn fái leiðbeiningar og fræðslu. Við komum með kynningar í fyrirtæki og á vinnustaði.
Þetta er sannarlega gjöf sem gefur tilbakaMargrét Sæberg nuddari.
Logy.is
sími 588-2580
eða 661-2580.
Frí
heimsending á höfuðborgar-
svæðinu
Kulda skór
kr. 6.900
St. 22-26
Lífið
1. NÓVEMBER 2013
FÖSTUDAGUR
Árný Þórarinsdóttir
og Helga Guðrún
Vilmundardóttir
STÁSSHILLA FÆR
ATHYGLI VÍÐA 2
Ásta S. Einarsdóttir
framkvæmdastjóri
Dr. Braga í London
ÍSLENSK VÍSINDI
Í HÚÐVÖRUM 4
Ástrós Erla Benedikts-
dóttir og Nemita Mar-
grét förðunarfræðingar
HREKKJAVÖKU-
FÖRÐUN 14
2 SÉRBLÖÐ
Fólk | Lífið
Sími: 512 5000
1. nóvember 2013
257. tölublað 13. árgangur
Ekkert gert í málum Hrafns
Kvartað vegna aðgerðaleysis borgar-
innar varðandi byggingar Hrafns
Gunnlaugssonar í Laugarnesi. 2
Óviðunandi uppljóstrarafrumvarp
Frumvarp um vernd uppljóstrara er
ekki viðunandi, segir Persónuvernd. 6
Segja fyrirvara of skamman
Olíufélög segja aðlögunartíma vegna
laga um sölu á eldsneyti af endur-
nýjanlegum uppruna of stuttan. 8
MENNING Sigríður Heimisdóttir
sýnir glerlíffæri sín í Designgalleriet í
Stokkhólmi. 54
SPORT Kvennalandsliðið í
fótbolta endaði eftirminnilegt ár á
mikilvægum sigri í Serbíu í gær. 48
Nú er opio allan
sólarhringinn
í Engihjalla
MIÐNÆTUR
SPRENGJA
Kynntu þér
frábæra
afslætti
á opnum inni
í blaðinu.
...til miðnættis
SKOÐUN Pawel Bartoszek segir það
hafa verið of ódýrt á leik Íslands og
Króatíu. 21
LÍFIÐ
FRÉTTIR
Konur eru með hundrað
hlutverk í dag
Eva Dögg Sigurgeirsdóttir ræðir um
barneignir á miðjum aldri, fjölskyldu-
lífið og framann í viðtali við Lífið.
Bolungarvík 1° NA 17
Akureyri 3° N 7
Egilsstaðir 3° N 3
Kirkjubæjarkl. 2° NA 3
Reykjavík 4° NA 8
Snjór N-til NA 10-20 m/s NV- og V-til
í dag. Snjókoma eða slydda á N-verðu
landinu en þurrt að kalla S-til. Hiti 0-5
stig. 4
KÖNNUN Pólitíska landslagið í borg-
inni hefur lítið breyst samkvæmt
nýrri könnun Fréttablaðsins og
Stöðvar 2 þótt Jón Gnarr borgar-
stjóri hafi tilkynnt að hann fari
ekki fram að nýju í kosningunum
næsta vor, og að Besti flokkurinn
verði lagður niður.
Pólitískur arftaki Besta flokks-
ins, Björt framtíð, fær samkvæmt
könnuninni svipað fylgi og Besti
flokkurinn fékk í síðustu kosn-
ingum, 36,1 prósent. Sjálfstæðis-
flokkurinn tapar einhverju fylgi
frá síðustu kosningum og mælist
með 27,6 prósent. Samfylkingin og
Vinstri grænir standa því sem næst
í stað með 19,1 prósents og 7,5 pró-
senta fylgi. Um 4,5 prósent styðja
Framsóknarflokkinn og 4,9 prósent
nefndu aðra flokka.
Yrðu þetta niðurstöður kosn-
inga yrði skipting borgarfulltrúa
óbreytt. Björt framtíð fengi sex
borgarfulltrúa, Sjálfstæðisflokk-
urinn fimm, Samfylkingin þrjá og
Vinstri græn einn.
Talsverð óvissa er þó um stöð-
una í borginni því nær helmingur
þeirra sem tóku þátt í könnuninni
hafði ekki gert upp við sig hvað
hann gæti hugsað sér að kjósa.
Þetta háa hlutfall óvissra gæti
tengst því hversu stutt er síðan Jón
Gnarr tilkynnti um ákvörðun sína.
Könnun Fréttablaðsins og
Stöðvar 2 var gerð á landsvísu, en
einungis Reykvíkingar voru spurð-
ir um afstöðu sína til flokka í kom-
andi sveitarstjórnarkosningum.
Sökum þessa eru skekkjumörkin
hærri en í hefðbundinni könnun
Fréttablaðsins. Þeirra er getið á
meðfylgjandi mynd.
Hringt var í 1.809 manns þar til
náðist í 1.158, þar af 439 Reykvík-
inga, samkvæmt lagskiptu úrtaki
dagana 30. og 31. október. Svarhlut-
fallið var því 64 prósent. Þátttak-
endur voru valdir með slembiúrtaki
úr þjóðskrá. Svarendur skiptust
jafnt eftir kyni, og hlutfallslega
eftir búsetu og aldri.
Spurt var: Hvaða lista myndir þú
kjósa ef gengið yrði sveitarstjórn-
arkosninga í dag? Ef ekki fékkst
svar var spurt: Hvaða flokk er lík-
legast að þú myndir kjósa? Ef ekki
fékkst svar var að lokum spurt: Er
líklegra að þú myndir kjósa Sjálf-
stæðisflokkinn, eða einhvern annan
flokk? Alls tóku 51,3 prósent þeirra
sem náðist í afstöðu til spurningar-
innar. - bj
Halda fylgi Besta flokksins
Björt framtíð mælist með svipað fylgi og Besti flokkurinn fékk í síðustu kosningum samkvæmt nýrri könnun
Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Nær helmingur kjósenda hefur ekki gert upp við sig hvað hann ætlar að kjósa.
➜ Litlar breytingar eftir yfirlýsingu Jóns Gnarr
Skekkjumörk
40%
20%
0%
+/-5,6 +/-2,6 +/-5,2 +/-4,7 +/-3,0
ko
sn
in
ga
r
20
10
Kö
nn
un
3
0.
o
g
31
.1
0.
20
13
B
or
ga
rst
jór
narkosningar 2010
Skipting
borgarfulltrúa
Kö
nn
un
Fr
étta
blaðsins og Stöðvar 2
34
,7
%
3
6,
1%
2,
7%
4
,5
%
33
,6
%
27
,6
%
19
,1
%
1
9,
8%
7,
2%
7,
5%
Heimild: Skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 dagana 30. og 31. október 2013
TÓNLIST Páll Óskar Hjálmtýs-
son mun í næsta mánuði gefa sex
af plötum sínum út á nýjan leik.
Margar þeirra
hafa verið ófáan-
legar á geisladisk-
um síðustu ár.
„Ég veit ekk-
ert hvað ég er að
fara út í en þetta
er tilraun sem er
vel þess virði að
gera,“ segir Páll
Óskar. Plöturnar
verða í tveimur boxum, sem kall-
ast bláa og rauða boxið.
Plöturnar eru Palli, Stereo, Ef
ég sofna ekki í nótt, Seif, Deep
Inside og Allt fyrir ástina. Alls
verða á þeim þrettán aukalög,
mörg hver óútgefin. - fb / sjá síðu 54
Tilraunaverkefni Páls Óskars:
Sex eldri plötur
gefnar út á ný
FÓLK Gjaldskrárhækkanir Reykja-
víkurborgar munu koma illa niður
á einstæðum foreldrum. Hlutfalls-
lega hækka leikskólagjöld ein-
stæðra meira en sambúðarfólks.
Embla Ragnheiðardóttir, ein-
stæð móðir, segist ekki mega við
meiri hækkunum. Hún reyni að
leyfa börnunum að stunda tóm-
stundir eins og hún getur. Fjöl-
skylda og vinir hafi hlaupið undir
bagga með henni.
„Þegar einstætt foreldri sendir
barn í grunnskóla þá hækka
útgjöldin en hjá hjónafólki lækka
gjöldin,“ segir Laufey Ólafsdótt-
ir, einstæð móðir. Hún segir tóm-
stundaiðkun sérlega dýra fyrir
einstæða foreldra.
Árni Guðmundsson, einstæður
faðir, segist borga meðlag og taka
stærstan þátt í öllum kostnaði, sem
fari sívaxandi, þannig að hver ein-
asta króna skipti máli. - ebg / sjá síðu 10
Staða einstæðra foreldra í Reykjavík fer versnandi með hækkun gjalda:
Hver einasta króna skiptir máli
GLUGGAÚTSTILLING Íslenska hljómsveitin Casio Fatso, spilaði fyrir gangandi vegfarendur í glugga Cintamani í Bankastræti í
gær. Tónleikarnir voru í tengslum við Airwaves-hátíðina sem sett var á miðvikudaginn og stendur yfi r helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
PÁLL ÓSKAR