Fréttablaðið - 01.11.2013, Blaðsíða 78
1. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 54
„Ég held fatamarkað á laugardaginn
á Austur kl. 12 til 16. til styrktar
Rauða krossinum. Eftir það fer ég í
sextugsafmæli hjá uppáhaldsfrænku
minni. Á sunnudaginn fer ég líklega í
göngutúr með hundinum mínum og
verð í afslöppun.“
HELGIN
ÞÓRUNN ÍVARSDÓTTIR BLOGGARI
„Ég er forvitinn að sjá hvernig
kúnninn tekur í þetta,“ segir Páll
Óskar Hjálmtýsson.
Ellefta nóvember ætlar að hann
að endurútgefa sex plötur sínar
sem margar hafa ekki verið fáan-
legar lengi á geisladiskum. Þær
verða í tveimur þriggja platna
boxum, sem kallast Bláa- og Rauða
boxið, og kostar hvort þeirra 2.490
krónur.
Plöturnar sem um ræðir eru
Palli, Stereo með hljómsveitinni
Casino, Ef ég sofna ekki í nótt með
hörpuleikaranum Moniku, Seif,
Deep Inside og Allt fyrir ástina.
Alls verða á þeim þrettán aukalög,
mörg hver óútgefin.
„Aðdáendur mínir eru búnir að
hlaða inn hverju einasta lagi sem
ég hef sungið í lífinu, bæði inn á
YouTube og á skráaskiptasíður.
Allar þessar plötur eru aðgengi-
legar á netinu. Tilraunin mín felst
í því hvað kúnninn gerir þegar
hann sér þessar gömlu plötur í
föstu formi í svona boxum,“ segir
Páll Óskar, sem náði góðum „díl“
hjá geisladiskaverksmiðju í Litháen
og í gegnum Myndbandavinnsluna
og tókst því að halda verðinu í lág-
marki.
Sjálfur segist Palli vera sjálf-
stæður plötuútgefandi, sem þarf að
ná inn kostnaðinum við hvert verk-
efni. „Ég veit ekkert hvað ég er að
fara út í en þetta er tilraun sem er
vel þess virði að gera.“ - fb
Páll Óskar gerir tilraun með endurútgáfu
Páll Óskar endurútgefur sex plötur sínar sem margar hafa verið ófáanlegar í langan tíma.
Björn Steinbekk, skipuleggjandi
Sónar Reykjavík, stefnir á að gera
hátíðina að einni af mest spenn-
andi litlu tónlistarhátíðunum í
Evrópu á næstu fimm árum.
„Þessi stefna mín er hluti af
ástæðunni fyrir því að eigendur
Sónar leggja sig jafn mikið fram
og raun ber vitni við að fá hingað
listamenn sem eru heitir hverju
sinni,“ segir Björn.
Á næstu Sónar-hátíð, sem verður
haldin er í annað sinn í Hörpu í
febrúar, hafa verið bókaðir Major
Lazer, Paul Kalkbrenner, Bonobo,
Starwalker, Hjaltalín og fleiri.
Fyrr á árinu voru Squarepusher
og James Blake á meðal gesta.
Til að þessi áætlun Björns gangi
upp er ljóst að hækka gæti þurft
miðaverðið á næstu árum. Núna
er það 17.900 krónur en gæti farið
nálægt því verði sem er algengt
á þriggja daga tónlistarhátíðum
erlendis sem er rúmlega 20.000 kr.
Þetta veltur mikið á vexti Sónar
Stockholm sem fer fram í fyrsta
skipti á sama tíma og Sónar Reykja-
vík. Ef sú hátíð vex í samræmi við
væntingar gætu samlegðaráhrifin
verið slík að miðaverð haldist svip-
að og í dag. „Það er ljóst að markað-
ur fyrir þetta miðaverð á Íslandi er
lítill og þess vegna er mikilvægt að
við vinnum vel með aðilum í ferða-
iðnaði og þeim sem markaðssetja
Ísland erlendis til að ná þeim fjölda
erlendra fjölda gesta sem til þarf,“
segir hann.
Einn liður í þessu markmiði er
ráðstefnan Sónar Pro sem hefst
í Hörpu 2015. Þar verður fjöldi
erlendra áhrifamanna úr tónlist-
arbransanum á meðal gesta. - fb
Sónar verði ein sú besta í Evrópu
Björn Steinbekk hefur háleit markmið varðandi hátíðina Sónar Reykjavík.
BJÖRN STEINBEKK Hátíðin Sónar
Reykjavík verður haldin í annað sinn í
febrúar á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
PÁLL ÓSKAR Palli í góðu stuði í Fjalls-
árlóni. Hann ætlar að endurútgefa sex
plötur sínar. MYND/LALLI SIG
„Ég hef tekið þátt í samsýning-
um bæði í Stokkhólmi og ann-
ars staðar í Svíþjóð, en þetta er
fyrsta einkasýningin sem ég held
hér. Um er að ræða sýningu í einu
fremsta hönnunargalleríi í Sví-
þjóð, Designgalleriet heitir það.
Stefan Nilsson á og rekur galleríið,
en hann er einn helsti trendgúrú
landsins,“ segir iðnhönnuðurinn
Sigríður Heimisdóttir. Hún opn-
aði einkasýningu í Designgalleriet
í Stokkhólmi í gær þar sem gler-
líffæri hennar verða sýnd.
„Við Stefan kynntumst fyrir
nokkrum árum og í fyrra ákváð-
um við að setja upp sýningu í
kringum glerið sem ég hef verið
að vinna fyrir CMOG, stærsta
glerlistasafn heims.“ Sigga hefur
framleitt líffærin frá árinu 2007
og í línunni eru meðal annars
hjörtu, lungu, blóðkorn, risa vaxið
auga og tennur.
„Eitt verkið samanstendur af
tveimur ljósbláum lungum og
glæru hjarta, því fylgir hljóðverk
þar sem hjarta heyrist slá. Þetta
verk er innblásið af súrefninu og
loftinu sem við öndum að okkur.
Næsta mál á dagskrá er að gera
manneskju úr glæru gleri, með líf-
færi í lit,“ útskýrir hún.
Sýningunni er ætlað að vekja
athygli á nauðsyn líffæragjafa
og var fjölmennt á opnun sýning-
arinnar í gær. „Helstu glerhönn-
uðir Svía mættu sem og menn-
ingarmálaráðherra Svíþjóðar og
blaðamenn helstu hönnunartíma-
ritanna.“
Sigga býr á Íslandi en starfar
aðallega erlendis. Hún kveðst ekki
ætla að halda frekari sýningar í
nánustu framtíð enda sé dýrt að
flytja líffærin á milli landa. „Það
er fáránlega dýrt hobbí að blása
gler og flytja það á milli heims-
álfa. Það dugir mér að blása til
glerveislu einu sinni á ári,“ segir
hún að lokum. - sm
Sýnir líff æri í Svíþjóð
Sigríður Heimisdóttir iðnhönnuður opnaði sína fyrstu einkasýningu í Svíþjóð í
gær. Hún sýnir í Designgalleriet, einu fremsta hönnunargalleríi í Stokkhólmi.
SÝNIR Í SVÍÞJÓÐ Sigríður Heimisdóttir sýnir glerlíffæri sín í einu helsta hönnunargalleríinu í Svíþjóð. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
➜ Næsta sólóplata Palla
kemur út fyrir jólin 2014.
Fyrsta lagið er væntanlegt
snemma á næsta ári.
LÍFFÆRI Glerauga frá Siggu Heimis.
➜ Um 3.000 miðar seldust
á Sónar Reykjavík í febrúar.
Útlendingar voru þriðjungur
gestanna.
Fiskikóngurinn
Stærð 30/40
Sogavegi 3
fiskikongurinn.is
s. 587 7755
Roðlausir og beinlausir
L E I Ð S Ö G N Í M Á L I O G M Y N D U M