Fréttablaðið - 01.11.2013, Blaðsíða 60
1. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 36
Skaft ahlíð 24 | 105 Reykjavík | 512 5000 | Auglýsingar 512-5401 | visir.is
FRÉTTABLAÐIÐ ER HELGARBLAÐIÐ
➜ Rúna hefur tekið þátt í fjölda sýninga allt frá árinu 1949 fram til þessa dags.
Þau hjón, hún og Gestur Þorgrímsson, sýndu oft tvö saman,
heima og erlendis allt þar til Gestur lést árið 2003.
Árið 2005 varð Rúna fyrsti bæjarlistamaður Hafnarfjarðar.
HELGARBLAÐ
FRÉTTABLAÐSINS
Ómissandi hluti af
góðri helgi
Vasar, veggplattar, mósaíkborð, myndverk og
borðbúnaður er meðal þess sem getur að líta á
sýningu listakonunnar Rúnu, Sigrúnar Guðjóns-
dóttur, Dvalið hjá djúpu vatni, sem verður opnuð
á morgun í Hafnarborg í Hafnarfirði. Þar er
fylgt 66 ára listferli hennar til dagsins í dag, því
hún er hvergi nærri hætt þótt æviárin nálgist 90.
Mjúkar línur eru áberandi í mynstrum hennar,
kvenfígúrur, fiskar, fuglar og óræð form.
Rúna lauk prófi árið 1945 frá Handíða-og
myndlistarskólanum og ári síðar hélt hún ásamt
manni sínum, Gesti Þorgrímssyni, til Kaup-
mannahafnar þar sem bæði hófu nám við Kon-
unglegu listaakademíuna, hún í málaralist og
hann í myndmótun. Þau voru alla tíð samhent og
hófu ferilinn á að stofna fyrirtækið Laugarnes-
leir. Rúna lýsir því ævintýri þar sem við röltum
um sýninguna hennar og byrjum hjá litlum
leirskúlptúrum og vösum. „Þegar við Gestur
komum heim frá Kaupmannahöfn brutum við
heilann um á hverju við ættum að lifa. Leirlist
var mikið á uppleið þá, við fylltumst fítonskrafti
og fórum að framleiða muni úr íslenskum rauð-
leir sem við grófum upp. Gestur byggði ofn þar
sem við brenndum leirmuni og seldum í blóma-
búð og úra- og skartgripaverslun. Við héldum
sýningu 1950 og seldum þar allt sem við höfðum
gert. Svo breyttust tímarnir og farið var að
flytja mikið inn af dóti. Þá versnuðu möguleikar
okkar og við hvíldum leirinn en tókum aftur upp
þráðinn sextán árum seinna.“
Eitt af því sem liggur eftir Rúnu eru þjóðhátíð-
arplattar sem seldir voru fyrir 1100 ára afmæli
Íslandsbyggðar 1974. Þeir voru unnir í danska
postulínsfyrirtækinu Bing og Gröndal. Því
komst fólk þar á snoðir um hæfileika hennar og
hún teiknaði fyrir Bing og Gröndal í nokkur ár. Í
Hafnarborg eru bakkar, plattar og silkiprentað-
ar myndir úr þeirri framleiðslu.
Síðustu verk Rúnu gefa öðrum ekkert eftir.
Þau eru að mestu unnin á japanskan pappír og
enn er hún að gera tilraunir bæði með myndmál
og aðferðir. Þegar undrast er hversu ungleg hún
sé í útliti og hugsun stendur ekki á skýringunni:
„Það er af því að ég hef alla ævi fengið að gera
það sem ég hef gaman af.“
gun@frettabladid.is
Fæ að gera það sem ég hef gaman af
Sigrún Guðjónsdóttir, Rúna, opnar sýningu á morgun, laugardag í Hafnarborg, sem nefnist Dvalið hjá djúpu vatni. Þar eru verk frá
fj ölbreyttum listferli hennar sem nær allt aft ur til ársins 1947, og enn er hún að, áttatíu og sjö ára að aldri.
LISTAKONAN Hér er Rúna við refilsaumsveggteppi sem Anna Höskuldsdóttir saumaði að
beiðni Íslensks heimilisiðnaðar, eftir teikningu Rúnu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ER ALLTAF MEÐ LÍFIÐ
SJÁLFT Í HÖNDUNUM
María Ellingsen ætlaði sér að verða læknir eða
prestur en fylgdi hjartanu og gerðist leikari, leik-
stjóri og höfundur. Hún var að ljúka við sviðs-
verk um ástina og leikur í nýrri sjónvarpsseríu,
auk þess að berjast með Hraunavinum og sinna
krefjandi uppeldi.
Sækir innblástur
til dætranna
Rætt við Tómas R. Einarsson
um tónlistina, Kúbu og listrænu
dótturina Ástríði sem lést af
slysförum fyrir þremur árum.
Fallegt að leita
í fortíðarsjálfið
Fyrsta leikverk Lilju Sigurðar-
dóttur fjallar um infantílista; fólk
sem þráir að haga sér og láta með-
höndla sig eins og barn.
Gerir Rose
einhverjar rósir?
Allt stefnir í gríðalega spennandi
tímabil í NBA-deildinni í körfuknatt-
leik. Fréttablaðið tekur stöðuna
vestanhafs.