Fréttablaðið - 01.11.2013, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 01.11.2013, Blaðsíða 60
1. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 36 Skaft ahlíð 24 | 105 Reykjavík | 512 5000 | Auglýsingar 512-5401 | visir.is FRÉTTABLAÐIÐ ER HELGARBLAÐIÐ ➜ Rúna hefur tekið þátt í fjölda sýninga allt frá árinu 1949 fram til þessa dags. Þau hjón, hún og Gestur Þorgrímsson, sýndu oft tvö saman, heima og erlendis allt þar til Gestur lést árið 2003. Árið 2005 varð Rúna fyrsti bæjarlistamaður Hafnarfjarðar. HELGARBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS Ómissandi hluti af góðri helgi Vasar, veggplattar, mósaíkborð, myndverk og borðbúnaður er meðal þess sem getur að líta á sýningu listakonunnar Rúnu, Sigrúnar Guðjóns- dóttur, Dvalið hjá djúpu vatni, sem verður opnuð á morgun í Hafnarborg í Hafnarfirði. Þar er fylgt 66 ára listferli hennar til dagsins í dag, því hún er hvergi nærri hætt þótt æviárin nálgist 90. Mjúkar línur eru áberandi í mynstrum hennar, kvenfígúrur, fiskar, fuglar og óræð form. Rúna lauk prófi árið 1945 frá Handíða-og myndlistarskólanum og ári síðar hélt hún ásamt manni sínum, Gesti Þorgrímssyni, til Kaup- mannahafnar þar sem bæði hófu nám við Kon- unglegu listaakademíuna, hún í málaralist og hann í myndmótun. Þau voru alla tíð samhent og hófu ferilinn á að stofna fyrirtækið Laugarnes- leir. Rúna lýsir því ævintýri þar sem við röltum um sýninguna hennar og byrjum hjá litlum leirskúlptúrum og vösum. „Þegar við Gestur komum heim frá Kaupmannahöfn brutum við heilann um á hverju við ættum að lifa. Leirlist var mikið á uppleið þá, við fylltumst fítonskrafti og fórum að framleiða muni úr íslenskum rauð- leir sem við grófum upp. Gestur byggði ofn þar sem við brenndum leirmuni og seldum í blóma- búð og úra- og skartgripaverslun. Við héldum sýningu 1950 og seldum þar allt sem við höfðum gert. Svo breyttust tímarnir og farið var að flytja mikið inn af dóti. Þá versnuðu möguleikar okkar og við hvíldum leirinn en tókum aftur upp þráðinn sextán árum seinna.“ Eitt af því sem liggur eftir Rúnu eru þjóðhátíð- arplattar sem seldir voru fyrir 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar 1974. Þeir voru unnir í danska postulínsfyrirtækinu Bing og Gröndal. Því komst fólk þar á snoðir um hæfileika hennar og hún teiknaði fyrir Bing og Gröndal í nokkur ár. Í Hafnarborg eru bakkar, plattar og silkiprentað- ar myndir úr þeirri framleiðslu. Síðustu verk Rúnu gefa öðrum ekkert eftir. Þau eru að mestu unnin á japanskan pappír og enn er hún að gera tilraunir bæði með myndmál og aðferðir. Þegar undrast er hversu ungleg hún sé í útliti og hugsun stendur ekki á skýringunni: „Það er af því að ég hef alla ævi fengið að gera það sem ég hef gaman af.“ gun@frettabladid.is Fæ að gera það sem ég hef gaman af Sigrún Guðjónsdóttir, Rúna, opnar sýningu á morgun, laugardag í Hafnarborg, sem nefnist Dvalið hjá djúpu vatni. Þar eru verk frá fj ölbreyttum listferli hennar sem nær allt aft ur til ársins 1947, og enn er hún að, áttatíu og sjö ára að aldri. LISTAKONAN Hér er Rúna við refilsaumsveggteppi sem Anna Höskuldsdóttir saumaði að beiðni Íslensks heimilisiðnaðar, eftir teikningu Rúnu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR ER ALLTAF MEÐ LÍFIÐ SJÁLFT Í HÖNDUNUM María Ellingsen ætlaði sér að verða læknir eða prestur en fylgdi hjartanu og gerðist leikari, leik- stjóri og höfundur. Hún var að ljúka við sviðs- verk um ástina og leikur í nýrri sjónvarpsseríu, auk þess að berjast með Hraunavinum og sinna krefjandi uppeldi. Sækir innblástur til dætranna Rætt við Tómas R. Einarsson um tónlistina, Kúbu og listrænu dótturina Ástríði sem lést af slysförum fyrir þremur árum. Fallegt að leita í fortíðarsjálfið Fyrsta leikverk Lilju Sigurðar- dóttur fjallar um infantílista; fólk sem þráir að haga sér og láta með- höndla sig eins og barn. Gerir Rose einhverjar rósir? Allt stefnir í gríðalega spennandi tímabil í NBA-deildinni í körfuknatt- leik. Fréttablaðið tekur stöðuna vestanhafs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.