Fréttablaðið - 01.11.2013, Blaðsíða 74
1. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 50
SKÍÐI „Það er búið að snjóa tölu-
vert og þetta er það besta sem
maður kemst í á Norðurlönd-
unum eins og staðan er núna,“
segir skíðagöngukappinn Sævar
Birgisson. Sævar hefur verið við
æfingar í Hlíðarfjalli á Akureyri
í vikunni ásamt Brynjari Leó
Kristinssyni.
Báðir stefna á þátttöku í Vetrar-
ólympíuleikunum í Sochi í Rúss-
landi í febrúar. Þá verða tuttugu
ár síðan Ísland átti síðast fulltrúa
í skíðagöngukeppni leikanna.
Síðan Daníel Jakobsson og Rögn-
valdur Ingþórsson kepptu í Lille-
hammer 1994 hefur Ísland aðeins
átt fulltrúa í alpagreinum.
Sævar hefur þegar náð lág-
markinu fyrir leikana í sprett-
göngu (skaut) og 15 kílómetra
göngu með hefðbundinni aðferð.
Brynjar Leó vinnur að því hörð-
um höndum.
Sævar þekkir vel til í Lille-
hammer en þar gekk hann í skíða-
menntaskóla á árunum 2005-2008.
Sauðkrækingurinn uppaldi, sem
varð 25 ára á árinu, ætlaði sér
stóra hluti.
Rúmliggjandi um tíma
„Fljótlega eftir að ég kláraði skól-
ann varð ég hálfónýtur í nokkur
tímabil,“ segir Sævar sem greind-
ist með hryggikt. Hann segist
hafa íhugað að hætta keppni.
„Ég var eiginlega búinn að gef-
ast upp á þessu. Á tímabili var
ég rúmliggjandi,“ segir Sævar
sem fékk lyf við gigtinni. Ekki
tók betra við þegar hann fékk gat
á magann í miðri keppni. Hann
segir gigtina að einhverju leyti
ættgenga en ekki hafi hjálpað til
að hann gekk fram af sjálfum sér
árin þrjú í Noregi.
„Ég fékk ýmis einkenni og var
greindur með hitt og þetta,“ segir
Sævar og lýsir stöðu sinni í dag
þannig að hann sé 95% góður.
Hann hefur verið á lyfjum við
gigtinni í þrjú ár en kaflaskil
urðu þegar hann landaði Íslands-
meistaratitlinum árið 2011 eftir
þrjú erfið ár á undan. Þá kvikn-
aði áhugi á að taka skíðagönguna
föstum tökum á nýjan leik. Þrjú
ár voru í Vetrarólympíuleikana.
Flutti til Noregs
„Það var kannski meira draumur
en markmið í fyrstu. En þegar
æfingar gengu vel og líkaminn
svaraði vel tók ég hlé frá námi
mínu og flutti til Noregs,“ segir
Sævar sem var byrjaður í námi
við Háskólann á Bifröst.
„Ég ákvað að gera þetta
almennilega fyrst ég væri að
þessu,“ segir Sævar og nú er hann
á lokametrunum. Nú eru 98 dagar
þar til eldurinn verður tendraður í
Sochi og æfingar hafa verið stífar.
Sævar er tiltölulega nýkominn
úr tveggja vikna æfingabúðum í
Austurríki. Þar höfðu þeir Brynjar
Leó bækistöðvar í um 1.800 metra
hæð og æfðu í 2.600 metra hæð.
„Í Sochi verður keppt í 1.500
metrum svo að við þurfum að
aðlagast því,“ segir Sævar sem
heldur í næstu viku til Svíþjóðar
og svo Noregs.
Þeir Brynjar Leó hafa æft með
sænsku félagi undanfarið ár enda
í sérflokki íslenskra skíðagöngu-
manna sem stendur. Þeir eru hins
vegar í þeirri stöðu að þurfa að
berjast um eitt laust sæti sem
Íslandi stendur til boða í skíða-
göngukeppninni í Sochi.
Enginn leiðindarígur
„Það er ekkert atriði hjá okkur.
Við æfum mikið saman og njót-
um góðs af því. Það þýðir ekkert
að vera með leiðindaríg,“ segir
Sævar. Hann bendir á að þeir
hafi ekki haft neina æfingafélaga
á Íslandi í mörg ár og því treyst
hvor á annan.
Sævar keppir á móti í Finn-
landi um miðjan nóvember. Góður
árangur gæti lyft honum upp á
heimslistanum.
Kæmist Sævar ofar en í 300.
sæti á heimslistanum yrði það til
þess að Ólympíulágmark myndi
duga þeim báðum. Ekki þyrfti að
velja á milli þeirra tveggja varð-
andi eitt laust sæti.
„Við vonumst til þess að það verði
svoleiðis.“ kolbeinntumi@frettabladid.is
Hryggiktin endaði
ekki ÓL-drauminn
Skíðagöngukappinn Sævar Birgisson er á lokametrunum að takmarki sínu; að
komast á Vetrarólymíuleikana í Sochi í Rússland sem haldnir verða í febrúar.
Ekki er svo langt síðan leikarnir voru bara draumur en nú er lágmarkinu náð.
TUTTUGU ÁRA BIÐ Á ENDA Ísland mun eiga skíðagöngumann á Vetrarólympíuleikunum í Sochi. Hér er Sævar Birgisson með
gönguskíðin sín þegar hann var við æfingar í Austurríki á dögunum. MYND/ÚR EINKASAFNI
Sævar á ekki langt að sækja skíðahæfileika sína. Afi hans heitinn,
Gunnar Guðmundsson, var mikill skíðagöngukappi og sömuleiðis faðir
hans, Birgir Gunnarsson.
„Afi var stuðningsmaður númer eitt,“ segir Sævar um afa sinn, sem varð
bráðkvaddur fyrir þremur árum. Gunnar keppti fyrir Siglufjörð á sínum
tíma en faðirinn með Tindastóli. Það gerði Sævar framan af en keppir í
dag fyrir Fjallabyggð.
„Ef ekki hefði verið fyrir pabba þá væri maður löngu hættur í þessu,“
segir Sævar um aðkomu og stuðning föður síns. Sævar hefur ekki tekið
ákvörðun um framhaldið að loknum leikunum í Sochi.
„Ef maður slær í gegn í vetur heldur maður auðvitað áfram. Þá verður
auðveldara að ná í styrki,“ segir Sævar sem nýtur styrks frá Ólympíusam-
hjálpinni. Sá styrkur skiptir sköpum að hans sögn.
Afi var stuðningsmaður númer eitt
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
i i i
www.barnaheill.is