Fréttablaðið - 01.11.2013, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 1. nóvember 2013 | SKOÐUN | 21
➜ Miðað við þá íbúafjölgun
sem fyrirsjáanleg er á næstu
árum er ljóst að gatnakerfi ð
tekur ekki við umferðar-
aukningu í samræmi við þá
fjölgun ef allir eiga að vera
á bílum.
Ef þú ert með þrjá sleikjóa og fjóra
krakka þá verður einhver ósáttur.
Ef það eru færri pláss í skóla en
umsækjendur þá verður einhver
ósáttur. Ef það eru 15 þúsund
manns sem vilja leggja í miðbæn-
um en aðeins 10 þúsund bílastæði
þá verður einhver ósáttur. Ef 40
þúsund manns langar á landsleik
en aðeins 5.000 miðar eru til sölu
þá verður einhver ósáttur.
Mér detta í hug fjórar leiðir til
að dreifa takmörkuðum gæðum. 1)
Það er hægt að láta fólk bíða í bið-
röð. 2) Það er hægt að halda sam-
keppni (t.d. inntökupróf). 3 )Það er
hægt að draga úr hatti og 4) það er
hægt að hækka verðið. Ég veit ekki
hvort fyrstu átta lífsárin í Alþýðu-
lýðveldinu ráði hér skoðun minni
en mér finnst betra að hækka verð-
ið á kjötinu heldur en að láta fólk
standa í fimm tíma biðröð. Sú leið
að gefa misvísandi upplýsingar um
hvenær kjötbúðin verður opnuð í
von um að færri komist finnst mér
síst.
Of ódýrt
Það var of ódýrt á landsleik
Íslands og Króatíu. Það var raun-
ar ranglátt að hafa miðaverðið
svona lágt, sérstaklega gagnvart
því fólki sem virkilega langaði að
fara.
Af hverju? Tökum dæmi:
Ímyndum okkur mann; köllum
hann Pawel. Pawel horfir lítið
á knattspyrnu, hann fylgist þó
með HM og EM en fer venjulega
ekki á landsleiki, þekkir raunar
fáa íslenska leikmenn með nafni
þegar liðinu gengur illa.
Nú þegar vel gengur er Pawel
auðvitað talsvert spenntari og þótt
hann myndi venjulega ekki eyða
5.000 krónum til að fara á lands-
leik gegnir nú öðru máli. Það eru
auðvitað þúsundir Íslendinga eins
og hann. Þeir sem virkilega, virki-
lega væru til í að mæta þurfa fyrir
vikið að keppa um þessa fáu, allt
of ódýru miða við menn eins og
Pawel.
Það myndi margt ávinnast með
því að hafa miða á svona atburði
dýrari. Með því að hækka verðið
um 5.000 kr. væri hægt að ná í
nokkra tugi milljóna sem þyrftu
þá vonandi ekki að koma úr vasa
okkar hinna næst þegar reisa þarf
stúku hjá einhverju fyrstudeild-
arliði eða styrkja annað fótbolta-
starf. En í ljósi alls þess fjár sem
varið er til íþróttamannvirkja er
örlæti þeirra sem kjósa að hækka
ekki miðaverðið þegar þeir geta
það einfaldlega örlæti á kostnað
skattgreiðenda.
En það er fleira. Færri myndu
kaupa „einn miða til öryggis fyrir
Gunna og börnin hans“ ef miðinn
kostaði 15 þúsund. Færri hefðu
keypt miða til að selja þá aftur. Og
bara til samanburðar: Ódýrustu
miðar á leik Manchester United
og Arsenal fimm dögum áður eru
á 32 þúsund krónur. Og samt er
alltaf nóg af fólki til í að fara.
Það er því mjög eðlilegt að
sumir þeirra sem sváfu af sér
miðasöluna séu fúlir. Þeir gátu
ekki tekið ákvörðun um að taka
þátt í samkeppni um miðana. Og
samkeppnin var óþarflega hörð
því miðarnir voru allt of ódýrir.
Brask ekki vont
Brask og hamstur. Það eru hötuð
orð. Oft ranglega. Því um eitt
getur maður verið viss: Þegar
einhver framleiðandi eða við-
burðarhaldari er farinn að kenna
bröskurum um skortinn þá er
nokkuð öruggt að hann sjálfur
hafi klúðrað sölunni og verðlagn-
ingunni. Í raun er nákvæmlega
ekkert að þessari endursölustarf-
semi sem miða braskið er. En eins
og alltaf þegar einhverju er ýtt út
úr dagsljósinu kann starfsemin
að virka aðeins skuggalegri fyrir
vikið.
Grínlaust: Dreifing miða á leik
Íslands og Króatíu hefði verið
hagkvæmari og sanngjarnari
ef miða braskarar hefðu alfarið
fengið að sjá um hana. Margir
vilja taka fyrir braskið en til að
bjarga því sem bjargað verð-
ur ætti í raun að leyfa fólki að
braska með miðana að vild. Því
miðabraskið gerir það sem gott
miðasölukerfi ætti að gera. Það
tryggir að miðarnir rati í hendur
þeirra sem helst vilja yfir þá
komast.
Guð blessi miðabraskarann
Í DAG
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
Það var of ódýrt á leik
Íslands og Króatíu.
Í þ æt t i nu m
Vi k u lok i n á
Rás 1 sl. sunnu-
dag var komið
inn á skipulags-
mál sem eru
að mínu mati
gríðarlega stór
og mikilvægur
málaflokkur í
Reykjavík og
á höfuðborgar-
svæðinu öllu.
Þar gerði ég
g r e i n f y r i r
þeirri skoðun
minni að hugsa
yrði hlutina upp
á nýtt varðandi þéttingu byggðar
en ég var þeirrar skoðunar áður
en samkomulag um að fresta
málum varðandi Reykjavíkur-
flugvöll til 2022 var undirritað í
síðustu viku.
Það er nauðsynlegt vegna
umferðarmála að sem best takist
til við þéttingu byggðar. Miðað við
þá íbúafjölgun sem fyrirsjáanleg
er á næstu árum er ljóst að gatna-
kerfið tekur ekki við umferðar-
aukningu í samræmi við þá fjölg-
un ef allir eiga að vera á bílum.
Þess vegna ganga hugmyndir um
að 80% uppbyggingar verði vestan
línu um Elliðaár ekki upp í mínum
huga. Hugmyndir í drögum að nýju
aðalskipulagi um eflingu hverf-
anna með flesta ef ekki alla þjón-
ustu innan þeirra og aukna mögu-
leika á að íbúar í hverju hverfi
geti sótt sína atvinnu í sínu hverfi
tel ég vera jákvæðar. Ef vel tekst
til getur það dregið nokkuð úr
þörf fyrir enn frekari umferðar-
mannvirki sem lítið pláss er fyrir
í borginni. Það gefur okkur mögu-
leika til að úthluta enn fleiri lóðum
í úthverfum fyrir fólk sem vill búa
í einbýli frekar en fjölbýli. Það er
mikilvægt að geta valið.
Í tengslum við endurskoðun
svæðisskipulags höfuðborgar-
svæðisins eru léttlestir til skoð-
unar og er það mjög áhugaverð
nálgun. Erlendis eru sambæri-
legar borgir eða svæði hvað mann-
fjölda varðar að leysa sín sam-
göngumál með slíkum lestum. Í
borgarsamfélagi þurfa almenn-
ingssamgöngur að vera skilvirk-
ar, tíðar og áreiðanlegar. Þannig
verður til raunverulegt val á móti
bílnum.
Ný hugsun
í skipulags-
málum
SKIPULAGSMÁL
Halldór
Halldórsson
formaður Sam-
bands íslenskra
sveitarfélaga og
prófk jörsframb-
jóðandi
Ný lög um neytendalán hafa tekið gildi. Helstu atriði laganna snúa
að aukinni upplýsingagjöf og einfaldari samanburði á lánum.
Fjármálafyrirtæki
Veita staðlaðar upplýsingar sem er ætlað að auðvelda lántaka að bera saman ólík lánstilboð.
Einnig fá lántakar upplýsingar um þróun verðlags og ráðstöfunartekna síðustu 10 ár og dæmi
um breytingar á greiðslubyrði lána sem Neytendastofa birtir á vef sínum.
Þurfa að setja fram árlega hlutfallstölu kostnaðar til að auðvelda lántaka samanburð á
mismunandi lánstilboðum.
Geta ekki krafist hærra uppgreiðslugjalds en 1% af þeirri fjárhæð sem greidd er upp.
Samtök fjármálafyrirtækja hvetja alla til kynna sér lög um neytendalán. Frekari upplýsingar
eru aðgengilegar á neytendastofa.is, sff.is og hjá fjármálafyrirtækjum.
Viðskiptavinir
Þurfa að standast lánshæfismat sem byggir á viðskiptasögu og vanskilaupplýsingum ef lán er veitt
undir 2 milljónum kr. fyrir einstakling eða 4 milljónum kr. fyrir hjón eða sambúðarfólk.
Þurfa að standast greiðslumat sem byggir meðal annars á ítarlegum upplýsingum um fjárhagsstöðu
fari lánsfjárhæð yfir ofangreind mörk.
Hafa rétt á að greiða upp lán að hluta eða í heild.
Hafa rétt á að falla frá lánssamningi 14 dögum eftir undirskrift hans gegn því að greiða áfallinn kostnað
t.d. vexti og verðbætur.
Ný lög um
neytendalán
G
R
3
0
1
0
2
0
1
3
/
g
r
a
f
i
k
.
i
s