Fréttablaðið - 01.11.2013, Blaðsíða 46
FRÉTTABLAÐIÐ Tíska og hönnun. Gómsæti og dans. Dr. Bragi. Eva Dögg Sigurgeirsdóttir. Hrekkjavakan. Hrekkjavökukökur. Förðun. Helgarmaturinn og Spjörunum úr
14 • LÍFIÐ 1. NÓVEMBER 2013
Þ
að var verið að
opna hjá okkur
NN makeup studio
sem er opið alla
daga frá 12-18 en
fyrsta laugardag í hverj-
um mánuði ætlum við
að vera með svokallaðan
„workshopday“ þar sem
við erum með opið hús og
sýnikennslu,“ segir Ást-
rós Erla Benediktsdóttir
skólastjóri NN make-
upschool. Að þessu sinni
er hrekkjavökuþema en
kennd verður förðun sem
hentar vel fyrir helgina.
„Við munum sýna blöndu
af fantasíu- og hrollvekju-
förðun því mér finnst
nauðsynlegt að förð-
un fyrir hrekkjavökuna
sé örlítið ógnvekjandi.“
Það eru þær Ástrós Erla,
Nemita Margrét og Krist-
ín Stefánsdóttir sem sjá
um sýnikennsluna á laug-
ardaginn en Kristín gaf
nýlega út bókina Förð-
un, skref fyrir skref. NN-
förðunarstúdóið er opið
frá 11-14 á laugardag-
inn og er öllum velkomið
að líta inn, fá ráðgjöf og
fylgjast með förðun. Jafn-
framt er hægt að panta
förðun fyrir kvöldið. „Við
erum að búa til förðunar-
stúdíó sem á að vera upp-
lifun, eins konar förðun-
arparadís allra kvenna,“
segir Ástrós Erla að
lokum.
HREKKJAVÖKU
FÖRÐUNARPARADÍS
Förðunardömurnar í NN makeupschool bjóða upp á opið hús
og sýnikennslu í hrekkjavökuförðun á laugardag í stúdíóinu.
Ástrós Erla og
Nemida Mar-
grét nota vörur
frá Lit Cosm-
etics og Sugar
Pill Cosmetics
Ógnvekjandi
dúkka á hallo-
ween?
Zombie-
förðun ætti
að vera
mjög vinsæl
um helgina.
AFMÆLISLEIKUR UM BORÐ Í HRAÐLESTINNI
Hraðlestin er í uppáhaldi hjá unnendum austurlenskrar matargerðar. Um þessar mundir heldur staðurinn upp á tíu ára afmæli
með ýmsum tilboðum og afmælisleik sem endar með Indlandsferð fyrir heppinn viðskiptavin.
H
raðlestin var fyrst
opnuð á Hverfisgötu
fyrir tíu árum og á
mánudaginn hefst af-
mælisveislan. Tengsl
Hraðlestarinnar við Indland eru
mjög sterk eins og glögglega má
sjá á stöðunum fjórum. Þar er
lagt mikið upp úr því að gestirn-
ir fái að upplifa ekta indverska
stemningu. Fyrir utan staðinn á
Hverfisgötunni er Hraðlestin í
Hlíðasmára, Lækjargötu og nú
í Kringlunni. „Okkur langar til
að gera eitthvað alveg sérstakt
vegna þessara tímamóta,“ segir
Andrea Karlsdóttir hjá Hraðlest-
inni. „Því verður sannkölluð af-
mælishátíð sem hefst á mánudag,
4. nóvember, og stendur út mán-
uðinn.“ Allir viðskiptavinir Hrað-
lestarinnar setja nafn sitt í sér-
stakan afmælispott þegar þeir
kaupa sér aðalrétt. Í hverri viku
verða nöfn heppinna viðskipta-
vina dregin úr pottinum og fá
þeir gjafakort hjá Hraðlestinni.
Í lok mánaðarins verður síðan
aðal vinningurinn dreginn út en
það verður ævintýraferð til Ind-
lands með öllu inniföldu, sér-
sniðin að þörfum þess sem hana
hreppir.
Íslendingar hafa tekið Hrað-
lestinni ákaflega vel enda hefur
staðurinn vaxið og eflst á þess-
um árum. Vandað hráefni er
lykil atriði og eingöngu er notað
sérinnflutt ekta indverskt krydd
án allra aukefna. „Allur matur er
unninn frá grunni og það hefur
eflaust sitt að segja að mat-
reiðslumenn hjá Hraðlestinni eru
allir indverskir fagmenn með
margra ára reynslu í matargerð.
Mikið er lagt upp úr því að bjóða
gæðamáltíð á hagstæðu verði,“
segir Andrea.
Þegar stöðunum fjölgaði jókst
einnig fjölbreytnin á matseðlin-
um. Í Kringlunni og Lækjargötu
er boðið upp á fjölbreytt úrval
léttra rétta í hádeginu, svokall-
aða „Indian Street Food“ rétti. Að
sögn Andreu er þetta ekki dæmi-
gerður skyndibiti, heldur ljúf-
fengir réttir sem fólk nýtur að
borða. „Það er þó sífellt að aukast
að fólk vilji njóta góðrar máltíð-
ar á staðnum þótt margir kjósi að
taka máltíðina með sér heim.“
Hraðlestin er dótturfyrir-
tæki Austur-Indíafjelagsins á
Hverfis götu sem hefur verið vin-
sælasti Asíustaður landsins í ára-
tugi.
Skoða má matseðil og verð á
heimasíðunni www.hradlestin.is.
Hraðlestin er einnig á Facebook.
H
ra
ð
le
st
in
v
a
r
n
ý
le
g
a
o
p
n
u
ð
í
L
æ
k
ja
rg
ö
tu
.
AUGLÝSING: HRAÐLESTIN KYNNIR